Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Hennessey Venom GT er einn af hraðskreiðustu bílum heims. Árið 2014 setti hann hraðamet, 435 km/klst. Hann nær 322 km/klst hraða úr kyrrstöðu á 14,51 sekúndum. Aðferðir þessa kafla má nota til að reikna hröðun Venom-bílsins í þessari hraðaaukningu (sjá dæmi 3.8).
Stærðfræðigreining er mikilvæg til að reikna hraða og breytingar á honum, en hún nýtist til miklu fleira. Stærðfræðigreining er undirstaða allra greina stærðfræði, raunvísinda og verkfræði og er jafnframt ómissandi við greiningar í viðskiptum og heilbrigðisvísindum. Í þessum kafla kynnumst við afleiðunni, einu helsta verkfæri stærðfræðigreiningar, og þægilegum aðferðum til að reikna afleiður. Síðan notum við reglurnar á ýmis föll svo að við getum skoðað hvernig nýta má aðferðirnar.