5.2 Ákveðið heildi – Stærðfræðigreining, 1. bindi (IS) | Námsgögn
55 Heildun
5.2 Ákveðið heildi
5.2 Ákveðið heildi
Námsmarkmið
5.2.1 Setjið fram skilgreiningu á ákveðnu heildi.
5.2.2 Útskýrið hugtökin heildisstofn, heildismörk og heildunarbreyta.
5.2.3 Útskýrið hvenær fall er heildanlegt.
5.2.4 Lýsið tengslum ákveðins heildis og samanlagðs formerkts flatarmáls.
5.2.5 Notið rúmfræði og eiginleika ákveðinna heilda til að reikna þau.
5.2.6 Reiknið meðalgildi falls.
Í undanfarandi undirkafla skilgreindum við flatarmálið undir ferli með Riemann-summum:
Þessari skilgreiningu fylgdu þó takmarkanir. Við gerðum þá kröfu að væri samfellt og óneikvætt. Viðfangsefni úr raunveruleikanum uppfylla því miður ekki alltaf þessi skilyrði. Í þessum undirkafla sjáum við hvernig nota má hugmyndina um flatarmál undir ferli fyrir fleiri gerðir falla með hjálp ákveðins heildis.
Skilgreining og táknun
Ákveðið heildi er alhæfing á hugmyndinni um flatarmál undir ferli. Við fellum niður skilyrðin um að sé samfellt og óneikvætt og skilgreinum ákveðið heildi sem hér segir.
Heildistáknið í skilgreiningunni hér á undan ætti að vera kunnuglegt. Við höfum séð svipaða táknun í kaflanum um notkun afleiða, þar sem við notuðum tákn óákveðins heildis (án a og b fyrir ofan og neðan) til að tákna stofnfall. Þótt táknunin fyrir óákveðin heildi kunni að líkjast táknuninni fyrir ákveðið heildi er ekki um það sama að ræða. Ákveðið heildi er tala. Óákveðið heildi er fjölskylda falla. Síðar í þessum kafla könnum við hvernig þessi hugtök tengjast. Ávallt þarf þó að gæta vel að táknuninni svo ljóst sé hvort unnið er með ákveðið eða óákveðið heildi.
Heildatáknun á rætur að rekja til síðari hluta sautjándu aldar og er eitt af framlögum Gottfrieds Wilhelms Leibniz. Hann og Isaac Newton eru jafnan taldir hafa uppgötvað stærðfræðigreininguna hvor í sínu lagi. Heildunartáknið ∫ er ílangt S og vísar til sigma eða summu. Fyrir ofan og neðan heildunartáknið í ákveðnu heildi standa endamörk bilsins Tölurnar a og b eru x-gildi og kallast heildismörk; a er neðra markið og b efra markið. Í ensku er orðið limit notað á tvo ólíka vegu í þessu samhengi. Annars vegar er talað um markgildi summu þegar Hins vegar kallast endamörk svæðisins heildismörk.
Við köllum fallið heildisstofn og dx gefur til kynna að sé fall af breytunni x, sem er heildunarbreytan. Athugið að heildunarbreytan er gervibreyta, rétt eins og summuvísirinn í summu, og hefur engin áhrif á útreikning heildisins. Við gætum valið hvaða breytu sem er sem heildunarbreytu:
Áður kom fram að ef er samfellt á þá er markgildið til og ótvírætt ákvarðað. Af því leiðir eftirfarandi setning, sem við setjum fram án sönnunar.
Föll sem eru ekki samfelld á geta samt verið heildanleg, eftir eðli ósamfellanna. Til dæmis eru föll sem eru samfelld á lokuðu bili, að undanskildum endanlegum fjölda stökkósamfella, heildanleg.
Einnig er vert að taka fram að við höfum haldið okkur við reglulega skiptingu í Riemann-summunum. Sú takmörkun er ekki nauðsynleg. Nota má hvaða skiptingu sem er til að mynda Riemann-summu. Ef óregluleg skipting er notuð til að skilgreina ákveðið heildi nægir hins vegar ekki að taka markgildið þegar fjöldi hlutbila stefnir á óendanlegt. Þá verður þess í stað að taka markgildið þegar breidd stærsta hlutbilsins stefnir að núlli. Það krefst nokkru flóknari markgildatáknunar og þyngir útreikningana án þess að veita teljandi viðbótarinnsýn. Því höldum við okkur við reglulegar skiptingar í Riemann-summunum.
Dæmi 5.7
Útreikningur ákveðins heildis samkvæmt skilgreiningu
Notið skilgreiningu ákveðins heildis til að reikna Notið nálgun með hægri endapunktum til að mynda Riemann-summuna.
Lausn
Fyrst viljum við setja fram Riemann-summu. Af heildismörkunum fæst 𝑎=0 og 𝑏=2. Fyrir 𝑖=0,1,2,…,𝑛, látum 𝑃={𝑥𝑖} vera reglulega skiptingu á [0,2]. Þá fæst
Þar sem við notum nálgun með hægri endapunktum til að mynda Riemann-summur þurfum við, fyrir hvert i, að reikna fallgildið í hægri endapunkti bilsins Hægri endapunktur bilsins er og þar sem P er regluleg skipting,
Því er fallgildið í hægri endapunkti bilsins
Þá er Riemann-summan á forminu
Með því að nota summuformúluna fyrir fæst
Til að reikna ákveðna heildið þurfum við nú að taka markgildið þegar Við fáum
Útreikningur ákveðinna heilda
Það getur verið mjög tímafrekt að reikna ákveðin heildi á þennan hátt vegna þess hve útreikningarnir eru flóknir. Síðar í þessum kafla kynnumst við aðferðum til að reikna ákveðin heildi án þess að taka markgildi Riemann-summa. Enn sem komið er getum við þó stuðst við þá staðreynd að ákveðin heildi tákna flatarmálið undir grafi og reiknað þau með rúmfræðilegum formúlum. Þannig staðfestum við að ákveðin heildi tákna í raun flatarmál áður en við skoðum hvernig fara skuli að þegar graf falls liggur að hluta neðan x-ássins.
Dæmi 5.8
Notkun rúmfræðiformúla til að reikna ákveðin heildi
Notið formúluna fyrir flatarmál hrings til að reikna
Lausn
Fallið lýsir hálfhring með geisla 3. Til að finna
viljum við finna flatarmálið undir ferlinum á bilinu [3,6]. Formúlan fyrir flatarmál hrings er 𝐴=𝜋𝑟2. Flatarmál hálfhrings er helmingur flatarmáls hrings, eða 𝐴=(12)𝜋𝑟2. Skyggða svæðið á mynd 5.16 er helmingur hálfhringsins og því fjórðungur hringsins, svo 𝐴=(14)𝜋𝑟2. Því fæst
Mynd 5.16. Gildi heildis fallsins f ( x ) á bilinu [ 3 , 6 ] er flatarmál skyggða svæðisins.
Flatarmál og ákveðið heildi
Þegar við skilgreindum ákveðna heildið felldum við niður kröfuna um að væri óneikvætt. En hvernig túlkum við „flatarmálið undir ferlinum“ þegar er neikvætt?
Samanlagt formerkt flatarmál
Snúum okkur aftur að Riemann-summunni. Skoðum til dæmis fallið (sýnt á mynd 5.17) á bilinu Notum og veljum sem vinstri endapunkt hvers hlutbils. Teiknum rétthyrning yfir hvert hlutbil með hæðina og breiddina Δx. Þegar er jákvætt táknar margfeldið flatarmál rétthyrningsins, eins og áður. Þegar er neikvætt táknar margfeldið hins vegar neikvætt gildi flatarmáls rétthyrningsins. Riemann-summan verður þá
Mynd 5.17. Fyrir fall sem er neikvætt að hluta er Riemann-summan flatarmál rétthyrninganna fyrir ofan x-ásinn að frádregnu flatarmáli rétthyrninganna fyrir neðan x-ásinn.
Þegar nálgast Riemann-summan flatarmálið milli ferilsins og x-ássins ofan við ásinn, að frádregnu flatarmálinu milli ferilsins og x-ássins neðan við ásinn, eins og sýnt er á mynd 5.18. Þá fæst:
Stærðin kallast samanlagt formerkt flatarmál.
Mynd 5.18. Í markgildinu er ákveðið heildi jafnt flatarmáli A1 að frádregnu flatarmáli A2, það er samanlögðu formerktu flatarmáli.
Athugið að samanlagt formerkt flatarmál getur verið jákvætt, neikvætt eða núll. Ef flatarmálið ofan x-ássins er stærra er samanlagða formerkta flatarmálið jákvætt. Ef flatarmálið neðan x-ássins er stærra er það neikvætt. Ef flatarmálin ofan og neðan x-ássins eru jafnstór er samanlagða formerkta flatarmálið núll.
Dæmi 5.9
Útreikningur á samanlögðu formerktu flatarmáli
Finnið samanlagt formerkt flatarmál milli grafs fallsins 𝑓(𝑥)=2𝑥 og x-ássins á bilinu [−3,3].
Lausn
Graf fallsins er bein lína sem myndar tvo þríhyrninga: annan frá 𝑥=−3 til 𝑥=0 og hinn frá 𝑥=0 til 𝑥=3(mynd 5.19). Samkvæmt rúmfræðilegu formúlunni fyrir flatarmál þríhyrnings, 𝐴=12𝑏ℎ, er flatarmál þríhyrningsins A1, sem er ofan við ásinn, jafnt
þar sem 3 er grunnlengdin og er hæðin. Flatarmál þríhyrningsins A2, neðan ássins, er
þar sem 3 er grunnlengdin og 6 hæðin. Samanlagða formerkta flatarmálið er því
Mynd 5.19. Flatarmálið fyrir ofan ferilinn og neðan við x-ásinn er jafnt flatarmálinu neðan við ferilinn og ofan við x-ásinn.
Greining
Ef A1 er flatarmálið ofan x-ássins og A2 flatarmálið neðan hans er samanlagða formerkta flatarmálið 𝐴1−𝐴2. Þar sem þríhyrningarnir hafa sama flatarmál er samanlagða formerkta flatarmálið núll.
Heildarflatarmál
Ein hagnýting ákveðins heildis er að finna færslu út frá hraðafalli. Ef táknar hraða hlutar sem fall af tíma segir flatarmálið undir ferlinum til um hve langt hluturinn er frá upphafsstöðu sinni. Þetta er mikilvæg hagnýting ákveðins heildis sem við skoðum nánar síðar í kaflanum. Fyrst skoðum við grunnatriðin með því að athuga hreyfingu með föstum hraða.
Þegar hraðinn er fastur er flatarmálið undir ferlinum einfaldlega margfeldi hraða og tíma. Þetta er kunnugleg hugmynd. Ef bíll ekur eftir beinni línu frá upphafsstað sínum á 70 mílum á klukkustund í 2 klukkustundir er hann 140 mílur frá upphafsstaðnum (mynd 5.20). Með heildatáknun fæst
Mynd 5.20. Flatarmálið undir ferlinum segir okkur hversu langt bíllinn er frá upphafspunkti sínum á tilteknum tíma.
Þegar fjallað er um færslu gerir samanlagt formerkt flatarmál okkur kleift að taka tillit til stefnu. Ef bíll ekur beint í norður á 60 mílum á klukkustund í 2 klukkustundir er hann 120 mílur norðan við upphafsstað sinn. Snúi bíllinn síðan við og aki í suður á 40 mílum á klukkustund í 3 klukkustundir kemur hann aftur á upphafsstaðinn (mynd 5.21). Með heildatáknun fæst aftur
Í þessu tilviki er færslan núll.
Mynd 5.21. Flatarmálið ofan ássins og flatarmálið neðan hans eru jafnstór, þannig að samanlagða formerkta flatarmálið er núll.
Gerum ráð fyrir að við viljum vita hversu langt bíllinn ekur samtals, óháð stefnu. Í þessu tilviki viljum við vita flatarmálið milli ferilsins og x-ássins, óháð því hvort það liggur ofan eða neðan við ásinn. Þetta kallast heildarflatarmál.
Myndrænt er auðveldast að reikna heildarflatarmálið með því að leggja saman flatarmálin ofan og neðan ássins. Þau síðarnefndu eru þá ekki dregin frá eins og við útreikning á samanlögðu formerktu flatarmáli. Til að gera þetta stærðfræðilega notum við tölugildisfallið. Heildarvegalengd bílsins er því
Nú drögum við þessar hugmyndir formlega saman í eftirfarandi skilgreiningum.
Dæmi 5.10
Heildarflatarmál fundið
Finnið heildarflatarmálið milli og x-ássins á bilinu
Lausn
Finnið skurðpunktinn við x-ásinn, (2,0) , með því að setja 𝑦=0, og leysa með tilliti til x. Til að finna heildarflatarmálið leggjum við saman flatarmálið neðan x-ássins á hlutbilinu [0,2] og flatarmálið ofan x-ássins á hlutbilinu [2,6](mynd 5.22).
Mynd 5.22. Heildarflatarmálið milli línunnar og x-ássins á bilinu [ 0 , 6 ] er A2 að viðbættu A1.
Við fáum
Þá fáum við með því að nota formúluna fyrir flatarmál þríhyrnings
Heildarflatarmálið er því
Eiginleikar ákveðins heildis
Eiginleikar óákveðinna heilda gilda einnig um ákveðin heildi. Ákveðin heildi hafa auk þess eiginleika sem tengjast heildismörkunum. Þessir eiginleikar, ásamt heildunarreglunum sem við skoðum síðar í þessum kafla, auðvelda okkur að umrita stæður til að reikna ákveðin heildi.
Dæmi 5.11
Notkun eiginleika ákveðins heildis
Notið eiginleika ákveðins heildis til að rita ákveðið heildi fallsins 𝑓(𝑥)=−3𝑥3+2𝑥+2 á bilinu [−2,1] sem summu þriggja ákveðinna heilda.
Lausn
Með heildatáknun fæst Við beitum eiginleikum 3. og 5. og fáum
Dæmi 5.12
Notkun eiginleika ákveðins heildis
Ef vitað er að ∫80𝑓(𝑥)𝑑𝑥=10 og ∫50𝑓(𝑥)𝑑𝑥=5, finnið gildi ∫85𝑓(𝑥)𝑑𝑥.
Lausn
Samkvæmt eiginleika 6.
Því fæst
Samanburðareiginleikar heilda
Mynd getur stundum sagt okkur meira um fall en niðurstöður útreikninga. Samanburður falla, bæði út frá gröfum þeirra og algebrulegum stæðum, getur veitt nýja innsýn í heildun. Í fljótu bragði mætti ætla að ef fallið liggur ofan við fallið þá sé flatarmálið milli og x-ássins stærra en flatarmálið milli og x-ássins. Hvort það er rétt fer eftir bilinu sem samanburðurinn nær yfir. Eiginleikar ákveðinna heilda gilda hvort sem eða Eftirfarandi eiginleikar eiga hins vegar aðeins við þegar og eru notaðir til að bera saman stærð heilda.
Dæmi 5.13
Samanburður tveggja falla á tilteknu bili
Berið saman og á bilinu
Lausn
Nauðsynlegt er að teikna gröf fallanna til að skilja afstöðu þeirra á bilinu Þegar þau eru fyrst teiknuð með grafískri reiknivél virðist liggja ofan við alls staðar. Þegar aðeins er litið á bilið virðast gröfin þó falla saman. Þysja þarf inn á grafið til að sjá að þegar litið er á bilið liggur ofan við Föllin skerast þegar og (mynd 5.23).
Mynd 5.23. (a) Fallið f ( x ) virðist liggja ofan við fallið g ( x ) nema á bilinu [ 0 , 1 ] . (b) Þetta sést skýrar þegar sama graf er stækkað.
Af grafinu sést að þegar x er á bilinu Þegar heildin eru borin saman á bilinu sést einnig að (mynd 5.24). Mjóa, rauðskyggða svæðið sýnir muninn á þessum tveimur heildum á bilinu
Mynd 5.24. (a) Grafið sýnir að á bilinu [ 0 , 1 ] , g ( x ) ≥ f ( x ) , og jafnaðarmerkið gildir aðeins í endapunktum bilsins. (b) Þetta sést skýrar þegar sama graf er stækkað.
Meðalgildi falls
Oft þurfum við að finna meðaltal talnasafns, til dæmis meðaleinkunn úr prófum. Gerum ráð fyrir að þú hafir fengið eftirfarandi einkunnir í algebruprófum: 89, 90, 56, 78, 100 og 69. Annareinkunnin er meðaltal prófseinkunnanna og þú vilt vita hvaða einkunn þú getur búist við. Meðaltalið fæst með því að leggja allar einkunnirnar saman og deila með fjölda þeirra. Hér eru prófseinkunnirnar sex og því fæst
Meðaleinkunn þín á prófunum er því um það bil 80,33, sem jafngildir B− í flestum skólum.
Gerum hins vegar ráð fyrir að fallið gefi hraða hlutar á hverjum tíma t og að við viljum finna meðalhraða hlutarins. Fallið tekur óendanlega mörg gildi og því getum við ekki beitt aðferðinni hér á undan. Sem betur fer má nota ákveðið heildi til að finna meðalgildi falls af þessu tagi.
Látum vera samfellt á bilinu og látum skiptast í n hlutbil af breiddinni Veljum fulltrúa í hverju hlutbili og reiknum fyrir Með öðrum orðum lítum við á hvert sem úrtak úr fallinu á viðkomandi hlutbili. Þá má nálga meðalgildi fallsins með
sem er í meginatriðum sama stæða og notuð er til að reikna meðaltal stakra gilda.
En við vitum að svo að og við fáum
Þegar unnið er áfram með algebruna sést að teljarinn er summan og að deilt er með broti. Þegar deilt er með broti er því snúið við og margfaldað. Eftirfarandi stæða gefur því nálgun á meðalgildi fallsins
Þetta er Riemann-summa. Til að fá nákvæmt meðalgildi tökum við markgildið þegar n stefnir á óendanlegt. Meðalgildi falls er því gefið með
Dæmi 5.14
Ákvörðun meðalgildis línulegs falls
Finnið meðalgildi á bilinu
Lausn
Teiknum fyrst graf fallsins á tilgreinda bilinu, eins og sýnt er á mynd 5.25.
Mynd 5.25. Grafið sýnir flatarmálið undir grafi fallsins f ( x ) = x + 1 á bilinu [ 0 , 5 ] .
Svæðið er trapisa sem liggur á hliðinni og því getum við notað flatarmálsformúluna fyrir trapisu 𝐴=12ℎ(𝑎+𝑏), þar sem h táknar hæðina og a og b tákna samsíða hliðarnar tvær. Þá fæst:
Því er meðalgildi fallsins
Æfingar í undirkafla 5.2
Í eftirfarandi æfingum skal setja markgildin fram sem heildi.
60.
yfir
61.
yfir
62.
yfir
63.
yfir
Í eftirfarandi æfingum eru Ln eða Rn gefin eins og tilgreint er. Setjið markgildi þeirra þegar fram sem ákveðin heildi og tilgreinið rétt bil.
64.
𝐿𝑛=1𝑛𝑛∑𝑖=1𝑖−1𝑛
65.
𝑅𝑛=1𝑛𝑛∑𝑖=1𝑖𝑛
66.
𝐿𝑛=2𝑛𝑛∑𝑖=1(1+2𝑖−1𝑛)
67.
𝑅𝑛=3𝑛𝑛∑𝑖=1(3+3𝑖𝑛)
68.
𝐿𝑛=2𝜋𝑛𝑛∑𝑖=12𝜋𝑖−1𝑛cos(2𝜋𝑖−1𝑛)
69.
𝑅𝑛=1𝑛𝑛∑𝑖=1(1+𝑖𝑛)log((1+𝑖𝑛)2)
Í eftirfarandi æfingum skal reikna heildi fallanna sem sýnd eru á gröfunum. Notið flatarmálsformúlur þríhyrninga og hringa og dragið flatarmál svæðanna neðan x-ássins frá.
70.
71.
72.
73.
74.
75.
Í eftirfarandi æfingum skal reikna heildið með flatarmálsformúlum.
76.
∫30(3−𝑥)𝑑𝑥
77.
∫32(3−𝑥)𝑑𝑥
78.
∫3−3(3−|𝑥|)𝑑𝑥
79.
∫60(3−|𝑥−3|)𝑑𝑥
80.
∫2−2√4−𝑥2𝑑𝑥
81.
∫51√4−(𝑥−3)2𝑑𝑥
82.
∫120√36−(𝑥−6)2𝑑𝑥
83.
∫3−2(3−|𝑥|)𝑑𝑥
Í eftirfarandi æfingum skal nota meðaltöl gilda í vinstri (L) og hægri (R) endapunktum til að reikna heildi kaflaskiptu línulegu fallanna. Gröf þeirra fara í gegnum tilgreinda punkta á gefnum bilum.
84.
{(0,0),(2,1),(4,3),(5,0),(6,0),(8,3)} á bilinu [0,8]
85.
{(0,2),(1,0),(3,5),(5,5),(6,2),(8,0)} á bilinu [0,8]
86.
{(−4,−4),(−2,0),(0,−2),(3,3),(4,3)} á bilinu [−4,4]
87.
{(−4,0),(−2,2),(0,0),(1,2),(3,2),(4,0)} á bilinu [−4,4]
Gerum ráð fyrir að og og og Reiknið heildin í eftirfarandi æfingum.
88.
∫40(𝑓(𝑥)+𝑔(𝑥))𝑑𝑥
89.
∫42(𝑓(𝑥)+𝑔(𝑥))𝑑𝑥
90.
∫20(𝑓(𝑥)−𝑔(𝑥))𝑑𝑥
91.
∫42(𝑓(𝑥)−𝑔(𝑥))𝑑𝑥
92.
∫20(3𝑓(𝑥)−4𝑔(𝑥))𝑑𝑥
93.
∫42(4𝑓(𝑥)−3𝑔(𝑥))𝑑𝑥
Í eftirfarandi æfingum skal nota samsemdina til að reikna heildin.
94.
∫𝜋−𝜋sin𝑡1+𝑡2𝑑𝑡(𝐻𝑖𝑛𝑡:sin(−𝑡)=−sin(𝑡))
95.
∫√𝜋−√𝜋𝑡1+cos𝑡𝑑𝑡
Í eftirfarandi æfingum skal finna samanlagt formerkt flatarmál milli og x-ássins.
96.
(Vísbending: Skoðið grafið af f.)
97.
(Vísbending: Skoðið graf f.)
Í eftirfarandi æfingum eru þessi gildi gefin: auk og síðan skal reikna heildin.
Í eftirfarandi æfingum skal finna meðalgildi f, fave, á bilinu frá a til b og finna punkt c þannig að
110.
𝑓(𝑥)=𝑥2,𝑎=−1,𝑏=1
111.
𝑓(𝑥)=𝑥5,𝑎=−1,𝑏=1
112.
𝑓(𝑥)=√4−𝑥2,𝑎=0,𝑏=2
113.
𝑓(𝑥)=(3−|𝑥|),𝑎=−3,𝑏=3
114.
𝑓(𝑥)=sin𝑥,𝑎=0,𝑏=2𝜋
115.
𝑓(𝑥)=cos𝑥,𝑎=0,𝑏=2𝜋
Í eftirfarandi æfingum skal nálga meðalgildið með Riemann-summunum L100 og R100. Hvernig ber niðurstöðunni saman við gefna nákvæma svarið?
116.
[T] 𝑦=ln(𝑥) á bilinu [1,4]; nákvæma gildið er ln(256)3−3.
117.
[T] 𝑦=𝑒𝑥/2 á bilinu [0,1]; nákvæma gildið er 2(√𝑒−1).
118.
[T] 𝑦=tan𝑥 á bilinu [0,𝜋4]; nákvæma lausnin er 2ln(2)𝜋.
119.
[T] á bilinu nákvæma lausnin er
Í eftirfarandi æfingum skal reikna meðalgildið með vinstri Riemann-summunum LN fyrir Hversu nákvæmar eru niðurstöðurnar miðað við hið gefna nákvæma gildi?
120.
[T] 𝑦=𝑥2−4 á bilinu [0,2]; nákvæma gildið er −83.
121.
[T] 𝑦=𝑥𝑒𝑥2 á bilinu [0,2]; nákvæma gildið er 14(𝑒4−1).
122.
[T] á bilinu nákvæma lausnin er
123.
[T] 𝑦=𝑥sin(𝑥2) á bilinu [−𝜋,0]; nákvæma gildið er cos(𝜋2)−12𝜋.
124.
Gerum ráð fyrir að og Sýnið að og
125.
Gerum ráð fyrir að og Sýnið að
126.
Sýnið að meðalgildi sin2𝑡 á bilinu [0,2𝜋] sé 1/2. Ákvarðið án frekari útreikninga hvort meðalgildi sin2𝑡 á bilinu [0,𝜋] sé einnig 1/2.
127.
Sýnið að meðalgildi cos2𝑡 á bilinu [0,2𝜋] sé 1/2. Ákvarðið án frekari útreikninga hvort meðalgildi cos2(𝑡) á bilinu [0,𝜋] sé einnig 1/2.
128.
Útskýrið hvers vegna graf annars stigs falls 𝑝(𝑥) (fleygbogi) og graf línulegs falls ℓ(𝑥) geta skerst í að hámarki tveimur punktum. Gerum ráð fyrir að 𝑝(𝑎)=ℓ(𝑎) og 𝑝(𝑏)=ℓ(𝑏), og að ∫𝑏𝑎𝑝(𝑡)𝑑𝑡>∫𝑏𝑎ℓ(𝑡)𝑑𝑡. Útskýrið hvers vegna ∫𝑑𝑐𝑝(𝑡)>∫𝑑𝑐ℓ(𝑡)𝑑𝑡 þegar 𝑎≤𝑐<𝑑≤𝑏.
129.
Gerum ráð fyrir að fleygboginn 𝑝(𝑥)=𝑎𝑥2+𝑏𝑥+𝑐 opnist niður (𝑎<0) og hafi topppunkt með y-hnitið 𝑦=−𝑏2𝑎>0. Fyrir hvaða bil [𝐴,𝐵] er ∫𝐵𝐴(𝑎𝑥2+𝑏𝑥+𝑐)𝑑𝑥 eins stórt og mögulegt er?
130.
Gerum ráð fyrir að megi skipta í hlutbil þannig að annaðhvort á eða á Setjum
Útskýrið hvers vegna
Útskýrið síðan hvers vegna
131.
Gerum ráð fyrir að f og g séu samfelld föll þannig að fyrir hvert hlutbil í Útskýrið hvers vegna fyrir öll gildi x.
132.
Gerum ráð fyrir að meðalgildi f á sé 1 og að meðalgildi f á sé 1, þar sem Sýnið að meðalgildi f á sé einnig 1.
133.
Gerum ráð fyrir að bilinu [𝑎,𝑏] sé skipt með skiptingarpunktunum 𝑎=𝑎0<𝑎1<⋯<𝑎𝑁=𝑏 þannig að meðalgildi f á hverju hlutbili [𝑎𝑖−1,𝑎𝑖]=1 sé 1 fyrir hvert 𝑖=1,…,𝑁. Útskýrið hvers vegna meðalgildi f á [𝑎,𝑏] er þá einnig 1.
134.
Gerum ráð fyrir að fyrir sérhvert i sem uppfyllir 1≤𝑖≤𝑁 gildi ∫𝑖𝑖−1𝑓(𝑡)𝑑𝑡=𝑖. Sýnið að ∫𝑁0𝑓(𝑡)𝑑𝑡=𝑁(𝑁+1)2.
135.
Gerum ráð fyrir að fyrir sérhvert i sem uppfyllir 1≤𝑖≤𝑁 gildi ∫𝑖𝑖−1𝑓(𝑡)𝑑𝑡=𝑖2. Sýnið að ∫𝑁0𝑓(𝑡)𝑑𝑡=𝑁(𝑁+1)(2𝑁+1)6.
136.
[T] Reiknið Riemann-summurnar með vinstri og hægri endapunktum L10 og R10 og meðaltal þeirra 𝐿10+𝑅102 fyrir 𝑓(𝑡)=𝑡2 á [0,1]. Að gefnu að ∫10𝑡2𝑑𝑡=0.–33, upp á hve marga aukastafi er 𝐿10+𝑅102 nákvæmt?
137.
[T] Reiknið vinstri og hægri Riemann-summurnar, L10 og R10, og meðaltal þeirra 𝐿10+𝑅102 fyrir 𝑓(𝑡)=(4−𝑡2) á bilinu [1,2]. Í ljósi þess að ∫21(4−𝑡2)𝑑𝑡=1.–66, upp á hve marga aukastafi er 𝐿10+𝑅102 nákvæmt?
138.
Ef ∫51√1+𝑡4𝑑𝑡=41.7133..., hvert er gildi ∫51√1+𝑢4𝑑𝑢?
139.
Áætlið ∫10𝑡𝑑𝑡 með vinstri- og hægri endapunktssummu, hvorri með einum rétthyrningi. Hvernig ber meðaltal summanna saman við raungildið ∫10𝑡𝑑𝑡?
140.
Áætlið ∫10𝑡𝑑𝑡 með flatarmáli eins rétthyrnings sem hefur hæð jafna gildi t í miðpunktinum 𝑡=12. Hvernig ber þessari miðpunktsnálgun saman við raungildið ∫10𝑡𝑑𝑡?
141.
Á grafinu hér á eftir er fallið sin(2𝜋𝑥) sýnt:
Útskýrið hvers vegna
Útskýrið hvers vegna almennt gildir að ∫𝑎+1𝑎sin(2𝜋𝑡)𝑑𝑡=0 fyrir hvaða gildi a sem er.
142.
Ef f er 1-lotubundið oddstætt og heildanlegt yfir gildir þá alltaf að
143.
Ef f er lotubundið með lotuna 1 og er þá endilega satt að fyrir öll A?