Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Ísskútur eru algengar á vötnum í Wisconsin og Minnesota um helgar að vetrarlagi. Þær líkjast seglbátum en eru búnar meiðum, eða „skautum“, og hannaðar til að renna eftir ísnum í stað þess að sigla á vatni. Ísskútur geta náð miklum hraða og það er einmitt hraðinn sem laðar marga áhugamenn að íssiglingum. Fremstu keppendur geta náð allt að fimmföldum vindhraða. Ef við vitum hversu hratt ísskúta fer getum við notað heildun til að reikna út hversu langt hún fer. Við snúum aftur að þessari spurningu síðar í kaflanum (sjá dæmi 5.27).
Að reikna vegalengd þegar hraði er þekktur er aðeins eitt af fjölmörgum notkunarsviðum heildunar. Heildi eru raunar notuð við margvísleg viðfangsefni í aflfræði og eðlisfræði. Við hefjum kaflann á fræðilegum grunni heildunar og notum síðan heildi til að reikna flatarmál. Því næst leiðum við út undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar, sem tengir saman deildun og heildun. Að lokum kynnumst við nokkrum grunnaðferðum við heildun og skoðum stuttlega fáein notkunardæmi.