5.7 Föll – Stærðfræði í daglegu lífi (IS) | Námsgögn
55 Algebra
5.7 Föll
5.7 Föll
Mynd 5.55. Lítill hópur grunnskólanema lærir hjá kennara sínum. (mynd: aðlögun á „Our school“ eftir Woodleywonderworks/Flickr, CC BY 2.0)
Námsmarkmið
Að loknum þessum hluta átt þú að geta:
notað falltáknun.
ákvarðað út frá ólíkum framsetningum hvort vensl séu fall.
beitt lóðrétta línuprófinu.
fundið skilgreiningarmengi og myndmengi falls.
Í þessum hluta lærum við um vensl og föll. Í daglegu lífi tengjast ýmsar upplýsingar eða stærðir nafni okkar, svo sem kennitala, nemendanúmer, netfang, símanúmer og afmælisdagur. Vensl eru milli nafnsins og hverrar þessara upplýsinga. Á bekkjarlista kennara eru nöfn nemenda gjarnan í einum dálki og nemendanúmer þeirra í næsta dálki. Ef litið er á samsvörunina sem mengi raðaðra para, þar sem fyrri liðurinn er nafn nemanda og seinni liðurinn nemendanúmer hans, köllum við hana vensl. Í dæmunum hér er gert ráð fyrir að hvert nafn vísi til eins tiltekins einstaklings.
(Nafn nemanda, nemendanúmer)
Mengi allra nemendanafna í bekknum nefnist skilgreiningarmengi venslanna og mengi nemendanúmeranna sem tengjast þeim nefnist myndmengi. Almennt eru vensl sérhvert mengi raðaðra para (). Öll -gildi paranna mynda skilgreiningarmengið og öll -gildin mynda myndmengið.
Margar aðstæður líkjast tengslum nafns og nemendanúmers, þar sem ein breyta tengist annarri. Mengi raðaðra para sem skráir samsvörunina nefnist vensl. Sérstök tegund vensla, sem er mjög algeng í stærðfræði, nefnist fall . Fall er vensl sem úthluta hverju staki í skilgreiningarmenginu nákvæmlega einu staki í myndmenginu. Í röðuðu pörunum tengist hvert -gildi aðeins einu -gildi.
Skoðum venslin milli vina þinna og afmælisdaga þeirra á mynd 5.56 . Sérhver vinur á einn afmælisdag, en enginn á tvo. Tveir einstaklingar mega eiga sama afmælisdag. Danny og Stephen eiga báðir afmæli 24. júlí og June og Liz báðar 2. ágúst. Þar sem hver einstaklingur á nákvæmlega einn afmælisdag eru venslin fall.
Mynd 5.56. Vörpun afmælisdaga
Falltáknun notuð
Þægilegt er að gefa falli heiti. Föll eru oftast táknuð með , , , , eða . Fyrir hvert -gildi úr skilgreiningarmenginu fæst samsvarandi -gildi í myndmenginu. Fyrir fallið ritum við fallgildið sem (). Rithátturinn () nefnist falltáknun og er lesinn „f af “ eða „gildi f í “. Svigarnir tákna ekki margföldun hér.
Við köllum óháðu breytuna því að hún getur tekið hvaða gildi sem er í skilgreiningarmenginu. nefnist háða breytan því gildi hennar ræðst af . Falltáknun kann að virðast framandi í fyrstu, líkt og breytan gerði þegar þú kynntist henni. Með æfingu verður hún kunnuglegri og auðveldari í notkun.
Rifjum upp jöfnuna . Til að finna gildi þegar , setjum við inn í jöfnuna og einföldum.
Látum .
Gildi fallsins þegar er 3. Sama er gert með falltáknun: Jöfnuna má rita . Til að finna gildið þegar , ritum við:
Látum .
Gildi fallsins þegar er 3. Ferlið við að finna gildi fyrir gefið -gildi nefnist að reikna gildi fallsins .
Dæmi 5.61
Gildi falls reiknað
Fyrir fallið skaltu reikna tilgreind fallgildi.
Lausn
Til að reikna skaltu setja 3 í stað . Einfaldaðu.
Til að reikna skaltu setja í stað . Einfaldaðu.
Til að reikna skaltu setja í stað . Einfaldaðu.
Dæmi 5.62
Gildi falls reiknað í hagnýtu verkefni
Í pósthólfi Sylviu eru 75 ólesnir tölvupóstar og þeim fjölgar um tíu á dag. Fallið lýsir tengslum fjölda tölvupósta og tímans , í dögum. Finndu (5) og útskýrðu merkingu niðurstöðunnar.
Lausn
Finndu (5) og útskýrðu merkingu niðurstöðunnar.
Settu inn . Einfaldaðu.
Ef 5 er fjöldi daga er fjöldi ólesinna tölvupósta eftir fimm daga. Þá eru 125 ólesnir tölvupóstar í pósthólfi Sylviu.
Ákvarðað út frá ólíkum framsetningum hvort vensl séu fall
Ákvarða má hvort vensl séu fall með því að greina inntaks- og úttaksgildin. Ef hvert inntak gefur aðeins eitt úttak eru venslin fall. Ef eitthvert inntak gefur tvö eða fleiri úttök eru venslin ekki fall.
Við skoðum þrjár framsetningar vensla og ákveðum hvort þau séu föll: mengi raðaðra para, örvarit og jöfnur.
Dæmi 5.63
Ákvarðað út frá mengi raðaðra para hvort vensl séu fall
Notaðu mengi raðaðra para til að ákvarða hvort venslin séu fall.
Lausn
Hvert -gildi tengist aðeins einu -gildi. Venslin eru fall.
-gildið 9 tengist tveimur -gildum, 3 og . Venslin eru ekki fall.
Stundum eru vensl sýnd með örvariti. Örvar sýna hvernig stök skilgreiningarmengisins tengjast stökum myndmengisins. Skoðaðu venslin milli vina þinna og afmælisdaga þeirra á mynd 5.56. Skilgreiningarmengið er mengi nafnanna og myndmengið mengi afmælisdaga þeirra. Venslin eru fall því að hvert nafn tengist nákvæmlega einum afmælisdegi.
Dæmi 5.64
Ákvarðað út frá örvariti hvort vensl séu fall
Notaðu örvaritið á mynd 5.57 til að ákvarða hvort venslin séu fall.
Mynd 5.57. Örvarit tengir nöfn við símanúmer.
Lausn
Bæði Lydia og Marty hafa tvö símanúmer. Að minnsta kosti eitt -gildi tengist því fleiri en einu -gildi. Venslin eru ekki fall.
Í algebru eru föll yfirleitt sett fram með jöfnu. Auðveldast er að sjá hvort jafna skilgreinir fall þegar hún hefur verið leyst fyrir . Ef hvert -gildi gefur aðeins eitt -gildi skilgreinir jafnan fall.
Dæmi 5.65
Ákvarðað út frá jöfnu hvort vensl séu fall
Ákvarðaðu hvort hver jafna skilgreini fall. Gerðu ráð fyrir að sé óháða breytan.
Lausn
Til að finna fallgildið fyrir tiltekið -gildi margföldum við það með og leggjum 7 við. Þá fæst -gildið. Skoðum til dæmis . Þegar er . Sama aðferð gildir fyrir sérhvert -gildi. Hvert -gildi samsvarar aðeins einu -gildi og jafnan skilgreinir því fall.
Fyrir hvert -gildi setjum við það í annað veldi og leggjum 1 við til að fá -gildið. Skoðum til dæmis . Þegar er . Sama aðferð gildir fyrir sérhvert -gildi. Hvert -gildi samsvarar aðeins einu -gildi og jafnan skilgreinir því fall.
Byrjum á jöfnunni og einangrum -liðinn: Setjum inn : Þá fást tvö gildi fyrir : Þegar eru því bæði og möguleg. Þetta eina gildi á nægir sem mótdæmi: sama -gildið tengist tveimur -gildum og jafnan skilgreinir því ekki fall.
Lóðrétta línuprófinu beitt
Við höfum séð hvernig ákvarða má hvort vensl séu fall þegar þau eru sett fram sem mengi raðaðra para, örvarit eða jafna. Nú skoðum við hvernig greina má af grafi hvort það sýni fall.
Raðað par er lausn línulegrar jöfnu ef jafnan verður sönn þegar - og -gildi parsins eru sett inn í hana. Graf línulegrar jöfnu er bein lína þar sem sérhver punktur er lausn jöfnunnar og sérhver lausn hennar er punktur á línunni. Á mynd 5.58 sést á grafi jöfnunnar að fyrir hvert -gildi er aðeins eitt -gildi, eins og taflan sýnir.
Mynd 5.58. Graf jöfnunnar y = 2 x − 3 .
Vensl eru fall ef hvert stak skilgreiningarmengisins tengist nákvæmlega einu gildi í myndmenginu. Venslin sem jafnan skilgreinir eru fall. Á grafinu sker hver lóðrétt strikalína heilu línuna aðeins einu sinni. Það er eðlilegt því að fyrir hvert -gildi falls er aðeins eitt -gildi. Ef lóðrétt lína skæri grafið tvisvar tengdist sama -gildið tveimur -gildum og grafið sýndi ekki fall. Af þessu fæst myndræn aðferð, lóðrétta línuprófið: Punktamengi í rétthyrndu hnitakerfi er graf falls ef sérhver lóðrétt lína sker grafið í mesta lagi einum punkti. Ef einhver lóðrétt lína sker grafið oftar en einu sinni sýnir það ekki fall.
Dæmi 5.66
Lóðrétta línuprófinu beitt
Beittu lóðrétta línuprófinu og ákvarðaðu hvort grafið á mynd 5.59 sé graf falls.
Mynd 5.59. Lækkandi bein lína í hnitakerfi.
Lausn
Á mynd 5.60 eru aðeins þrjár lóðréttar strikalínur teiknaðar. Þó má sjá að sérhver lóðrétt lína myndi skera heilu línuna í nákvæmlega einum punkti. Grafið er því graf falls.
Mynd 5.60. Þrjár lóðréttar strikalínur lagðar yfir beina línu.
Dæmi 5.67
Lóðrétta línuprófinu beitt á fleygboga
Ákvarðaðu hvort grafið á mynd 5.61 sé graf falls.
Mynd 5.61. Fleygbogi sem opnast til hægri.
Lausn
Grafið á mynd 5.62 er ekki graf falls því að lóðrétta strikalínan við x = 2 sker ferilinn í tveimur punktum. Ein slík lína nægir til að grafið falli á lóðrétta línuprófinu. Athugið leiðréttingu á frumtexta: Strikalínan við x = −2 sker ferilinn ekki og línan við x = −1 sker hann í einum punkti.
Mynd 5.62. Þrjár lóðréttar strikalínur lagðar yfir fleygboga.
Skilgreiningarmengi og myndmengi falls fundin
Í rithættinum stendur síðasta táknið fyrir óháðu breytuna, sem getur tekið hvaða gildi sem er í skilgreiningarmenginu. Breytan er háða breytan því að gildi hennar ræðst af . Fyrir fallið mynda gildi skilgreiningarmengið og samsvarandi gildi myndmengið.
Dæmi 5.68
Skilgreiningarmengi og myndmengi raðaðra para fundin
Skoðum venslin :
Finndu skilgreiningarmengi venslanna.
Finndu myndmengi venslanna.
Lausn
Skilgreiningarmengið er mengi allra -gilda venslanna:
Myndmengið er mengi allra -gilda venslanna:
Dæmi 5.69
Skilgreiningarmengi og myndmengi lesin af grafi
Notaðu mynd 5.63 til að leysa eftirfarandi verkefni.
Teldu upp röðuðu pör venslanna.
Finndu skilgreiningarmengi venslanna.
Finndu myndmengi venslanna.
Mynd 5.63. Sex stakir punktar í hnitakerfi.
Lausn
Röðuðu pör venslanna eru: .
Skilgreiningarmengið er mengi allra -gilda venslanna: . Taktu eftir að þótt komi aftur fyrir er það aðeins talið einu sinni.
Myndmengið er mengi allra -gilda venslanna: Taktu eftir að þótt komi aftur fyrir er það aðeins talið einu sinni.
Athugaðu skilning þinn
Ef þá .
Satt
Ósatt
tákna röðuð pör falls.
Satt
Ósatt
Grafið sýnir fall:
Satt
Ósatt
Örvaritið á myndinni sýnir fall.
Satt
Ósatt
Skilgreiningarmengi venslanna á örvaritinu er .
Satt
Ósatt
Æfingar úr hluta 5.7
Í eftirfarandi verkefnum skaltu reikna fallgildin og .
1.
2.
3.
4.
5.
6.
Í eftirfarandi verkefnum skaltu ákvarða hvort röðuðu pörin tákni fall.
7.
8.
9.
10.
11.
Í eftirfarandi verkefnum skaltu ákvarða hvort vörpunin tákni fall.
12.
13.
Í eftirfarandi verkefnum skaltu ákvarða hvort jöfnurnar skilgreini sem fall af .
14.
15.
16.
17.
18.
19.
Í eftirfarandi verkefnum skaltu nota lóðrétta línuprófið til að ákvarða hvaða graf sýnir fall.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
Í eftirfarandi verkefnum skaltu nota mengi raðaðra para til að finna skilgreiningarmengi og myndmengi.
26.
27.
28.
29.
Í eftirfarandi verkefnum skaltu nota grafið til að finna skilgreiningarmengi og myndmengi.