Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 4.1 Tengdir breytingarhraðar
    3. 4.2 Línulegar nálganir og deildi
    4. 4.3 Hágildi og lággildi
    5. 4.4 Meðalgildissetningin
    6. 4.5 Afleiður og lögun grafs
    7. 4.6 Markgildi þegar x stefnir á óendanlegt og aðfellur
    8. 4.7 Hagnýt bestunarverkefni
    9. 4.8 Regla l’Hôpital
    10. 4.9 Aðferð Newtons
    11. 4.10 Stofnföll
    12. Lykilhugtök
    13. Helstu jöfnur
    14. Meginatriði
    15. Yfirlitsverkefni
  2. A | Tafla yfir heildi
  3. B | Tafla yfir afleiður
  4. C | Upprifjun fyrir stærðfræðigreiningu
  5. Atriðaskrá

Bókin og glærur

Sækja bókina (PDF)PowerPoint-glærur
Stærðfræðigreining, 1. bindi (IS)4 Notkun afleiða

4.5 Afleiður og lögun grafs

Námsmarkmið

  • 4.5.1 Útskýra hvernig formerki fyrstu afleiðu hefur áhrif á lögun grafs falls.
  • 4.5.2 Setja fram fyrsta afleiðuprófið fyrir stöðupunkta.
  • 4.5.3 Nota kúpni og beygjuskilapunkta til að útskýra hvernig formerki annarrar afleiðu hefur áhrif á lögun grafs falls.
  • 4.5.4 Útskýra kúpniprófið fyrir fall á opnu bili.
  • 4.5.5 Útskýra samband falls við fyrstu og aðra afleiðu þess.
  • 4.5.6 Setja fram annað afleiðuprófið fyrir staðbundin útgildi.

Fyrr í þessum kafla kom fram að ef fallið f hefur staðbundið útgildi í punktinum c, hlýtur c að vera stöðupunktur fallsins f. Fall hefur þó ekki endilega staðbundið útgildi í hverjum stöðupunkti. Til dæmis hefur f⁡(x)=x3 stöðupunkt þegar x=0 þar sem f′(x)=3⁢x2 er núll þegar x=0, en f hefur ekki staðbundið útgildi þegar x=0. Með niðurstöðunum úr síðasta undirkafla getum við nú ákvarðað hvort fall hafi í raun staðbundið útgildi í stöðupunkti. Einnig sjáum við hvernig önnur afleiða segir til um lögun grafs: Hún sýnir hvort graf falls er kúpt eða hvelft.

Fyrsta afleiðuprófið

Af fylgisetningu 3 við meðalgildissetninguna leiðir að ef afleiða falls er jákvæð á bili I er fallið vaxandi á I. Ef afleiðan er hins vegar neikvæð á bili I, er fallið minnkandi á I eins og sýnt er á myndinni hér á eftir.

Myndinni er skipt í fjóra hluta sem merktir eru a, b, c og d. Mynd a sýnir kúpt fall sem vex frá (a, f(a)) til (b, f(b)). Afleiðugildi eru merkt í tveimur punktum og í báðum tilvikum gildir f’ > 0; fallið er því vaxandi. Mynd b sýnir hvelft fall sem vex frá (a, f(a)) til (b, f(b)). Þar eru einnig merkt tvö jákvæð afleiðugildi og fallið er vaxandi. Mynd c sýnir hvelft fall sem minnkar frá (a, f(a)) til (b, f(b)). Tvö neikvæð afleiðugildi eru merkt og fallið er minnkandi. Mynd d sýnir kúpt fall sem minnkar frá (a, f(a)) til (b, f(b)). Þar eru einnig merkt tvö neikvæð afleiðugildi og fallið er minnkandi.
Mynd 4.30. Bæði föllin eru vaxandi á bilinu ]a,b[. Í sérhverjum punkti x, er f′(x)>0. Bæði föllin eru minnkandi á bilinu ]a,b[. Í sérhverjum punkti x, er f′(x)<0.

Samfellt fall f hefur staðbundið hágildi í punktinum c þá og því aðeins að f fari úr því að vera vaxandi í að vera minnkandi í punktinum c. Á sama hátt hefur f staðbundið lággildi í c þá og því aðeins að f fari úr því að vera minnkandi í að vera vaxandi í c. Ef f er samfellt fall á bili I sem inniheldur c og deildanlegt á I, nema hugsanlega í c, getur f aðeins farið úr því að vera vaxandi í það að vera minnkandi, eða öfugt, í punktinum c ef f′ skiptir um formerki þegar x vex fram yfir c. Ef f er deildanlegt í c, getur f′ aðeins skipt um formerki þegar x vex fram yfir c ef f′⁡(c)=0. Fyrir fall f sem er samfellt á bili I sem inniheldur c og deildanlegt á I, nema hugsanlega í c, getur f því aðeins farið úr því að vera vaxandi í það að vera minnkandi, eða öfugt, ef f′(c)=0 eða f′⁡(c) er óskilgreint. Til að finna staðbundin útgildi falls f, leitum við því að gildum c í skilgreiningarmengi f þar sem f′(c)=0 eða f′⁡(c) er óskilgreint. Slík gildi kallast stöðupunktar fallsins f.

Athugið að f þarf ekki að hafa staðbundið útgildi í hverjum stöðupunkti. Stöðupunktarnir eru aðeins hugsanlegir staðir útgilda. Á mynd 4.31 sést að ef samfellt fall f hefur staðbundið útgildi hlýtur það að vera í stöðupunkti, en ekki er víst að fall hafi staðbundið útgildi í sérhverjum stöðupunkti. Ef f hefur staðbundið útgildi í stöðupunkti skiptir f′ um formerki þegar x vex fram yfir punktinn.

Graf fallsins f(x) er sýnt. Það hefst í öðrum fjórðungi og vex að x = a, þar sem grafið er hvasshyrnt og f’(a) því óskilgreint. Á þessum hluta er f’ > 0. Síðan minnkar fallið frá x = a að x = b og þar er f’ < 0. Við x = b tekur fallið aftur að vaxa og merkt er að f’(b) = 0. Á leiðinni frá x = b að x = c er f’ > 0. Fallið hefur beygjuskil í c og þar er f’(c) = 0. Það vex áfram að d, þar sem það hefur algilt hágildi og f’(d) = 0. Eftir d minnkar fallið og þar er f’ < 0.
Mynd 4.31. Fallið f hefur fjóra stöðupunkta: a,b,c,ogd. Fallið f hefur staðbundin hágildi í a og d, og staðbundið lággildi í b. Fallið f hefur ekki staðbundið útgildi í c. Formerki f′ breytist við öll staðbundin útgildi.

Út frá mynd 4.31 tökum við saman helstu niðurstöður um staðbundin útgildi.

  • Ef samfellt fall f hefur staðbundið útgildi hlýtur það að vera í stöðupunkti c.
  • Fallið hefur staðbundið útgildi í stöðupunktinum c þá og því aðeins að afleiðan f′ skipti um formerki þegar x vex fram yfir c.
  • Til að kanna hvort fall hafi staðbundið útgildi í stöðupunkti c, verðum við því að ákvarða formerki f′⁡(x) vinstra og hægra megin við c.

Þessi niðurstaða nefnist fyrsta afleiðuprófið.

Setning 4.9

Fyrsta afleiðuprófið

Gerum ráð fyrir að f sé samfellt fall á bili I sem inniheldur stöðupunktinn c. Ef f er deildanlegt á I, nema hugsanlega í punktinum c, á ein af eftirfarandi lýsingum við um f⁡(c):

  1. Ef formerki f′ breytist úr jákvæðu fyrir x<c í neikvætt fyrir x>c, þá er f⁡(c) staðbundið hágildi fallsins f.
  2. Ef formerki f′ breytist úr neikvæðu fyrir x<c í jákvætt fyrir x>c, þá er f⁡(c) staðbundið lággildi fallsins f.
  3. Ef f′ hefur sama formerki þegar x<c og þegar x>c, þá er f⁡(c) hvorki staðbundið hágildi né staðbundið lággildi fallsins f.

Draga má fyrsta afleiðuprófið saman í aðferð til að finna staðbundin útgildi.

Aðferð við úrlausn verkefna

Notkun fyrsta afleiðuprófsins

Lítum á fall f sem er samfellt á bili I.

  1. Finnið alla stöðupunkta fallsins f og skiptið bilinu I í smærri bil þannig að stöðupunktarnir verði endapunktar þeirra.
  2. Greinið formerki f′ á hverju hlutbilanna. Ef f′ er samfellt á tilteknu hlutbili (eins og yfirleitt er), þá breytist formerki f′ ekki á því hlutbili. Því má ákvarða það með því að velja einhvern prófunarpunkt x á hlutbilinu og finna formerki f′ í þeim punkti. Notið formerkjagreininguna til að ákvarða hvort f sé vaxandi eða minnkandi á því bili.
    Athugið: Ef f′ er ekki samfellt alls staðar á I, skal einnig nota ósamfelldnipunkta ásamt stöðupunktum sem endapunkta þegar I er skipt í hlutbil.
  3. Notið fyrsta afleiðuprófið og niðurstöður skrefs 2 til að ákvarða hvort f hafi staðbundið hágildi, staðbundið lággildi eða hvorugt í hverjum stöðupunkti.

Skoðum nú hvernig nota má þessa aðferð til að finna öll staðbundin útgildi tiltekinna falla.

Dæmi 4.17

Notkun fyrsta afleiðuprófsins til að finna staðbundin útgildi

Notið fyrsta afleiðuprófið til að finna öll staðbundin útgildi fallsins f⁡(x)=x3−3⁢x2−9⁢x−1. Notið grafreikni (t.d. GeoGebra) til að staðfesta niðurstöðurnar.

Lausn

Skref 1. Afleiðan er f′⁡(x)=3⁢x2−6⁢x−9. Til að finna stöðupunktana leitum við að þeim gildum x þar sem f′⁡(x)=0. Með því að þátta margliðuna sjáum við að stöðupunktarnir uppfylla

3⁢(x2−2⁢x−3)=3⁢(x−3)⁢(x+1)=0.

Stöðupunktarnir eru því x=3,−1. Skiptum nú bilinu ]−∞,∞[ í hlutbilin ]−∞,−1[,]−1,3[⁢og⁡]3,∞[.

Skref 2. Þar sem f′ er samfellt nægir að ákvarða formerki f′⁡(x) á hverju hlutbili með því að velja einn prófunarpunkt úr bilunum ]−∞,−1[,]−1,3[⁢og⁡]3,∞[ og reikna formerki f′ þar. Veljum til dæmis x=−2,x=0,ogx=4 sem prófunarpunkta.

BilPrófunarpunkturFormerki f ′ ⁡ ( x ) = 3 ⁢ ( x − 3 ) ⁢ ( x + 1 ) í prófunarpunktiNiðurstaða
]−∞,−1[x = −2(+)⁢(−)⁢(−)=+f er vaxandi.
]−1,3[x = 0(+)⁢(−)⁢(+)=−f er minnkandi.
]3,∞[x = 4(+)⁢(+)⁢(+)=+f er vaxandi.

Skref 3. Afleiðan f′ breytir um formerki úr jákvæðu í neikvætt þegar x vex fram yfir –1,f hefur því staðbundið hágildi í x=−1. Afleiðan f′ breytir um formerki úr neikvæðu í jákvætt þegar x vex fram yfir 3,f hefur því staðbundið lággildi í x=3. Niðurstöðurnar samræmast grafinu hér á eftir.

Graf fallsins f(x) = x³ − 3x² − 9x − 1 er sýnt. Fallið hefur staðbundið hágildi þegar x = −1 og staðbundið lággildi þegar x = 3. Það er vaxandi þegar x < −1, minnkandi þegar −1 < x < 3 og vaxandi þegar x > 3.
Mynd 4.32. Fallið f hefur hágildi í x=−1 og lággildi í x=3

Stöðumat 4.16

Notið fyrsta afleiðuprófið til að finna öll staðbundin útgildi fyrir f⁡(x)=−x3+32⁢x2+18⁢x.

Dæmi 4.18

Notkun fyrsta afleiðuprófsins

Notið fyrsta afleiðuprófið til að finna öll staðbundin útgildi fallsins f⁡(x)=5⁢x1/3−x5/3. Notið grafreikni til að staðfesta niðurstöðurnar.

Lausn

Skref 1. Afleiðan er

f′⁡(x)=53⁢x−2/3−53⁢x2/3=53⁢x2/3−5⁢x2/33=5−5⁢x4/33⁢x2/3=5⁢(1−x4/3)3⁢x2/3.

Jafnan f′⁡(x)=0 gildir þegar 1−x4/3=0. Því er f′⁡(x)=0 þegar x=±1. Afleiðan f′⁡(x) er jafnframt óskilgreind þegar x=0. Stöðupunktarnir eru því þrír: x=0, x=1, og x=−1. Skiptum því bilinu ]−∞,∞[ í hlutbilin ]−∞,−1[,]−1,0[,]0,1[, og ]1,∞[.

Skref 2: Þar sem f′ er samfellt á hverju hlutbili nægir að velja einn prófunarpunkt x úr hverju bilanna í skrefi 1 og ákvarða formerki f′ þar. Nota má x=−2,x=−12,x=12,ogx=2 sem prófunarpunkta.

BilPrófunarpunkturFormerki f ′ ⁡ ( x ) = 5 ⁢ ( 1 − x4 / 3 )/3 ⁢ x2 / 3 í prófunarpunktiNiðurstaða
]−∞,−1[x = −2(+)⁢(−)+=−f er minnkandi.
]−1,0[x = − 12(+)⁢(+)+=+f er vaxandi.
]0,1[x = 12(+)⁢(+)+=+f er vaxandi.
]1,∞[x = 2(+)⁢(−)+=−f er minnkandi.

Skref 3: Þar sem f er minnkandi á bilinu ]−∞,−1[ en vaxandi á bilinu ]−1,0[, hefur f staðbundið lággildi í x=−1. Þar sem f er vaxandi á bilinu ]−1,0[ og á bilinu ]0,1[, hefur f ekki staðbundið útgildi í x=0. Fallið f er vaxandi á bilinu ]0,1[ en minnkandi á bilinu ]1,∞[,f hefur því staðbundið hágildi í x=1. Niðurstöðurnar samræmast grafinu hér á eftir.

Graf fallsins f(x) = 5x^(1/3) − x^(5/3) er sýnt. Fallið minnkar þar til það nær staðbundnu lággildi þegar x = −1, vex síðan að staðbundnu hágildi þegar x = 1 og minnkar eftir það.
Mynd 4.33. Fallið f hefur staðbundið lággildi í x=−1 og staðbundið hágildi í x=1.

Stöðumat 4.17

Notið fyrsta afleiðuprófið til að finna öll staðbundin útgildi fyrir f⁡(x)=x−13.

Kúpni og beygjuskilapunktar

Við vitum nú hvernig ákvarða má hvar fall er vaxandi eða minnkandi. Annað einkenni á lögun grafs er hvort það sveigist upp eða niður. Sá eiginleiki nefnist kúpni fallsins.

Mynd 4.34(a) sýnir fall f með graf sem sveigist upp á við. Þegar x vex eykst hallatala snertilsins. Afleiðan vex því þegar x vex, svo að f′ er vaxandi fall. Þá segjum við að fallið f sé kúpt. Mynd 4.34(b) sýnir fall f sem sveigist niður á við. Þegar x vex minnkar hallatala snertilsins. Afleiðan minnkar því þegar x vex, svo að f′ er minnkandi fall. Þá segjum við að fallið f sé hvelft.

Skilgreining

Látum f vera fall sem er deildanlegt á opnu bili I. Ef f′ er vaxandi á I, segjum við að f sé kúpt á I. Ef f′ er minnkandi á I, segjum við að f sé hvelft á I.

Myndinni er skipt í fjóra hluta sem merktir eru a, b, c og d. Mynd a sýnir kúpt fall sem vex frá (a, f(a)) til (b, f(b)). Afleiðugildi eru sýnd í tveimur punktum; bæði eru jákvæð en gildið hægra megin er stærra. Því er f’ vaxandi og f kúpt. Mynd b sýnir hvelft fall sem vex milli sömu punkta. Afleiðugildin eru jákvæð en gildið hægra megin er minna, svo f’ er minnkandi og f hvelft. Mynd c sýnir kúpt fall sem minnkar. Afleiðugildin eru neikvæð en gildið hægra megin er stærra, svo f’ er vaxandi og f kúpt. Mynd d sýnir hvelft fall sem minnkar. Afleiðugildin eru neikvæð og gildið hægra megin er minna, svo f’ er minnkandi og f hvelft.
Mynd 4.34. (a), (c) Þar sem f′ er vaxandi á bilinu ]a,b[, segjum við að f sé kúpt á ]a,b[. (b), (d) Þar sem f′ er minnkandi á bilinu ]a,b[, segjum við að f sé hvelft á ]a,b[.

Hvernig má ákvarða kúpni fallsins f, þegar graf þess liggur ekki fyrir? Samkvæmt skilgreiningu er f kúpt ef f′ er vaxandi. Eins og segir í fylgisetningu 3, gildir að ef f′ er deildanlegt, þá er f′ vaxandi þegar afleiða þess uppfyllir f″⁡(x)>0. Tvisvar deildanlegt fall f er því kúpt þar sem f″⁡(x)>0. Á sama hátt er f hvelft ef f′ er minnkandi. Deildanlega fallið f′ er minnkandi þegar afleiða þess uppfyllir f″⁡(x)<0. Tvisvar deildanlegt fall f er því hvelft þar sem f″⁡(x)<0. Þessi aðferð nefnist kúpniprófið.

Setning 4.10

Kúpniprófið

Látum f vera fall sem er tvisvar deildanlegt á bili I.

  1. Ef f″⁡(x)>0 fyrir öll x∈I, þá er f kúpt á I.
  2. Ef f″⁡(x)<0 fyrir öll x∈I, þá er f hvelft á I.

Kúpni falls f má ákvarða með því að skoða aðra afleiðu fallsins f. Fall f getur breytt um sveigju, eins og sést á mynd 4.35. Samfellt fall getur þó aðeins breytt um sveigju við gildi x ef f″⁡(x)=0 eða f″⁡(x) er óskilgreint. Til að finna bilin þar sem f er kúpt eða hvelft leitum við að þeim gildum x þar sem f″⁡(x)=0 eða f″⁡(x) er óskilgreint. Síðan skiptum við skilgreiningarmengi f í hlutbil og ákvarðum formerki f″ á hverju þessara smærri bila. Ef f″ skiptir um formerki þegar farið er fram hjá gildi x, þá breytir f um sveigju. Fall f breytir þó ekki endilega um sveigju við gildi x þótt f″⁡(x)=0 eða f″⁡(x) sé óskilgreint. Ef f breytir um sveigju í a og f er samfellt í a, er punkturinn (a,f⁡(a)) beygjuskilapunktur fallsins f.

Skilgreining

Ef f er samfellt í a og f breytir um sveigju í a, þá er punkturinn (a,f⁡(a)) beygjuskilapunktur fallsins f.

Sýnt er sínuslaga fall sem hefur verið hliðrað yfir í fyrsta fjórðung. Fallið er minnkandi í upphafi, þannig að f’ < 0 og f’’ > 0. Fallið nær staðbundnu lággildi og tekur að vaxa, þannig að f’ > 0 og f’’ > 0. Hallatalan er vaxandi á þessum tveimur bilum. Fallið nær síðan beygjuskilapunktinum (a, f(a)) og þaðan í frá minnkar hallatalan þótt fallið haldi áfram að vaxa, þannig að f’ > 0 og f’’ < 0. Fallið nær hágildi og tekur síðan að minnka, þannig að f’ < 0 og f’’ < 0.
Mynd 4.35. Þar sem f″⁡(x)>0 fyrir x<a, er f kúpt á bilinu ]−∞,a[. Þar sem f″⁡(x)<0 fyrir x>a, er f hvelft á bilinu ]a,∞[. Punkturinn (a,f⁡(a)) er beygjuskilapunktur fallsins f.

Dæmi 4.19

Kúpniprófið

Fyrir fallið f⁡(x)=x3−6⁢x2+9⁢x+30, ákvarðið öll bil þar sem f er kúpt og öll bil þar sem f er hvelft. Tilgreinið alla beygjuskilapunkta fallsins f. Notið grafreikni til að staðfesta niðurstöðurnar.

Lausn

Til að ákvarða kúpni þurfum við að finna aðra afleiðuna f″⁡(x). Fyrsta afleiðan er f′(x)=3⁢x2−12⁢x+9, svo að önnur afleiðan er f″⁡(x)=6⁢x−12. Fallið getur aðeins breytt um sveigju þar sem f″⁡(x)=0 eða f″⁡(x) er óskilgreint. Þar sem f″ er skilgreint fyrir allar rauntölur x, nægir að leysa f″⁡(x)=0. Úr jöfnunni 6⁢x−12=0, fæst x=2 , eina gildið þar sem f gæti breytt um sveigju. Veljum nú prófunarpunkta á bilunum ]−∞,2[ og ]2,∞[ til að ákvarða kúpni f. Nota má x=0 og x=3 .

BilPrófunarpunkturFormerki f ″ ⁡ ( x ) = 6 ⁢ x − 12 í prófunarpunktiNiðurstaða
]−∞,2[x = 0−f er hvelft
]2,∞[x = 3+f er kúpt.

Fallið f er því hvelft á bilinu ]−∞,2[ og kúpt á bilinu ]2,∞[. Þar sem f breytir um sveigju þegar x=2, er punkturinn (2,f⁡(2))=(2,32) beygjuskilapunktur. Mynd 4.36 staðfestir niðurstöðurnar.

Graf fallsins f(x) = x³ − 6x² + 9x + 30 er sýnt. Beygjuskilapunkturinn (2, 32) er merktur og liggur nokkurn veginn mitt á milli staðbundnu útgildanna tveggja.
Mynd 4.36. Fallið hefur beygjuskilapunkt í (2,32) þar sem sveigja grafsins breytist.

Stöðumat 4.18

Fyrir f⁡(x)=−x3+32⁢x2+18⁢x, finnið öll bil þar sem f er kúpt og öll bil þar sem f er hvelft.

Í töflu 4.1 tökum við saman þær upplýsingar sem fyrsta og önnur afleiða falls f gefa um graf f, en þær eru einnig sýndar myndrænt á mynd 4.37.

Formerki f ′Formerki f ″Er f vaxandi eða minnkandi?Kúpni
JákvættJákvættVaxandiKúpt
JákvættNeikvættVaxandiHvelft
NeikvættJákvættMinnkandiKúpt
NeikvættNeikvættMinnkandiHvelft
Graf falls er sýnt í fyrsta fjórðungi og skipt í fjóra hluta við staðbundið lággildi, beygjuskilapunkt og staðbundið hágildi. Fyrsti hlutinn er minnkandi og kúptur; þar er f’ < 0 og f’’ > 0. Annar hlutinn er vaxandi og kúptur; þar er f’ > 0 og f’’ > 0. Þriðji hlutinn er vaxandi og hvelftur; þar er f’ > 0 og f’’ < 0. Fjórði hlutinn er minnkandi og hvelftur; þar er f’ < 0 og f’’ < 0.
Mynd 4.37. Lítum á tvisvar deildanlegt fall f á opnu bili I. Ef f′(x)>0 fyrir öll x∈I, er fallið vaxandi á I. Ef f′(x)<0 fyrir öll x∈I, er fallið minnkandi á I. Ef f″⁡(x)>0 fyrir öll x∈I, er fallið kúpt á I . Ef f″⁡(x)<0 fyrir öll x∈I, er fallið hvelft á I.

Annað afleiðuprófið

Fyrsta afleiðuprófið er greiningaraðferð til að finna staðbundin útgildi, en einnig má nota aðra afleiðu í sama tilgangi. Sú aðferð er stundum einfaldari en að nota fyrstu afleiðuna.

Ef samfellt fall hefur staðbundið útgildi hlýtur það að vera í stöðupunkti, en ekki er víst að staðbundið útgildi sé í sérhverjum stöðupunkti. Annað afleiðuprófið sker úr um þetta í mörgum tilvikum. Látum f vera tvisvar deildanlegt fall þannig að f′⁡(a)=0 og f″ sé samfellt á opnu bili I sem inniheldur a. Gerum fyrst ráð fyrir að f″⁡(a)<0. Þar sem f″ er samfellt á I, gildir f″⁡(x)<0 fyrir öll x∈I (Mynd 4.38). Eins og segir í fylgisetningu 3, er f′ minnkandi á I. Þar sem f′⁡(a)=0, ályktum við að fyrir öll x∈I,f′⁡(x)>0 ef x<a og f′⁡(x)<0 ef x>a. Samkvæmt fyrsta afleiðuprófinu hefur f því staðbundið hágildi þegar x=a. Gerum hins vegar ráð fyrir að til sé gildi b þannig að f′⁡(b)=0 en f″⁡(b)>0. Þar sem f″ er samfellt á opnu bili I sem inniheldur b, þá er f″⁡(x)>0 fyrir öll x∈I (Mynd 4.38). Við notum aftur fylgisetningu 3,f′ er því vaxandi á I. Þar sem f′⁡(b)=0, ályktum við að fyrir öll x∈I, f′⁡(x)<0 ef x<b og f′⁡(x)>0 ef x>b. Samkvæmt fyrsta afleiðuprófinu hefur f því staðbundið lággildi þegar x=b.

Graf falls f(x) er sýnt í fyrsta fjórðungi og a og b eru merkt á x-ásnum. Grafið svipar lauslega til sínusfalls; það vex fyrst að x = a, minnkar síðan að x = b og vex svo aftur. Snertillinn í (a, f(a)) er merktur og tekið er fram að f’(a) = 0 og f’’(a) < 0. Snertillinn í (b, f(b)) er merktur og tekið er fram að f’(b) = 0 og f’’(b) > 0.
Mynd 4.38. Lítum á tvisvar deildanlegt fall f þannig að f″ sé samfellt. Þar sem f′(a)=0 og f″⁡(a)<0, er til bil I sem inniheldur a þannig að ef x tilheyrir I, þá er f vaxandi ef x<a og f er minnkandi ef x>a. Því hefur f staðbundið hágildi þegar x=a. Þar sem f′(b)=0 og f″⁡(b)>0, er til bil I sem inniheldur b þannig að ef x tilheyrir I, þá er f minnkandi ef x<b og f er vaxandi ef x>b. Því hefur f staðbundið lággildi þegar x=b.

Setning 4.11

Annað afleiðuprófið

Gerum ráð fyrir að f′⁡(c)=0,f″ sé samfellt á bili sem inniheldur c.

  1. Ef f″⁡(c)>0, þá hefur f staðbundið lággildi í c.
  2. Ef f″⁡(c)<0, þá hefur f staðbundið hágildi í c.
  3. Ef f″⁡(c)=0, þá gefur prófið enga niðurstöðu.

Athugið að í tilviki iii, þegar f″⁡(c)=0, getur f haft staðbundið hágildi, staðbundið lággildi eða hvorugt í c. Til dæmis hafa föllin f⁡(x)=x3, f⁡(x)=x4, og f⁡(x)=−x4 öll stöðupunkt þegar x=0. Önnur afleiða þeirra er núll þegar x=0. Fallið f⁡(x)=x4 hefur hins vegar staðbundið lággildi þegar x=0, en fallið f⁡(x)=−x4 hefur staðbundið hágildi þegar núll er gildi breytunnar x, en fallið f⁡(x)=x3 hefur ekki staðbundið útgildi þegar x=0.

Skoðum nú hvernig nota má annað afleiðuprófið til að ákvarða hvort f hafi staðbundið hágildi eða staðbundið lággildi í stöðupunkti c þar sem f′⁡(c)=0.

Dæmi 4.20

Notkun annars afleiðuprófsins

Notið aðra afleiðu til að finna öll staðbundin útgildi fallsins f⁡(x)=x5−5⁢x3.

Lausn

Til að beita öðru afleiðuprófinu þurfum við fyrst að finna stöðupunkta c þar sem f′⁡(c)=0. Afleiðan er f′⁡(x)=5⁢x4−15⁢x2. Því er f′⁡(x)=5⁢x4−15⁢x2=5⁢x2⁢(x2−3)=0 þegar x=0,±3.

Til að ákvarða hvort f hafi staðbundin útgildi við einhver þessara gilda þurfum við að finna formerki f″ þar. Önnur afleiðan er

f″⁡(x)=20⁢x3−30⁢x=10⁢x⁢(2⁢x2−3).

Í töflunni hér á eftir reiknum við aðra afleiðu í hverjum stöðupunkti og notum annað afleiðuprófið til að ákvarða hvort f hafi staðbundið hágildi eða lággildi þar.

xf ″ ⁡ ( x )Niðurstaða
− √ 3 − 3− 3 0 ⁢ √ 3 −30 ⁢ 3Staðbundið hágildi
00Annað afleiðuprófið gefur ekki ótvíræða niðurstöðu
√ 3 33 0 ⁢ √ 3 30 ⁢ 3Staðbundið lággildi

Samkvæmt öðru afleiðuprófinu hefur f staðbundið hágildi þegar x=−3 og f hefur staðbundið lággildi þegar x=3. Prófið gefur enga niðurstöðu þegar x=0. Til að ákvarða hvort f hafi staðbundið útgildi þegar x=0, beitum við fyrsta afleiðuprófinu. Til að ákvarða formerki f′⁡(x)=5⁢x2⁢(x2−3) á bilunum x∈]−3,0[ og x∈]0,3[, veljum við x=−1 og x=1 sem prófunarpunkta. Þar sem f′⁡(−1)<0 og f′⁡(1)<0, er f minnkandi á báðum bilunum. Fallið f hefur því ekki staðbundið útgildi þegar x=0 eins og sést á grafinu hér á eftir.

Graf fallsins f(x) = x⁵ − 5x³ er sýnt. Fallið vex að staðbundnu hágildi í (−√3, 10), minnkar í gegnum beygjuskilapunktinn (0, 0) að staðbundnu lággildi í (√3, −10) og vex síðan aftur.
Mynd 4.39. Fallið f hefur staðbundið hágildi í x=−3 og staðbundið lággildi í x=3

Stöðumat 4.19

Skoðum fallið f⁡(x)=x3−(32)⁢x2−18⁢x. Gildin c=3,−2 uppfylla f′⁡(c)=0. Notið annað afleiðuprófið til að ákvarða hvort f hafi staðbundið hágildi eða lággildi við þessi gildi.

Við höfum nú þær aðferðir sem þarf til að ákvarða hvar fall er vaxandi eða minnkandi og til að lýsa grunnlögun grafs þess. Í næsta undirkafla könnum við hegðun falls þegar x→±∞. Að því loknu getum við teiknað nákvæm gröf af fjölbreyttum föllum.

Æfingar í undirkafla 4.5

194.

Ef c er stöðupunktur fallsins f⁡(x), hvenær hefur fallið hvorki staðbundið hágildi né lággildi við c? Útskýrið.

195.

Í fallinu y=x3, er x=0 bæði beygjuskilapunktur og staðbundið útgildi?

196.

Hefur fallið y=x3, beygjuskilapunkt við x=0?

197.

Getur punkturinn c á grafi tvisvar deildanlegs falls verið bæði beygjuskilapunktur og staðbundið útgildi?

198.

Hvers vegna er samfelldni nauðsynleg fyrir fyrsta afleiðuprófið? Setjið fram dæmi.

199.

Útskýrið hvort hvelft fall þurfi að skera línuna y=0 fyrir eitthvert gildi x.

200.

Útskýrið hvort margliða af stigi 2 geti haft beygjuskilapunkt.

Í æfingunum hér á eftir skal greina gröf afleiðufallanna f′, og tilgreina bilin þar sem f er vaxandi eða minnkandi.

201.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið hefur í upphafi neikvæð gildi og sker x-ásinn í (−2, 0). Síðan heldur það áfram að vaxa lítillega áður en það minnkar og sker x-ásinn í (−1, 0). Það nær staðbundnu lággildi í (1, −6) áður en það vex, sker x-ásinn í (2, 0) og heldur áfram að vaxa.
202.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið hefur í upphafi neikvæð gildi og sker x-ásinn í (−2, 0). Síðan heldur það áfram að vaxa lítillega áður en það minnkar og snertir x-ásinn í (−1, 0). Því næst vex það lítillega áður en það minnkar og sker x-ásinn í upphafspunktinum. Fallið heldur síðan áfram að minnka þar til það nær staðbundnu lággildi, en vex því næst, sker x-ásinn í (1, 0) og heldur áfram að vaxa.
203.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið hefur í upphafi neikvæð gildi og snertir x-ásinn í upphafspunktinum. Síðan minnkar það lítillega áður en það fer að vaxa, sker x-ásinn í (1, 0) og heldur áfram að vaxa.
204.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið hefur í upphafi jákvæð gildi og minnkar þar til það snertir x-ásinn í (−1, 0). Síðan vex það að (0; 4,5) áður en það minnkar þar til það snertir x-ásinn í (1, 0). Að lokum vex fallið.
205.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið hefst í (−2, 0), minnkar að (−1,5; −1,5), vex að (−1, 0) og heldur áfram að vaxa áður en það minnkar að upphafspunktinum. Hinn hluti grafsins er samhverfur: fallið vex og minnkar síðan þannig að grafið fer í gegnum (1, 0). Það heldur áfram að minnka að (1,5; −1,5) og vex síðan að (2, 0).

Í æfingunum hér á eftir skal greina gröf f′, og tilgreina

  1. f er vaxandi eða minnkandi og
  2. hvar lággildi og hágildi eru.
206.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið hefst í (−2, 0), minnkar örlítið og vex síðan að (−1, 0). Það heldur áfram að vaxa áður en það minnkar að upphafspunktinum og vex síðan á ný.
207.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið hefst í (−2, 0), vex og minnkar síðan að (−1, 0). Það minnkar og vex síðan að beygjuskilapunkti í upphafspunktinum. Síðan vex fallið og minnkar uns grafið fer í gegnum (1, 0). Það heldur áfram að minnka og vex loks að (2, 0).
208.
Graf fallsins f’(x) er sýnt frá x = −2 til x = 2. Það hefst nálægt núlli þegar x = −2, en vex síðan hratt og helst jákvætt á öllu bilinu sem grafið nær yfir.
209.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið er neikvætt í upphafi og sker x-ásinn í upphafspunktinum, sem er beygjuskilapunktur. Síðan heldur það áfram að vaxa.
210.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið er neikvætt í upphafi og sker x-ásinn í (−1, 0). Síðan vex það örlítið áfram áður en það minnkar og snertir x-ásinn í upphafspunktinum. Það vex á ný og minnkar síðan að (1, 0). Að lokum vex það.

Í æfingunum hér á eftir skal greina gröf afleiðufallanna f′, og tilgreina alla beygjuskilapunkta og þau bil þar sem f er kúpt eða hvelft.

211.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið er línulegt og neikvætt í upphafi. Það sker x-ásinn í upphafspunktinum.
212.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Það er uppopinn fleygbogi með staðbundið lággildi 0.
213.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið líkist grafi x³; það er neikvætt í upphafi, sker x-ásinn í upphafspunktinum og heldur síðan áfram að vaxa.
214.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið er neikvætt í upphafi og sker x-ásinn í (−0,5; 0). Síðan heldur það áfram að vaxa að (0; 1,5) áður en það minnkar og snertir x-ásinn í (1, 0). Þá vex það á ný.
215.
Graf fallsins f’(x) er sýnt. Fallið er neikvætt í upphafi og sker x-ásinn í (−1, 0). Síðan heldur það áfram að vaxa að staðbundnu hágildi í (0, 1), en þaðan minnkar það og snertir x-ásinn í (1, 0). Þá vex það á ný.

Í eftirfarandi æfingum skal teikna graf sem uppfyllir gefin skilyrði fyrir skilgreiningarmengið x⁢ϵ⁡[−3,3]. Fallið þarf hvorki að vera samfellt né deildanlegt.

216.

f⁡(x)>0,f′⁡(x)>0 yfir x>1,−3<x<0,f′⁡(x)=0 yfir 0<x<1

217.

f′⁡(x)>0 þegar x>2,−3<x<−1,f′⁡(x)<0 þegar −1<x<2,f″⁡(x)<0 fyrir öll x

218.

f″⁡(x)<0 þegar −1<x<1,f″⁡(x)>0,−3<x<−1,1<x<3, staðbundið hágildi þegar x=0, og staðbundin lággildi þegar x=±2

219.

Fallið hefur staðbundið hágildi þegar x=2, og staðbundið lággildi þegar x=1, en grafið er hvorki kúpt né hvelft.

220.

Fallið hefur staðbundin hágildi þegar x=±1, er kúpt fyrir öll x, og er jafnframt jákvætt fyrir öll x.

Í eftirfarandi æfingum skal ákvarða

  1. bil þar sem f er vaxandi eða minnkandi og
  2. staðbundin lággildi og hágildi fallsins f.

Notið reiknivél til að teikna gröf fallanna ef þörf krefur, en sýnið útreikninga ykkar.

221.

f⁡(x)=sin⁡x+sin3⁢x á bilinu −π<x<π

222.

f⁡(x)=x2+cos⁡x

Í æfingunum hér á eftir skal ákvarða a) bilin þar sem f er kúpt eða hvelft og b) beygjuskilapunkta fallsins f.

223.

f⁡(x)=x3−4⁢x2+x+2

Í eftirfarandi æfingum skal ákvarða

  1. bil þar sem f er vaxandi eða minnkandi,
  2. staðbundin lággildi og hágildi fallsins f,
  3. bil þar sem f er kúpt og bil þar sem það er hvelft, og
  4. beygjuskilapunkta f.
224.

f⁡(x)=x2−6⁢x

225.

f⁡(x)=x3−6⁢x2

226.

f⁡(x)=x4−6⁢x3

227.

f⁡(x)=x11−6⁢x10

228.

f⁡(x)=x+x2−x3

229.

f⁡(x)=x2+x+1

230.

f⁡(x)=x3+x4

Í eftirfarandi æfingum skal ákvarða

  1. bil þar sem f er vaxandi eða minnkandi,
  2. staðbundin lággildi og hágildi fallsins f,
  3. bil þar sem f er kúpt og bil þar sem það er hvelft, og
  4. beygjuskilapunkta fallsins f. Teiknið ferilinn og berið svarið síðan saman við niðurstöður reiknivélar. Notið reiknivél ef ekki tekst að finna nákvæmt svar með greiningu.
231.

[T] f⁡(x)=sin⁡(π⁢x)−cos⁡(π⁢x) á bilinu x=[−1,1]

232.

[T] f⁡(x)=x+sin⁡(2⁢x) á bilinu x=[−π2,π2]

233.

[T] f⁡(x)=sin⁡x+tan⁡x á bilinu ]−π2,π2[

234.

[T] f⁡(x)=(x−2)2⁢(x−4)2

235.

[T] f⁡(x)=11−x,x≠1

236.

[T] f⁡(x)=sin⁡xx á bilinu x= [2⁢π,0[∪]0,2⁢π]

237.

f⁡(x)=sin⁡(x)⁢ex á bilinu x=[−π,π]

238.

f⁡(x)=(ln⁡x)⁢x,x>0

239.

f⁡(x)=14⁢x+1x,x>0

240.

f⁡(x)=exx,x≠0

Í æfingunum hér á eftir skal túlka setningarnar með hliðsjón af f,f′,ogf″.

241.

Stofninn vex hægar. Hér táknar f stofnstærðina.

242.

Reiðhjólið hefur meiri hröðun en bíllinn, en bíllinn fer hraðar. Hér er f= staðsetning reiðhjólsins að frádreginni staðsetningu bílsins.

243.

Flugvélin lendir mjúklega. Hér er f hæð flugvélarinnar.

244.

Fyrirtæki fylgist með launakostnaði yfir árið. Þann 1. júlí er kostnaðurinn í hámarki. Hér táknar f launakostnaðinn.

245.

Efnahagslífið tekur við sér. Hér er f mælikvarði á efnahagslífið, svo sem verg landsframleiðsla.

Í æfingunum hér á eftir skal skoða þriðja stigs margliðu f⁡(x), sem uppfyllir f′⁡(1)=0,f′⁡(3)=0. Skilyrðin eiga ekki við um æfingar 249 og 250. Ákvarðið hvort fullyrðingarnar séu sannar eða ósannar og rökstyðjið svarið.

246.

f⁡(x)=0 fyrir eitthvert 1≤x≤3

247.

f″⁡(x)=0 fyrir eitthvert 1≤x≤3

248.

Ekkert algilt hágildi er við x=3

249.

Ef f⁡(x) hefur þrjár rætur hefur fallið nákvæmlega 1 beygjuskilapunkt.

250.

Ef f⁡(x) hefur einn beygjuskilapunkt hefur fallið þrjár raunrætur.

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/calculus-volume-1/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

4.4 Meðalgildissetningin

NÆSTI KAFLI

4.6 Markgildi þegar x stefnir á óendanlegt og aðfellur