6.7.1 Ritið skilgreiningu náttúrulega lograns með heildi.
6.7.2 Þekkið afleiðu náttúrulega lograns.
6.7.3 Heildið föll sem fela í sér náttúrulega lografallið.
6.7.4 Skilgreinið töluna e með heildi.
6.7.5 Þekkið afleiðu og heildi vísisfallsins.
6.7.6 Sannið eiginleika logra og vísisfalla með heildum.
6.7.7 Setjið almenn lograföll og vísisföll fram með náttúrulega logranum og náttúrulega vísisfallinu.
Við höfum þegar fjallað um vísisföll og logra í fyrri köflum. Í þeirri umfjöllun fórum við þó lauslega yfir nokkur mikilvæg atriði. Til dæmis könnuðum við ekki hvernig fara skyldi með vísisföll með óræðum veldisvísum. Skilgreining tölunnar e er annað atriði sem ekki var gert fullnægjandi skil í fyrri umfjöllun. Nú höfum við þau verkfæri sem þarf til að fjalla um þessi hugtök á strangari stærðfræðilegan hátt og það gerum við í þessum undirkafla.
Í þessum undirkafla gerum við ráð fyrir að náttúrulegi logrinn, talan e og heildunar- og deildunarreglurnar sem tengjast þessum föllum hafi enn ekki verið skilgreind. Við lok undirkaflans munum við hafa fjallað um þessi hugtök á stærðfræðilega strangan hátt (og sjá að þau samræmast hugtökunum sem við kynntumst áður).
Við byrjum undirkaflann á því að skilgreina náttúrulega logrann með heildi. Þessi skilgreining er undirstaða undirkaflans. Út frá henni leiðum við út deildunarreglur og skilgreinum töluna og útvíkkum þessi hugtök yfir í logra og vísisföll með hvaða grunntölu sem er.
Náttúrlegi logrinn sem heildi
Rifjum upp veldisregluna fyrir heildi:
Ljóst er að þetta gengur ekki þegar þar sem þá þyrftum við að deila með núlli. Hvað gerum við þá við Rifjum upp úr undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar að er stofnfall fallsins Því getum við sett fram eftirfarandi skilgreiningu.
Fyrir er þetta einfaldlega flatarmálið undir ferlinum frá til Fyrir gildir þannig að í þessu tilviki er það neikvætt gildi flatarmálsins undir ferlinum frá (sjá eftirfarandi mynd).
Mynd 6.75. (a) Þegar 𝑥>1, er náttúrlegi logrinn flatarmálið undir ferlinum 𝑦=1/𝑡 frá 1to𝑥. (b) Þegar 𝑥<1, er náttúrlegi logrinn neikvætt gildi flatarmálsins undir ferlinum frá 𝑥 til 1.
Takið eftir að Enn fremur er fallið fyrir Af eiginleikum heilda er því ljóst að er vaxandi fyrir
Eiginleikar náttúrulega lograns
Vegna þess hvernig við skilgreindum náttúrulega logrann fæst eftirfarandi deildunarregla þegar í stað sem bein afleiðing af undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar.
Graf fallsins er sýnt á mynd 6.76. Takið eftir að það er samfellt á öllu skilgreiningarmenginu
Mynd 6.76. Graf 𝑓(𝑥)=ln𝑥 sýnir að fallið er samfellt.
Dæmi 6.35
Útreikningur á afleiðum náttúrulegra logra
Reiknið eftirfarandi afleiður:
𝑑𝑑𝑥ln(5𝑥3−2)
𝑑𝑑𝑥(ln(3𝑥))2
Lausn
Við þurfum að beita keðjureglunni í báðum tilvikum.
𝑑𝑑𝑥ln(5𝑥3−2)=15𝑥25𝑥3−2
𝑑𝑑𝑥(ln(3𝑥))2=2(ln(3𝑥))·33𝑥=2(ln(3𝑥))𝑥
Athugið að ef við notum tölugildisfallið og skilgreinum nýtt fall getum við víkkað skilgreiningarmengi náttúrulega lograns þannig að það nái einnig yfir Þá Þetta leiðir til hinnar kunnuglegu heildunarreglu.
Dæmi 6.36
Útreikningur heilda sem fela í sér náttúrulega logra
Reiknið heildið ∫𝑥𝑥2+4𝑑𝑥.
Lausn
Notum 𝑢-innsetningu og látum 𝑢=𝑥2+4. Þá er 𝑑𝑢=2𝑥𝑑𝑥 og við fáum
Þótt við höfum kallað fallið okkar „logra“ höfum við í raun ekki sannað að neinir eiginleikar logra gildi um þetta fall. Það gerum við hér.
Sönnun
i. Samkvæmt skilgreiningu,
ii. Við höfum
Notum á síðasta heildið í þessari stæðu. Látum Þá er Enn fremur, þegar og þegar Því fæst
iv. Athugið að
Enn fremur,
Þar sem afleiður þessara tveggja falla eru þær sömu leiðir af undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar að munurinn á föllunum er fasti. Því fæst
fyrir einhvern fasta Með því að velja fáum við
Því og sönnuninni er lokið. Athugið að hægt er að útvíkka þennan eiginleika yfir á óræð gildi síðar í þessum undirkafla.
Liður iii. leiðir af liðum ii. og iv. og sönnun hans er látin lesandanum eftir.
□
Dæmi 6.37
Notkun eiginleika logra
Notið eiginleika logra til að einfalda eftirfarandi stæðu og rita hana sem einn logra:
Lausn
Við höfum
Skilgreining á tölunni e
Nú þegar við höfum skilgreint náttúrulega logrann getum við notað það fall til að skilgreina töluna
Með öðrum orðum, flatarmálið undir ferlinum á milli og er (mynd 6.77). Ykkur er látið eftir að sanna að slík tala sé til og sé ótvírætt ákvörðuð. (Vísbending: Notið milligildissetninguna til að sanna tilvist og þá staðreynd að er vaxandi til að sanna ótvíræðni.)
Mynd 6.77. Flatarmálið undir ferlinum frá 1 til 𝑒 er jafnt einum.
Talan er óræð tala, en það verður ekki sýnt hér (sjá nemendaverkefnið í Taylor- og Maclaurin-röðum). Nálgunargildi hennar er
Vísisfallið
Nú beinum við athygli okkar að fallinu Athugið að náttúrlegi logrinn er eintækur og á sér því andhverft fall. Að svo stöddu táknum við þetta andhverfa fall með Þá fæst:
Eftirfarandi mynd sýnir gröf fallanna og
Mynd 6.78. Gröf fallanna ln𝑥 og exp𝑥.
Við setjum fram þá tilgátu að Fyrir ræð gildi er auðvelt að sýna fram á þetta. Ef er ræð tala, þá gildir Þegar er ræð tala gildir því Fyrir óræð gildi skilgreinum við einfaldlega sem andhverft fall við
Þá gildir fyrir öll og því
(6.26)
fyrir öll
Eiginleikar vísisfallsins
Þar sem vísisfallið var skilgreint út frá andhverfu falli en ekki út frá veldi af verðum við að sannreyna að venjulegar veldareglur gildi um fallið
Sönnun
Athugið að ef og eru ræðar tölur gilda eiginleikarnir. Ef eða er hins vegar óræð tala verðum við að beita skilgreiningunni á sem andhverfu falls og sannreyna eiginleikana. Hér er aðeins fyrsti eiginleikinn sannreyndur; ykkur er látið eftir að sannreyna hina tvo. Við höfum
Þar sem er eintækt, þá
□
Líkt og í iv. lið eiginleika logra getum við útvíkkað eiginleika iii. þannig að hann gildi fyrir óræð gildi og það gerum við í lok undirkaflans.
Við viljum einnig sannreyna deildunarformúluna fyrir fallið Til þess þurfum við að nota fólgna deildun. Látum Þá
Þannig sjáum við
eins og óskað var, sem leiðir þegar í stað til heildunarreglunnar
Við beitum þessum formúlum í eftirfarandi dæmum.
Dæmi 6.38
Notkun eiginleika vísisfalla
Reiknið eftirfarandi afleiður:
𝑑𝑑𝑡𝑒3𝑡𝑒𝑡2
𝑑𝑑𝑥𝑒3𝑥2
Lausn
Við beitum keðjureglunni eftir þörfum.
𝑑𝑑𝑡𝑒3𝑡𝑒𝑡2=𝑑𝑑𝑡𝑒3𝑡+𝑡2=𝑒3𝑡+𝑡2(3+2𝑡)
𝑑𝑑𝑥𝑒3𝑥2=𝑒3𝑥26𝑥
Dæmi 6.39
Notkun eiginleika vísisfalla
Reiknið eftirfarandi heildi: ∫2𝑥𝑒−𝑥2𝑑𝑥.
Lausn
Notum 𝑢-innsetningu og látum 𝑢=−𝑥2. Þá er 𝑑𝑢=−2𝑥𝑑𝑥, og við fáum
Almenn lograföll og vísisföll
Við ljúkum þessum undirkafla með því að skoða vísisföll og logra með öðrum grunntölum en Vísisföll eru föll á forminu Athugið að nema höfum við enn ekki stærðfræðilega stranga skilgreiningu á þessum föllum fyrir óræða veldisvísa. Við skulum bæta úr því hér með því að skilgreina fallið með vísisfallinu Síðan skoðum við logra með öðrum grunntölum en sem andhverf föll vísisfalla.
Nú er skilgreint á stærðfræðilega strangan hátt fyrir öll gildi x. Þessi skilgreining gerir okkur einnig kleift að útvíkka eiginleika iv. logra og eiginleika iii. vísisfalla þannig að þeir gildi bæði um ræð og óræð gildi Auðvelt er að sýna að veldareglurnar gilda um almenn vísisföll sem eru skilgreind með þessum hætti.
Beitum nú þessari skilgreiningu til að reikna út deildunarformúlu fyrir Við höfum
Samsvarandi heildunarregla fæst þegar í stað.
Ef þá er fallið eintækt og hefur vel skilgreint andhverft fall. Andhverfa þess er táknuð með Þá gildir
Athugið að rita má almenn lograföll með náttúrulega logranum. Látum Þá er Með því að taka náttúrulega logrann af báðum hliðum þessarar síðari jöfnu fáum við
Því sjáum við að öll lograföll eru fastamargfeldi hvert annars. Næst notum við þessa formúlu til að finna deildunarformúlu fyrir logra með grunntölu Látum aftur Þá fæst
Dæmi 6.40
Útreikningur á afleiðum almennra vísisfalla og lografalla