Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Hoover-stíflan er verkfræðilegt afrek. Þegar Mead-vatn, uppistöðulónið ofan við stífluna, er fullt verkar gríðarlegur kraftur á stífluna. Vatnsborð lónsins er þó mjög breytilegt vegna þurrka og breytilegrar vatnsnotkunar. Síðar í kaflanum notum við ákveðin heildi til að reikna kraftinn á stífluna þegar lónið er fullt og könnum hvernig breytilegt vatnsborð hefur áhrif á kraftinn (sjá dæmi 6.28).
Þrýstikraftur vökva er aðeins eitt af fjölmörgum notkunarsviðum ákveðinna heilda sem við kynnumst í þessum kafla. Ákveðin heildi eru öflug verkfæri til að skilja heiminn í kringum okkur og setja fram stærðfræðileg líkön af fyrirbærum í honum. Þau nýtast meðal annars í rúmfræði, til dæmis við útreikninga á yfirborðsflatarmáli og rúmmáli, í eðlisfræði, til dæmis við útreikninga á massa og vinnu, og við gerð líkana af vexti og hnignun.