4.10.2 Útskýra hugtökin og táknunina sem notuð eru um óákveðin heildi.
4.10.3 Setja fram veldisregluna fyrir heildi.
4.10.4 Nota stofnföll til að leysa einföld upphafsgildisverkefni.
Hingað til höfum við séð hvernig reikna má afleiður margra falla og kynnst ýmiss konar notkun þeirra. Nú snúum við ferlinu við. Skoðum fallið sem er gefið. Við viljum finna fall sem hefur afleiðuna . Hvers vegna höfum við áhuga á slíku falli?
Fyrri hluta spurningarinnar svörum við með skilgreiningu stofnfalls. Stofnfall falls er fall sem hefur afleiðuna Hvers vegna skipta stofnföll máli? Stofnfalla er þörf við fjölmargar aðstæður og ýmis dæmi verða skoðuð síðar í bókinni. Hér skoðum við dæmi um hreyfingu eftir beinni línu. Í umfjölluninni um afleiður hreyfingar eftir beinni línu sýndum við að ef staðsetningarfall hlutar, , er þekkt, er hraðafall hans afleiða staðsetningarfallsins — það er Hröðunin er aftur afleiða hraðafallsins — það er Gerum nú ráð fyrir að gefið sé hröðunarfall en hvorki hraðafallið né staðsetningarfallið Þar sem finnum við hraðafallið með því að finna stofnfall hröðunarfallsins. Þar sem finnum við síðan staðsetningarfallið með því að finna stofnfall hraðafallsins. Hreyfing eftir beinni línu er aðeins eitt dæmi um aðstæður þar sem stofnfalla er þörf. Mun fleiri dæmi koma fyrir síðar í bókinni. Skoðum nú hugtakanotkun og táknun stofnfalla og finnum stofnföll nokkurra gerða falla. Síðar í bókinni kynnumst við ýmsum aðferðum við að finna stofnföll flóknari falla (Inngangur að heildunaraðferðum).
Andhverfa deildunar
Nú kunnum við að finna afleiður ýmissa falla og snúum því spurningunni við. Skoðum fallið sem er gefið. Hvernig finnum við þá fall sem hefur afleiðuna Ef til er fall sem hefur afleiðuna þá köllum við stofnfall fallsins
Skoðum fallið Með hliðsjón af veldisreglunni fyrir deildun ályktum við að sé stofnfall þar sem Eru til önnur stofnföll Já; þar sem afleiða sérhvers fasta er núll, er einnig stofnfall Því eru og einnig stofnföll. Eru til einhver önnur sem eru ekki á forminu fyrir einhvern fasta Svarið er nei. Af fylgisetningu við meðalgildissetninguna vitum við að ef og eru deildanleg föll þannig að þá er fyrir einhvern fasta Þessi staðreynd leiðir til eftirfarandi mikilvægrar setningar.
Við notum þessa staðreynd og þekkingu okkar á afleiðum til að finna öll stofnföll nokkurra falla.
Dæmi 4.50
Að finna stofnföll
Finnið öll stofnföll fyrir hvert eftirfarandi fall.
𝑓(𝑥)=3𝑥2
𝑓(𝑥)=1𝑥
𝑓(𝑥)=cos𝑥
𝑓(𝑥)=𝑒𝑥
Lausn
Þar sem
𝑑𝑑𝑥(𝑥3)=3𝑥2
er 𝐹(𝑥)=𝑥3 stofnfall fyrir 3𝑥2. Því er sérhvert stofnfall fyrir 3𝑥2 af gerðinni 𝑥3+𝐶 fyrir einhvern fasta 𝐶, og sérhvert fall af gerðinni 𝑥3+𝐶 er stofnfall fyrir 3𝑥2.
Látum 𝑓(𝑥)=ln|𝑥|. Fyrir 𝑥>0,𝑓(𝑥)=ln(𝑥) og
𝑑𝑑𝑥(ln𝑥)=1𝑥.
Fyrir 𝑥<0,𝑓(𝑥)=ln(−𝑥) og
𝑑𝑑𝑥(ln(−𝑥))=−1−𝑥=1𝑥.
Þar af leiðandi er
𝑑𝑑𝑥(ln|𝑥|)=1𝑥.
Því er 𝐹(𝑥)=ln|𝑥| stofnfall fyrir 1𝑥. Þar af leiðandi er sérhvert stofnfall fyrir 1𝑥 af gerðinni ln|𝑥|+𝐶 fyrir einhvern fasta 𝐶 og sérhvert fall af gerðinni ln|𝑥|+𝐶 er stofnfall fyrir 1𝑥.
Þar sem er stofnfall fyrir Því er sérhvert stofnfall fyrir af gerðinni fyrir einhvern fasta og sérhvert fall af gerðinni er stofnfall fyrir
Þar sem er stofnfall fyrir Því er sérhvert stofnfall fyrir af gerðinni fyrir einhvern fasta og sérhvert fall af gerðinni er stofnfall fyrir
Óákveðin heildi
Nú skoðum við formlegu táknunina fyrir stofnföll og nokkra eiginleika þeirra. Með þessum eiginleikum getum við fundið stofnföll flóknari falla. Fyrir fallið sem hér er gefið, notum við táknin og fyrir afleiðu Hér innleiðum við táknun fyrir stofnföll. Ef er stofnfall fyrir segjum við að sé almennasta stofnfallið fyrir og ritum
Táknið kallast heildismerki og kallast óákveðið heildi fallsins
Samkvæmt hugtakanotkuninni í þessari skilgreiningu er það að finna stofnföll fallsins yfirleitt nefnt að heilda fallið
Látum vera fall og eitt stofnfall þess. Föllin þar sem er hvaða rauntala sem er, mynda stofnfallafjölskyldu fallsins Þar sem er stofnfall fyrir og sérhvert stofnfall fyrir er af gerðinni ritum við
Safn allra falla af gerðinni þar sem er hvaða rauntala sem er, nefnist fjölskylda stofnfalla fallsins Mynd 4.85 sýnir graf þessarar stofnfallafjölskyldu.
Mynd 4.85. Fjölskylda stofnfalla fallsins 2𝑥 samanstendur af öllum föllum á forminu 𝑥2+𝐶, þar sem 𝐶 er hvaða rauntala sem er.
Fyrir sum föll fæst útreikningur óákveðinna heilda beint af eiginleikum afleiða. Til dæmis, fyrir
sem fæst beint af
Þessi staðreynd er þekkt sem veldisreglan fyrir heildi.
Einnig er einfalt að reikna óákveðin heildi nokkurra annarra falla. Í eftirfarandi töflu eru talin upp óákveðin heildi nokkurra algengra falla. Ítarlegri listi er í viðauka A.
Deildunarformúla
Óákveðið heildi
𝑑 𝑑 𝑥 ( 𝑘 ) = 0 d/d x ( k ) = 0
∫ 𝑘 𝑑 𝑥 = ∫ 𝑘 𝑥 0 𝑑 𝑥 = 𝑘 𝑥 + 𝐶 ∫ k d x = ∫ k x 0 d x = k x + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( 𝑥 𝑛 ) = 𝑛 𝑥 𝑛 − 1 d/d x ( x n ) = n x n − 1
∫ x n d x = x n + 1/n + 1 + C fyrir n ≠ − 1
∫ 1 𝑥 𝑑 𝑥 = l n | 𝑥 | + 𝐶 ∫ 1/x d x = ln | x | + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( 𝑒 𝑥 ) = 𝑒 𝑥 d/d x ( e x ) = e x
∫ 𝑒 𝑥 𝑑 𝑥 = 𝑒 𝑥 + 𝐶 ∫ e x d x = e x + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( s i n 𝑥 ) = c o s 𝑥 d/d x ( sin x ) = cos x
∫ c o s 𝑥 𝑑 𝑥 = s i n 𝑥 + 𝐶 ∫ cos x d x = sin x + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( c o s 𝑥 ) = − s i n 𝑥 d/d x ( cos x ) = − sin x
∫ s i n 𝑥 𝑑 𝑥 = − c o s 𝑥 + 𝐶 ∫ sin x d x = − cos x + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( t a n 𝑥 ) = s e c 2 𝑥 d/d x ( tan x ) = sec 2 x
∫ s e c 2 𝑥 𝑑 𝑥 = t a n 𝑥 + 𝐶 ∫ sec 2 x d x = tan x + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( c s c 𝑥 ) = − c s c 𝑥 c o t 𝑥 d/d x ( csc x ) = − csc x cot x
∫ c s c 𝑥 c o t 𝑥 𝑑 𝑥 = − c s c 𝑥 + 𝐶 ∫ csc x cot x d x = − csc x + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( s e c 𝑥 ) = s e c 𝑥 t a n 𝑥 d/d x ( sec x ) = sec x tan x
∫ s e c 𝑥 t a n 𝑥 𝑑 𝑥 = s e c 𝑥 + 𝐶 ∫ sec x tan x d x = sec x + C
𝑑 𝑑 𝑥 ( c o t 𝑥 ) = − c s c 2 𝑥 d/d x ( cot x ) = − csc 2 x
∫ c s c 2 𝑥 𝑑 𝑥 = − c o t 𝑥 + 𝐶 ∫ csc 2 x d x = − cot x + C
∫ 1 √ 1 − 𝑥 2 𝑑 𝑥 = s i n − 1 𝑥 + 𝐶 ∫ 1/1 − x 2 d x = sin −1 x + C
∫ 1 1 + 𝑥 2 𝑑 𝑥 = t a n − 1 𝑥 + 𝐶 ∫ 1/1 + x 2 d x = tan −1 x + C
∫ 1 𝑥 √ 𝑥 2 − 1 𝑑 𝑥 = s e c − 1 𝑥 + 𝐶 ∫ 1/x x 2 − 1 d x = sec −1 x + C
Samkvæmt skilgreiningu óákveðins heildis fallsins vitum við
þá og því aðeins að sé stofnfall fyrir Þegar fullyrt er að
þarf því að kanna hvort fullyrðingin sé rétt með því að sannreyna að
Dæmi 4.51
Sannprófun óákveðins heildis
Allar eftirfarandi fullyrðingar eru á forminu ∫𝑓(𝑥)𝑑𝑥=𝐹(𝑥)+𝐶. Sannreynið hverja þeirra með því að sýna að 𝐹′(𝑥)=𝑓(𝑥).
∫(𝑥+𝑒𝑥)𝑑𝑥=𝑥22+𝑒𝑥+𝐶
∫𝑥𝑒𝑥𝑑𝑥=𝑥𝑒𝑥−𝑒𝑥+𝐶
Lausn
Þar sem
𝑑𝑑𝑥(𝑥22+𝑒𝑥+𝐶)=𝑥+𝑒𝑥,
er fullyrðingin
∫(𝑥+𝑒𝑥)𝑑𝑥=𝑥22+𝑒𝑥+𝐶
rétt. Athugið að hér er óákveðið heildi summu sannreynt. Enn fremur eru 𝑥22 og 𝑒𝑥 stofnföll fallanna 𝑥 og 𝑒𝑥, hvort um sig, og summa stofnfallanna er stofnfall summunnar. Við fjöllum aftur um þessa staðreynd síðar í þessum undirkafla.
Með því að beita margfeldisreglunni sjáum við að
𝑑𝑑𝑥(𝑥𝑒𝑥−𝑒𝑥+𝐶)=𝑒𝑥+𝑥𝑒𝑥−𝑒𝑥=𝑥𝑒𝑥.
Því er fullyrðingin
∫𝑥𝑒𝑥𝑑𝑥=𝑥𝑒𝑥−𝑒𝑥+𝐶
rétt. Athugið að hér er óákveðið heildi margfeldis sannreynt. Stofnfallið 𝑥𝑒𝑥−𝑒𝑥 er ekki margfeldi stofnfallanna. Enn fremur er margfeldi stofnfallanna, 𝑥2𝑒𝑥/2 , ekki stofnfall fyrir 𝑥𝑒𝑥 þar sem
𝑑𝑑𝑥(𝑥2𝑒𝑥2)=𝑥𝑒𝑥+𝑥2𝑒𝑥2≠𝑥𝑒𝑥.
Almennt er margfeldi stofnfalla ekki stofnfall fyrir margfeldi.
Í töflu 4.13 tókum við saman óákveðin heildi margra einfaldra falla. Beinum nú sjónum að því að reikna óákveðin heildi flóknari falla. Skoðum til dæmis hvernig finna má stofnfall summunnar Í dæmi 4.51a sýndum við að stofnfall summunnar er summan . Það er að segja að stofnfall summu fæst sem summa stofnfalla. Þessi niðurstaða einskorðast ekki við þetta dæmi. Almennt gildir að ef og eru stofnföll fallanna og í sömu röð, þá
Því er stofnfall fyrir og þá gildir
Á sama hátt gildir
Skoðum jafnframt hvernig finna má stofnfall fyrir þar sem er rauntala. Þar sem
fyrir sérhverja rauntölu ályktum við að
Þessir eiginleikar eru teknir saman hér á eftir.
Með þessari setningu getum við reiknað sérhvert heildi sem felur í sér summu, mismun eða fastamargfeldi falla með þekkt stofnföll. Flóknara er að reikna heildi sem fela í sér margfeldi, kvóta eða samskeytingar (sjá dæmi 4.51b., þar sem fjallað er um stofnfall margfeldis). Við skoðum og reiknum heildi sem fela í sér þessi flóknari föll í Inngangi að heildun. Í næsta dæmi skoðum við hvernig nota má þessa setningu til að reikna óákveðin heildi nokkurra falla.
Með því að nota veldisregluna fyrir heildi ályktum við að
∫(5𝑥3−7𝑥2+3𝑥+4)𝑑𝑥=54𝑥4−73𝑥3+32𝑥2+4𝑥+𝐶.
Umritum heildisstofninn sem
Til að reikna heildið heildum við síðan hvern þessara liða fyrir sig. Með því að nota veldisregluna fáum við
Notið eiginleika óákveðinna heilda til að rita heildið sem Notið síðan þá staðreynd að er stofnfall fyrir og ályktið að
Umritum heildisstofninn sem
Því er
Upphafsgildisverkefni
Síðar í bókinni skoðum við aðferðir til að heilda fjölbreytt föll sem fela í sér margfeldi, kvóta og samskeytingar. Hér snúum við okkur að einni algengri notkun stofnfalla sem kemur oft við sögu í margvíslegum verkefnum: að leysa deildajöfnur.
Deildajafna er jafna sem tengir óþekkt fall og eina eða fleiri afleiður þess. Jafnan
(4.9)
er einfalt dæmi um deildajöfnu. Að leysa þessa jöfnu felst í að finna fall með afleiðuna Lausnir jöfnu 4.9 eru því stofnföll fyrir Ef er stofnfall fyrir er sérhvert fall af gerðinni lausn þeirrar deildajöfnu. Til dæmis eru lausnir
eru gefnar með
Stundum viljum við ákvarða hvort tiltekinn lausnarferill liggi um ákveðinn punkt — það er að segja, Verkefnið felst í að finna fall sem uppfyllir deildajöfnu
(4.10)
með viðbótarskilyrðinu
(4.11)
er dæmi um upphafsgildisverkefni. Skilyrðið er kallað upphafsskilyrði. Til dæmis má leita að falli sem uppfyllir deildajöfnuna
og upphafsskilyrðið
er dæmi um upphafsgildisverkefni. Þar sem lausnir deildajöfnunnar eru þurfum við, til að finna fall sem uppfyllir einnig upphafsskilyrðið, að finna þannig að Af þessari jöfnu sjáum við að og við ályktum að sé lausn þessa upphafsgildisverkefnis, eins og sýnt er á grafinu hér á eftir.
Mynd 4.86. Nokkrir lausnarferlar deildajöfnunnar eru sýndir. Fallið uppfyllir deildajöfnuna og upphafsskilyrðið
Dæmi 4.53
Lausn upphafsgildisverkefnis
Leysið upphafsgildisverkefnið
Lausn
Fyrst þurfum við að leysa deildajöfnuna. Ef þá
Næst þurfum við að finna lausn 𝑦 sem uppfyllir upphafsskilyrðið. Upphafsskilyrðið 𝑦(0)=5 merkir að finna þarf fasta 𝐶 þannig að −cos𝑥+𝐶=5. Af þessu fæst
Lausn upphafsgildisverkefnisins er
Upphafsgildisverkefni koma fyrir í fjölmörgum hagnýtum viðfangsefnum. Næst skoðum við verkefni þar sem ökumaður hemlar bifreið og könnum hve langan tíma hún þarf til að stöðvast. Munum að hraðafallið er afleiða staðsetningarfallsins og hröðunin er afleiða hraðafallsins. Í fyrri dæmum í bókinni reiknuðum við hraðann út frá staðsetningunni og síðan hröðunina út frá hraðanum. Í næsta dæmi förum við öfuga leið: Við reiknum hraðafallið út frá gefnu hröðunarfalli og notum það síðan til að ákvarða staðsetningarfallið.
Dæmi 4.54
Bíll hægir á sér
Bíll ekur á hraðanum fet/sek. mílur/klst.) þegar hemlað er. Hraði bílsins minnkar jafnt um fet/sek2.
Hversu margar sekúndur líða áður en bíllinn stöðvast?
Hversu langt ekur bíllinn á þeim tíma?
Lausn
Fyrst skilgreinum við breyturnar sem notaðar verða í verkefninu. Látum tákna tímann (í sekúndum) frá því að fyrst er hemlað. Látum tákna hröðun bílsins (í fetum á sekúndu í öðru veldi) á tíma Látum tákna hraða bílsins (í fetum á sekúndu) á tíma Látum tákna staðsetningu bílsins (í fetum) miðað við punktinn þar sem hemlað var, á tíma
Bíllinn ekur á hraðanum Því er upphafshraðinn fet/sek. Þar sem bíllinn hægir á sér er hröðunin
Hröðun er afleiða hraða og því er
Við þurfum því að leysa eftirfarandi upphafsgildisverkefni:
Með heildun fæst
Þar sem Því er hraðafallið
Til að finna hve langan tíma bíllinn þarf til að stöðvast þurfum við að finna þann tíma þegar hraðinn er núll. Með því að leysa fáum við sek.
Til að finna vegalengdina sem bíllinn ekur á þessum tíma þurfum við að ákvarða staðsetningu hans eftir 8815 sek. Við vitum að hraðafallið 𝑣(𝑡) er afleiða staðsetningarfallsins 𝑠(𝑡). Látum upphafsstaðsetninguna vera 𝑠(0)=0. Því þurfum við að leysa upphafsgildisverkefnið
𝑠′(𝑡)=−15𝑡+88,𝑠(0)=0.
Með heildun fæst
𝑠(𝑡)=−152𝑡2+88𝑡+𝐶.
Þar sem 𝑠(0)=0, fæst 𝐶=0. Því er staðsetningarfallið
𝑠(𝑡)=−152𝑡2+88𝑡.
Eftir 𝑡=8815 sek. hefur bíllinn því ekið 𝑠(8815)≈258.133 fet.
Æfingar í kafla 4.10
Sýnið í eftirfarandi dæmum að sé stofnfall
465.
𝐹(𝑥)=5𝑥3+2𝑥2+3𝑥+1,𝑓(𝑥)=15𝑥2+4𝑥+3
466.
𝐹(𝑥)=𝑥2+4𝑥+1,𝑓(𝑥)=2𝑥+4
467.
𝐹(𝑥)=𝑥2𝑒𝑥,𝑓(𝑥)=𝑒𝑥(𝑥2+2𝑥)
468.
𝐹(𝑥)=cos𝑥,𝑓(𝑥)=−sin𝑥
469.
𝐹(𝑥)=𝑒𝑥,𝑓(𝑥)=𝑒𝑥
Í eftirfarandi æfingum skal finna almennt form stofnfalls fallsins.
470.
𝑓(𝑥)=1𝑥2+𝑥
471.
𝑓(𝑥)=𝑒𝑥−3𝑥2+sin𝑥
472.
𝑓(𝑥)=𝑒𝑥+3𝑥−𝑥2
473.
𝑓(𝑥)=𝑥−1+4sin(2𝑥)
Í eftirfarandi æfingum skal finna almennt form stofnfallsins fyrir hvert fall
474.
𝑓(𝑥)=5𝑥4+4𝑥5
475.
𝑓(𝑥)=𝑥+12𝑥2
476.
𝑓(𝑥)=1√𝑥
477.
𝑓(𝑥)=(√𝑥)3
478.
𝑓(𝑥)=𝑥1/3+(2𝑥)1/3
479.
𝑓(𝑥)=𝑥1/3𝑥2/3
480.
𝑓(𝑥)=2sin(𝑥)+sin(2𝑥)
481.
𝑓(𝑥)=sec2(𝑥)+1
482.
𝑓(𝑥)=sin𝑥cos𝑥
483.
𝑓(𝑥)=sin2(𝑥)cos(𝑥)
484.
𝑓(𝑥)=0
485.
𝑓(𝑥)=12csc2(𝑥)+1𝑥2
486.
𝑓(𝑥)=csc𝑥cot𝑥+3𝑥
487.
𝑓(𝑥)=4csc𝑥cot𝑥−sec𝑥tan𝑥
488.
𝑓(𝑥)=8sec𝑥(sec𝑥−4tan𝑥)
489.
𝑓(𝑥)=12𝑒−4𝑥+sin𝑥
Í eftirfarandi æfingum skal reikna heildið.
490.
∫(−1)𝑑𝑥
491.
∫sin𝑥𝑑𝑥
492.
∫(4𝑥+√𝑥)𝑑𝑥
493.
∫3𝑥2+2𝑥2𝑑𝑥
494.
∫(sec𝑥tan𝑥+4𝑥)𝑑𝑥
495.
∫(4√𝑥+4√𝑥)𝑑𝑥
496.
∫(𝑥−1/3−𝑥2/3)𝑑𝑥
497.
∫14𝑥3+2𝑥+1𝑥3𝑑𝑥
498.
∫(𝑒𝑥+𝑒−𝑥)𝑑𝑥
Leysið upphafsgildisverkefnið í eftirfarandi æfingum.
499.
𝑓′(𝑥)=𝑥−3,𝑓(1)=1
500.
𝑓′(𝑥)=√𝑥+𝑥2,𝑓(0)=2
501.
𝑓′(𝑥)=cos𝑥+sec2(𝑥),𝑓(𝜋4)=2+√22
502.
𝑓′(𝑥)=𝑥3−8𝑥2+16𝑥+1,𝑓(0)=0
503.
𝑓′(𝑥)=2𝑥2−𝑥22,𝑓(1)=0
Í eftirfarandi æfingum skal finna tvö möguleg föll út frá gefinni annarri eða þriðju afleiðu.
504.
𝑓″(𝑥)=𝑥2+2
505.
𝑓″(𝑥)=𝑒−𝑥
506.
𝑓″(𝑥)=1+𝑥
507.
𝑓‴(𝑥)=cos𝑥
508.
𝑓‴(𝑥)=8𝑒−2𝑥−sin𝑥
509.
Bíl er ekið á hraðanum 40 mílur/klst. þegar hemlað er. Hraði bílsins minnkar jafnt um 10 fet/sek2. Hve langur tími líður þar til bíllinn stöðvast?
510.
Reiknið út frá verkefninu hér á undan hve langt bifreiðin ekur áður en hún stöðvast.
511.
Bíll tekur af stað inn á hraðbraut með fastri hröðun sem nemur 12 fet/sek2. Hve langan tíma þarf hann til að ná hraðanum 60 mílur/klst.?
512.
Notið niðurstöðu fyrra verkefnis til að finna hve langt bíllinn ekur áður en hann nær þeim hraða sem þarf til að komast inn í umferðina á hraðbrautinni.
513.
Bílaframleiðandi vill tryggja að nýjasta gerð fyrirtækisins geti stöðvast á 8 sekúndum þegar ekið er á hraðanum 75 mílur/klst. Gerið ráð fyrir fastri hraðaminnkun og finnið gildið sem þarf til þess.
514.
Bílaframleiðandi vill tryggja að nýjasta gerð fyrirtækisins geti stöðvast á vegalengd innan við 450 fet þegar ekið er á 60 mílur/klst. Gerið ráð fyrir fastri hraðaminnkun og finnið gildið sem uppfyllir þetta skilyrði.
Finnið stofnfall fallsins í eftirfarandi æfingum og gerið ráð fyrir að
515.
[T]𝑓(𝑥)=𝑥2+2
516.
[T]𝑓(𝑥)=4𝑥−√𝑥
517.
[T]𝑓(𝑥)=sin𝑥+2𝑥
518.
[T]𝑓(𝑥)=𝑒𝑥
519.
[T]𝑓(𝑥)=1(𝑥+1)2
520.
[T]𝑓(𝑥)=𝑒−2𝑥+3𝑥2
Í eftirfarandi æfingum skal ákvarða hvort fullyrðingin sé sönn eða ósönn. Sannið að hún sé sönn eða finnið mótdæmi ef hún er ósönn.
521.
Ef er stofnfall fyrir þá er stofnfall fyrir
522.
Ef 𝑓(𝑥) er stofnfall fyrir 𝑣(𝑥), þá er 𝑓(2𝑥) stofnfall fyrir 𝑣(2𝑥).