1111 Kí-kvaðrat dreifingin
11.5 Samanburður á kí-kvaðrat prófum
Þið hafið séð χ²-prófstærðina notaða við þrjár ólíkar aðstæður. Eftirfarandi samantekt hjálpar ykkur að ákveða hvaða χ²-próf á við hverju sinni.
- Mátgæðapróf: Notið mátgæðapróf til að ákveða hvort þýði með óþekkta dreifingu passi við þekkta dreifingu. Hér er ein eigindleg könnunarspurning eða ein útkoma úr tilraun úr einu þýði. Mátgæðapróf er yfirleitt notað til að kanna hvort þýðið sé jafndreift, hvort þýðið sé normaldreift eða hvort þýðið sé eins og annað þýði með þekkta dreifingu. Tilgáturnar eru H₀: Þýðið passar við gefnu dreifinguna. Hₐ: Þýðið passar ekki við gefnu dreifinguna.
- Próf á óhæði: Notið próf á óhæði til að ákveða hvort tvær breytur eða tveir þættir séu óháðir eða háðir. Hér eru tvær eigindlegar könnunarspurningar eða tilraunir og búin er til krosstafla. Markmiðið er að kanna hvort breyturnar tvær séu ótengdar eða óháðar, eða tengdar eða háðar. Tilgáturnar eru H₀: Breyturnar tvær, eða þættirnir tveir, eru óháðar. Hₐ: Breyturnar tvær, eða þættirnir tveir, eru háðar.
- Einsleitnipróf: Notið einsleitnipróf til að ákveða hvort tvö þýði með óþekktar dreifingar hafi sömu dreifingu. Hér er ein eigindleg könnunarspurning eða tilraun lögð fyrir tvö ólík þýði. Tilgáturnar eru H₀: Þýðin tvö fylgja sömu dreifingu. Hₐ: Þýðin tvö hafa ólíkar dreifingar.