Íslenskar kennslubækur fyrir alla

Ókeypis að lesa, prenta og nota – heima, í skóla og hvar sem er.
Námsgögn er lifandi verkefni í þróun. Efnið er yfirfarið og bætt jafnt og þétt – og þú getur tekið þátt.

21
námsbækur
100%
ókeypis
CC
opin leyfi

Mótaðu verkefnið með okkur

Sérðu villu, óskýrt orðalag eða eitthvað sem má betur fara? Skráðu þig inn og sendu tillögu. Allar tillögur fara í yfirferð áður en þær birtast.

Sjáðu hvernig þú tekur þátt →

Allar bækur

Veldu fag og byrjaðu að lesa strax.

Stærðfræði

Algebra, tölfræði og stærðfræðigreining fyrir ólík námsstig.

Danska

Danska í samskiptum fyrir 8.–10. bekk, með sögu í lok 9. og 10. bekkjar, og Dansk i hverdagen fyrir framhaldsskóla. Kennsluleiðbeiningar og glærur fylgja.

Náttúruvísindi

Líffræði, efnafræði og eðlisfræði sem skýra heiminn í kringum okkur.

Félagsvísindi

Samfélag, hagkerfi og mannleg hegðun skoðuð frá ólíkum hliðum.

Viðskipti

Fjármál, frumkvöðlafræði og siðfræði í atvinnulífinu.

Hugvísindi

Saga og heimspeki sem varpa ljósi á hugmyndir, menningu og mannlíf.

Verkfæri

Gagnvirk verkfæri fyrir nám og kennslu. Ókeypis og nemendur þurfa engan aðgang.

Stærðfræði

Leikur í bekknum

Allur bekkurinn leysir saman

Kennarinn setur upp dæmi og sýnir kóða á töflunni. Allir leysa á sínu tæki og stig fást fyrir góða leið, ekki bara hraða.

Stærðfræði · Brot

Brotaland

Skiptu súkkulaði jafnt, byggðu brot, berðu þau saman og sjáðu hvað gerist þegar þú leggur saman eða dregur frá.

Opna Brotaland
Litríkur heimur með súkkulaðitorgi, brotasmiðju, garði, brú, myllu og deilingarhúsi

Stærðfræði · Rannsóknarstofa

Hornafallastofan

Breyttu hliðum og hornum beint í þrívíðu líkani. Sjáðu sin, cos og tan breytast og tengdu þríhyrninginn við hring, bylgju og hæðarmælingu.

Opna Hornafallastofuna
Þríhyrningur með breytanlegum hliðum og horni ásamt gildum sin, cos og tan.

Hagfræði

Hermar og leikir

Kaupvík

Hagfræði í einum firði. Átta staðir þar sem líkönin opnast: markaðstorgið, ísbásinn, heimilið, bankarnir og eyjarnar. Fylgstu með sögunni, hreyfðu eina forsendu og sjáðu hvað gerist.

Torgið verður að grafi: hver blaðra er kaupandi og hver stöpull einn ís.

Eðlisfræði

Hreyfing · kraftar · orka

Stökkbraut

Hittu hringinn á lofti og hemlaðu eftir lendingu. Breyttu hæð brekkunnar, hröðun vélarinnar, halla og viðnámi og sjáðu áhrifin á orkuna, stökkið og gröfin.

Blár bíll á stökkbraut í stórri tilraunastofu með brekkum og lendingarpalli.
Niður brekkuna. Á loft. Lending. Áfram.

Menntun á að vera opin

Allt efni er ókeypis og opið, byggt á OpenStax-námsbókum sem eru þýddar og aðlagaðar með tilvísun í uppruna og leyfi. Enginn greiðsluveggur, engin áskrift.

Kynntu þér verkefnið