33 Afleiður
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- hröðun
- er breytingarhraði hraðans, það er afleiða hraðafallsins
- stærð breytingar
- breyting fallsins 𝑓(𝑥) á bilinu [𝑥,𝑥+ℎ] er 𝑓(𝑥+ℎ)−𝑓(𝑥)
- meðalbreytingarhraði
- meðalbreytingarhraði fallsins 𝑓(𝑥) á bilinu [𝑥,𝑥+ℎ] er 𝑓(𝑎+ℎ)−𝑓(𝑎)ℎ
- keðjuregla
- samkvæmt keðjureglunni er afleiða samskeytts falls afleiða ytra fallsins, metin í gildi innra fallsins, margfölduð með afleiðu innra fallsins
- regla um fastamargfeldi
- afleiða margfeldis fastans c og fallsins f er fastinn margfaldaður með afleiðu fallsins: 𝑑𝑑𝑥(𝑐𝑓(𝑥))=𝑐𝑓′(𝑥)
- fastaregla
- afleiða fasts falls er núll: þar sem c er fasti
- afleiða
- afleiða falls í tilteknum punkti er hallatala snertils við graf fallsins í punktinum og fæst sem markgildi mismunakvótans
- afleiðufall
- gefur afleiðu fallsins í sérhverjum punkti í skilgreiningarmengi þess þar sem afleiðan er skilgreind
- mismunakvóti
- fallsins í punktinum er gefinn með
- mismunaregla
- afleiða mismunar falls f og falls g er jöfn mismuni afleiðu f og afleiðu g:
- deildanlegt í a
- fall sem hefur afleiðuna er deildanlegt í
- deildanlegt fall
- fall er deildanlegt ef 𝑓′(𝑥) er til í skilgreiningarmengi þess
- deildanlegt á S
- fall þar sem er til fyrir sérhvert í opna menginu er deildanlegt á
- deildun
- ferlið við að finna afleiðu
- afleiða af hærra stigi
- afleiða afleiðu, allt frá annarri afleiðu til afleiðu af n-ta stigi, kallast afleiða af hærra stigi
- fólgin deildun
- er aðferð til að reikna fyrir fall sem skilgreint er með jöfnu; báðar hliðar jöfnunnar eru deildaðar og litið er á breytuna sem fall. Að lokum er
- augnabliksbreytingarhraði
- breytingarhraði falls í tilteknum punkti einnig táknaður með og nefndur afleiða fallsins í
- logradeildun
- er aðferð til að deilda fall með því að taka fyrst náttúrulegan logra af báðum hliðum jöfnu, einfalda hana með lograreglum og beita síðan fólginni deildun
- jaðarkostnaður
- er afleiða kostnaðarfallsins og nálgar kostnaðinn við að framleiða eina einingu til viðbótar
- jaðarhagnaður
- er afleiða hagnaðarfallsins og nálgar hagnaðinn af því að framleiða og selja eina einingu til viðbótar
- jaðartekjur
- er afleiða tekjufallsins og nálgar tekjurnar af sölu á einni vöru til viðbótar
- vaxtarhraði stofns
- er afleiða stofnstærðarinnar með tilliti til tíma
- veldisregla
- í afleiðu veldisfalls verður veldisvísir 𝑥 stuðull liðarins og veldisvísir 𝑥 lækkar um 1: Ef 𝑛 er heiltala, þá 𝑑𝑑𝑥𝑥𝑛=𝑛𝑥𝑛−1
- margfeldisregla
- afleiða margfeldis tveggja falla er afleiða fyrra fallsins margfölduð með seinna fallinu að viðbættri afleiðu seinna fallsins margfaldaðri með fyrra fallinu:
- deiliregla
- afleiða kvóta tveggja falla er afleiða fyrra fallsins margfölduð með síðara fallinu að frádreginni afleiðu síðara fallsins margfaldaðri með fyrra fallinu, og allt deilt með öðru veldi síðara fallsins:
- ferð
- er algildi hraðans; |𝑣(𝑡)| er því ferð hlu 𝑡 arins við tímann t þegar hraðinn er gefinn með 𝑣(𝑡)
- summuregla
- afleiða summu falls f og falls g er jöfn summu afleiðu f og afleiðu g: