Inngangur að vísis- og lograföllum

Kaflayfirlit
Inngangur að vísis- og lograföllum
Skoðið einn fersentímetra húðarinnar. Skoðið hann nánar og síðan enn nánar. Ef unnt væri að skoða hann nógu vel sæjust hundruð þúsunda örvera. Þetta eru bakteríur sem finnast ekki aðeins á húðinni heldur einnig í munni, nefi og jafnvel þörmum. Fjöldi bakteríufrumna í líkamanum getur verið svipaður fjölda eigin frumna hans. Það er þó engin ástæða til að hafa áhyggjur. Sumar bakteríur geta valdið sjúkdómum en margar eru gagnlegar og jafnvel líkamanum nauðsynlegar.
Bakteríur fjölga sér oft með ferli sem nefnist tvískipting og felst í því að ein bakteríufruma skiptist í tvær. Við hagstæðar aðstæður geta þær fjölgað sér mjög hratt. Ólíkt mönnum og öðrum flóknum lífverum tekur myndun nýrrar kynslóðar baktería oft aðeins nokkrar mínútur eða klukkustundir en ekki daga eða ár.1
Til einföldunar skulum við gera ráð fyrir að ræktunin hefjist með einni bakteríufrumu sem getur skipt sér á klukkustundar fresti. Tafla 1 sýnir fjölda bakteríufrumna við lok hverrar klukkustundar þar á eftir. Ein bakteríufruma hefur myndað rúmlega eitt þúsund bakteríufrumur eftir aðeins tíu klukkustundir. Ef taflan væri framlengd til tuttugu og fjögurra klukkustunda væru frumurnar orðnar fleiri en 16 milljónir.
| Klukkustund | 0 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| Fjöldi baktería | 1 | 2 | 4 | 8 | 16 | 32 | 64 | 128 | 256 | 512 | 1024 |
Í þessum kafla verða vísisföll skoðuð. Þau má meðal annars nota til að lýsa vaxtarmynstrum eins og fjölgun baktería. Einnig verða lograföll rannsökuð en þau eru nátengd vísisföllum. Báðar fallagerðir hafa fjölmörg hagnýt notagildi við líkanagerð og túlkun gagna.
Neðanmálsgreinar
- 1 Todar, PhD, Kenneth. Todar's Online Textbook of Bacteriology. http://textbookofbacteriology.net/growth_3.html.