Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur að vísis- og lograföllum
    2. 4.1 Vísisföll
    3. 4.2 Gröf vísisfalla
    4. 4.3 Lograföll
    5. 4.4 Gröf lografalla
    6. 4.5 Reiknireglur logra
    7. 4.6 Vísisjöfnur og lograjöfnur
    8. 4.7 Vísis- og logralíkön
    9. 4.8 Aðlögun vísislíkana að gögnum
    10. Lykilhugtök
    11. Lykiljöfnur
    12. Meginatriði
    13. Yfirlitsverkefni kafla
    14. Æfingapróf
  2. A | Grunnföll og samsemdir
  3. Atriðisorðaskrá

Bókin og glærur

PowerPoint-glærur
Undirbúningur fyrir stærðfræðigreiningu, 2. útgáfa (IS)Kafli 44.6 Vísisjöfnur og lograjöfnur
44 Vísis- og lograföll

4.6 Vísisjöfnur og lograjöfnur

FYRRI KAFLI

4.5 Reiknireglur logra

NÆSTI KAFLI

4.7 Vísis- og logralíkön

4.6 Vísisjöfnur og lograjöfnur

Námsmarkmið

Í þessum kafla lærið þið að:

  • Leysa vísisjöfnur með því að rita báðar hliðar sem veldi með sömu grunntölu.
  • Nota logra til að leysa vísisjöfnur.
  • Nota skilgreiningu logra til að leysa lograjöfnur.
  • Nota eintæknieiginleika logra til að leysa lograjöfnur.
  • Leysa hagnýt verkefni með vísisjöfnum og lograjöfnum.
Kanínur sitja á laufþakinni jörð við múrsteinsbyggingu. Nokkrar þeirra hópast saman við op undir veggnum.
Mynd 1. Villtar kanínur í Ástralíu. Kanínustofninn óx svo hratt að ástandið varð þekkt sem „kanínuplágan“. (mynd: Richard Taylor, Flickr)

Árið 1859 lét landeigandinn Thomas Austin flytja 24 kanínur frá Englandi til Ástralíu og sleppti hluta þeirra á landareign sinni til veiða. Kanínurnar aðlöguðust aðstæðum vel og fjölgaði ört. Á næstu áratugum breiddust þær út um stóran hluta Ástralíu.

Lýsa má stjórnlausri fjölgun dýra, eins og fjölgun villtu kanínanna í Ástralíu, með vísisföllum. Með því að leysa jöfnur sem byggjast á þessum föllum má greina vísisvöxt og spá fyrir um hann. Í þessum kafla lærum við aðferðir til að leysa vísisjöfnur.

Vísisjöfnur leystar með sömu grunntölu

Fyrsta aðferðin byggist á því að rita báðar hliðar jöfnunnar sem veldi með sömu grunntölu. Vísisföll eru eintæk: ef b > 0 og b ≠ 1 gildir bS = bT þá og því aðeins að S = T, þar sem S og T eru rauntölur.

Með öðrum orðum verða veldisvísarnir að vera jafnir þegar vísisjafna hefur sömu grunntölu beggja vegna jafnaðarmerkisins. Þetta gildir einnig þegar veldisvísarnir eru algebrustæður. Því má leysa margar vísisjöfnur með því að nota reiknireglur velda til að endurrita hvora hlið sem veldi með sömu grunntölu. Síðan notum við eintækni vísisfalla til að setja veldisvísana jafna og leysa fyrir óþekktu stærðina.

Skoðum til dæmis jöfnuna 34x − 7 = 32x/3. Við notum deilingarreglu velda til að rita hægri hliðina sem eitt veldi með grunntölunni 3. Síðan setjum við veldisvísana jafna, þar sem vísisfallið er eintækt, og leysum fyrir x:

34⁢x−7=32⁢x334⁢x−7=32⁢x31Ritum 3 sem 31.34⁢x−7=32⁢x−1Notum deilingarreglu velda.4⁢x−7=2⁢x−1Notum að vísisfallið er eintækt.2⁢x=6Drögum frá 2xog bætum 7 við báðar hliðar.x=3Deilum með 2.

Vísisjöfnur leystar með eintæknieiginleika vísisfalla

Fyrir algebrustæður S og T með raungildum og jákvæða grunntölu b ≠ 1 gildir:

bS=bTþá og því aðeins aðS=T

Aðferð

Leysið vísisjöfnu á forminu bS = bT, þar sem S og T eru algebrustæður með óþekktri stærð.

  1. Notið reiknireglur velda til að einfalda jöfnuna eftir þörfum þannig að hún verði á forminu bS = bT.
  2. Notið eintæknieiginleikann til að setja veldisvísana jafna.
  3. Leysið jöfnuna S = T sem fæst fyrir óþekktu stærðina.

Dæmi 1

Vísisjafna með sameiginlegri grunntölu leyst

Leysið 2x−1=22⁢x−4.

Lausn
 2x−1=22⁢x−4Sameiginlega grunntalan er 2.x−1=2⁢x−4⁢Veldisvísarnir eru jafnir því að vísisfallið er eintækt.x=3Leysum fyrir x.

Reynið sjálf #1

Leysið 52⁢x=53⁢x+2.

Jöfnur endurritaðar þannig að öll veldi hafi sömu grunntölu

Stundum er sameiginleg grunntala vísisjöfnu ekki sýnileg í upphafi. Þá endurritum við liðina í jöfnunni sem veldi með sameiginlegri grunntölu og leysum með eintæknieiginleikanum.

Skoðum til dæmis jöfnuna 256=4x−5. Endurrita má báðar hliðar hennar sem veldi af 2. Síðan beitum við reiknireglum velda og eintæknieiginleikanum til að leysa fyrir x:

256=4x−528=(22)x−5Ritum hvora hlið sem veldi með grunntölunni 2.28=22⁢x−10Notum regluna um veldi af veldi.8=2⁢x−10⁢Notum að vísisfallið er eintækt.18=2⁢xBætum 10 við báðar hliðar.x=9Deilum með 2.

Aðferð

Þegar gefin er vísisjafna með ólíkum grunntölum skal leysa hana með eintæknieiginleikanum.

  1. Endurritið hvora hlið jöfnunnar sem veldi með sameiginlegri grunntölu.
  2. Notið reiknireglur velda til að einfalda jöfnuna eftir þörfum þannig að hún verði á forminu bS = bT.
  3. Notið eintæknieiginleikann til að setja veldisvísana jafna.
  4. Leysið jöfnuna S = T sem fæst fyrir óþekktu stærðina.

Dæmi 2

Jöfnur leystar með endurritun á sameiginlega grunntölu

Leysið 8x+2=16x+1.

Lausn
8x+2=16x+1(23)x+2=(24)x+1Ritum8og16sem veldi af2.23⁢x+6=24⁢x+4Þegar veldi er hafið í veldi eru veldisvísarnir margfaldaðir.3⁢x+6=4⁢x+4Notum að vísisfallið er eintækt og setjum veldisvísana jafna.x=2Leysum fyrir x.

Reynið sjálf #2

Leysið 52⁢x=253⁢x+2.

Dæmi 3

Jöfnur leystar með því að endurrita rætur sem brotveldi með sameiginlegri grunntölu

Leysið 25⁢x=2.

Lausn
25⁢x=212Ritum kvaðratrótina af 2 sem veldi af2.5⁢x=12Notum að vísisfallið er eintækt.x=110Leysum fyrirx.

Reynið sjálf #3

Leysið 5x=5.

Spurt og svarað

Hafa allar vísisjöfnur rauntölulausn? Ef ekki, hvernig má sjá í lausnarferlinu hvort lausn sé til?

Nei. Gildið bx er alltaf jákvætt þegar b > 0 og x er rauntala. Ef jöfnubreytingar leiða til þess að slíkt veldi eigi að vera núll eða neikvætt hefur jafnan enga rauntölulausn.

Dæmi 4

Vísisjafna án rauntölulausnar

Leysið 3x+1=−2.

Lausn

Jafnan hefur enga rauntölulausn. Fyrir sérhverja rauntölu x er 3x + 1 jákvætt og getur því ekki verið jafnt −2.

Greining

Mynd 2 sýnir að gröfin tvö skerast ekki og því verður vinstri hliðin aldrei jöfn þeirri hægri. Jafnan hefur því enga lausn.

Gröf fallanna y = 3ˣ⁺¹ og y = −2. Vísisferillinn liggur ofan við x-ásinn og sker ekki láréttu línuna y = −2.
Mynd 2. Gröf fallanna y = 3ˣ+1 og y = −2 skerast ekki.

Reynið sjálf #4

Leysið 2x=−100.

Vísisjöfnur leystar með logrum

Stundum er ekki auðvelt að rita báðar hliðar vísisjöfnu sem veldi með sömu grunntölu. Þá getum við leyst jöfnuna með því að taka logra af báðum hliðum, að því gefnu að þær séu jákvæðar. Fyrir jákvæðar tölur a og b gildir log(a) = log(b) þá og því aðeins að a = b. Því má taka logra með sömu grunntölu af báðum hliðum án þess að breyta lausnamenginu.

Aðferð

Leysið vísisjöfnu með logrum þegar ekki er auðvelt að rita báðar hliðar með sömu grunntölu.

  1. Gangið úr skugga um að báðar hliðar jöfnunnar séu jákvæðar og takið síðan logra með sömu grunntölu af þeim.
    1. Ef veldi með grunntölunni 10 kemur fyrir í jöfnunni er hentugt að nota tugalogra.
    2. Annars má til dæmis nota náttúrulega logra.
  2. Notið reiknireglur logra til að leysa fyrir óþekktu stærðina.

Dæmi 5

Jafna með veldum ólíkra grunntalna leyst

Leysið 5x+2=4x.

Lausn
5x+2=4xEkki er auðvelt að rita veldin með sömu grunntölu.ln⁡5x+2=ln⁡4xTökum náttúrulega logra af báðum hliðum.(x+2)⁢ln⁡5=x⁢ln⁡4Notum veldisreglu logra.x⁢ln⁡5+2⁢ln⁡5=x⁢ln⁡4Notum dreifiregluna.x⁢ln⁡5−x⁢ln⁡4=−2⁢ln⁡5Færum liði meðxöðrum megin og liði ánxhinum megin.x⁢(ln⁡5−ln⁡4)=−2⁢ln⁡5Vinstra megin tökum við út fyrir svigax.x⁢ln⁡(54)=ln⁡(125)⁢Notum reiknireglur logra.x=ln⁡(125)ln⁡(54)Deilum með stuðlinum viðx.

Reynið sjálf #5

Leysið 2x=3x+1.

Spurt og svarað

Er hægt að leysa 2x=3x?

Já. Lausnin er 0.

Jöfnur sem innihalda e

Algeng gerð vísisjafna hefur grunntöluna e. Þessi fasti kemur sífellt fyrir í náttúrunni, stærðfræði, vísindum, verkfræði og fjármálum. Þegar jafna hefur grunntöluna e öðrum hvorum megin má leysa hana með náttúrulega logranum.

Aðferð

Leysið jöfnuna y = Aekt fyrir t, þar sem A ≠ 0, k ≠ 0 og y/A > 0.

  1. Deilið báðum hliðum jöfnunnar með A.
  2. Takið náttúrulega logrann af báðum hliðum jöfnunnar.
  3. Deilið báðum hliðum jöfnunnar með k.

Dæmi 6

Jafna á forminu y = Aeᵏᵗ leyst

Leysið 100=20⁢e2⁢t.

Lausn
100=20⁢e2⁢t5=e2⁢tDeilum með stuðli veldisins.ln⁡5=2⁢tTökum náttúrulega logra af báðum hliðum. Notum að ln⁡(x)og exeru andhverf föll.t=ln⁡52Deilum með stuðlinum við t.

Greining

Með reiknireglum logra má einnig rita svarið á forminu t=ln⁡5. Ef óskað er eftir tugabrotsnálgun á svarinu notum við reiknivél.

Reynið sjálf #6

Leysið 3⁢e0,5⁢t=11.

Spurt og svarað

Hefur sérhver jafna á forminu y = Aekt rauntölulausn fyrir t?

Nei. Ef A ≠ 0 og k ≠ 0 er til nákvæmlega ein rauntölulausn þegar y og A hafa sama formerki; annars er engin lausn. Ef A = 0 gildir jafnan fyrir öll raungildi t þegar y = 0, en hefur annars enga lausn. Ef k = 0 verður jafnan y = A: þá eru öll raungildi t lausnir þegar y = A, en annars er engin lausn. Til dæmis hefur jafnan 2 = −3et enga rauntölulausn því að hægri hliðin er alltaf neikvæð.

Dæmi 7

Jafna sem einfalda má á formið y = Aeᵏᵗ leyst

Leysið 4⁢e2⁢x+5=12.

Lausn
4⁢e2⁢x+5=124⁢e2⁢x=7Drögum 5 frá báðum hliðum.e2⁢x=74Deilum með stuðli veldisins.2⁢x=ln⁡(74)Tökum náttúrulega logra af báðum hliðum.x=12⁢ln⁡(74)Leysum fyrir x.

Reynið sjálf #7

Leysið 3+e2⁢t=7⁢e2⁢t.

Aukalausnir

Við lausn jöfnu getur komið fram aukalausn: gildi sem leysir umbreytta jöfnu en ekki upphaflegu jöfnuna. Því þarf að prófa mögulegar lausnir í upphaflegu jöfnunni og gæta að skilgreiningarskilyrðum. Þegar logra er beitt verður viðfang hvers logra að vera jákvætt. Logri af núlli eða neikvæðri tölu er ekki skilgreindur í rauntölum.

Dæmi 8

Vísisjöfnur leystar á annars stigs formi

Leysið e2⁢x−ex=56.

Lausn
e2⁢x−ex=56e2⁢x−ex−56=0Færum alla liði á aðra hliðina svo hin verði núll.(ex+7)⁢(ex−8)=0Þáttum annars stigs stæðuna.ex+7=0eðaex−8=0⁢Ef margfeldi er núll er að minnsta kosti annar þátturinn núll.ex=−7⁢eðaex=8Einangrum veldin.ex=8Höfnum jöfnunni þar sem veldið er jafnt neikvæðri tölu.x=ln⁡8Leysum jöfnuna þar sem veldið er jafnt jákvæðri tölu.

Greining

Til að leysa jöfnu með þáttun færum við alla liði á aðra hliðina svo hin verði núll. Ef margfeldi tveggja þátta er núll er að minnsta kosti annar þeirra núll. Hér fæst annaðhvort ex = −7 eða ex = 8. Fyrri jafnan hefur enga rauntölulausn því að ex er alltaf jákvætt. Stæðan ln(−7) er ekki skilgreind í rauntölum og gefur því enga lausn fyrir x. Eina rauntölulausn upphaflegu jöfnunnar er x = ln(8).

Reynið sjálf #8

Leysið e2⁢x=ex+2.

Spurt og svarað

Hefur sérhver lograjafna lausn?

Nei. Í rauntölum er aðeins hægt að taka logra af jákvæðum tölum. Prófið alltaf mögulegar lausnir í upphaflegu jöfnunni og hafnið aukalausnum.

Skilgreining lograns notuð til að leysa lograjöfnur

Við höfum þegar séð að lograjafnan logb(x) = y er jafngild vísisjöfnunni by = x, þar sem b > 0, b ≠ 1 og x > 0. Þessa staðreynd má nota ásamt reiknireglum logra til að leysa lograjöfnur þar sem viðfangið er algebrustæða.

Skoðum til dæmis jöfnuna log2(2) + log2(3x − 5) = 3. Hún er aðeins skilgreind þegar 3x − 5 > 0, það er þegar x > 5/3. Við notum margfeldisreglu logra til að sameina lograna vinstra megin og beitum síðan skilgreiningu lograns til að leysa fyrir x:

log2⁡(2)+log2⁡(3⁢x−5)=3log2⁡(2⁢(3⁢x−5))=3Notum margfeldisreglu logra.log2⁡(6⁢x−10)=3Margföldum inn í svigann.23=6⁢x−10Notum skilgreiningu lograns.8=6⁢x−10⁢Reiknum23.18=6⁢xBætum 10 við báðar hliðar.x=3Deilum með 6.

Skilgreining lograns notuð til að leysa lograjöfnur

Fyrir algebrustæðu S með jákvæðu raungildi og rauntölur b og c, þar sem b > 0 og b ≠ 1, gildir:

logb⁡(S)=cþá og því aðeins aðbc=S

Dæmi 9

Lograjafna leyst með algebru

Leysið 2⁢ln⁡x+3=7.

Lausn
2⁢ln⁡x+3=72⁢ln⁡x=4Drögum 3 frá báðum hliðum.ln⁡x=2Deilum með 2.x=e2Ritum á veldisformi.

Reynið sjálf #9

Leysið 6+ln⁡x=10.

Dæmi 10

Algebra notuð fyrir og eftir að skilgreiningu náttúrulega lograns er beitt

Leysið 2⁢ln⁡(6⁢x)=7.

Lausn
2⁢ln⁡(6⁢x)=7ln⁡(6⁢x)=72Deilum með 2.6⁢x=e(72)Notum skilgreiningu ln.x=16⁢e(72)Deilum með 6.

Reynið sjálf #10

Leysið 2⁢ln⁡(x+1)=10.

Dæmi 11

Graf notað til að skilja lausn lograjöfnu

Leysið ln⁡x=3.

Lausn
ln⁡x=3x=e3Notum skilgreiningu náttúrulega lograns.

Mynd 3 sýnir gröf fallanna y = ln(x) og y = 3. X-hnit skurðpunkts þeirra er nálægt 20, það er e3 ≈ 20. Reiknivél gefur nákvæmara nálgunargildi: e3 ≈ 20,0855.

Gröf fallanna y = 3 og y = ln(x) skerast í punktinum (e³; 3), sem er um það bil (20,0855; 3).
Mynd 3. Gröf fallanna y = ln(x) og y = 3 skerast í punktinum (e3; 3), sem er um það bil (20,0855; 3).

Reynið sjálf #11

Notið grafíska reiknivél til að finna nálgun á lausn vísisjöfnunnar 2x = 1000 með tveimur aukastöfum.

Eintæknieiginleiki logra notaður til að leysa lograjöfnur

Líkt og með vísisjöfnur má nota eintæknieiginleikann til að leysa lograjöfnur. Lograföll eru eintæk: fyrir jákvæðar rauntölur S og T og grunntölu b > 0, b ≠ 1, gildir:

logb⁡S=logb⁡Tþá og því aðeins aðS=T.

Til dæmis:

Ef log2⁡(x−1)=log2⁡(8),þá er x−1=8.

Úr jöfnunni x − 1 = 8 fæst x = 9. Við sannreynum svarið með innsetningu í upphaflegu jöfnuna: log2(9 − 1) = log2(8) = 3. Viðföng beggja logra eru jákvæð. Þegar báðar hliðar jöfnu eru einn logri með sömu grunntölu eru viðföngin því jöfn. Þetta gildir einnig þegar viðföngin eru algebrustæður. Við getum því notað reiknireglur logra til að rita hvora hlið sem einn logra, að uppfylltum skilgreiningarskilyrðum. Síðan notum við eintækni lografalla til að setja viðföngin jöfn og leysa fyrir óþekktu stærðina.

Skoðum jöfnuna log(3x − 2) − log(2) = log(x + 4). Skilyrðin 3x − 2 > 0 og x + 4 > 0 gefa x > 2/3. Við notum deilingarreglu logra til að rita vinstri hliðina sem einn logra og síðan eintæknieiginleikann til að leysa fyrir x:

log⁡(3⁢x−2)−log⁡(2)=log⁡(x+4)log⁡(3⁢x−22)=log⁡(x+4)Notum deilingarreglu logra.3⁢x−22=x+4Notum eintækni lografalla.3⁢x−2=2⁢x+8Margföldum báðar hliðar jöfnunnar með 2.x=10Drögum frá 2xog bætum 2 við.

Til að sannreyna niðurstöðuna setjum við x = 10 í upphaflegu jöfnuna log(3x − 2) − log(2) = log(x + 4). Gildið uppfyllir einnig skilyrðið x > 2/3.

log⁡(3⁢(10)−2)−log⁡(2)=log⁡((10)+4)log⁡(28)−log⁡(2)=log⁡(14)log⁡(282)=log⁡(14)Lausnin stenst prófunina.

Eintæknieiginleiki logra notaður til að leysa lograjöfnur

Fyrir algebrustæður S og T með jákvæðum raungildum og grunntölu b > 0, b ≠ 1, gildir:

logb⁡S=logb⁡Tþá og því aðeins aðS=T

Athugið að þegar jafna með logra er leyst þarf alltaf að kanna hvort svarið sé rétt eða aukalausn.

Aðferð

Leysið gefna jöfnu með logra með því að nota eintæknieiginleikann.

  1. Notið reiknireglur logra eftir þörfum til að rita hvora hlið sem einn logra, þannig að jafnan verði á forminu logb(S) = logb(T). Gætið að því að viðföng allra logra í upphaflegu jöfnunni séu jákvæð.
  2. Notið eintæknieiginleikann til að jafna viðföngin.
  3. Leysið jöfnuna S = T fyrir óþekktu stærðina og prófið mögulegar lausnir í upphaflegu jöfnunni.

Dæmi 12

Jafna leyst með eintæknieiginleika logra

Leysið ln⁡(x2)=ln⁡(2⁢x+3).

Lausn
ln⁡(x2)=ln⁡(2⁢x+3)x2=2⁢x+3Notum eintækni lografalla.x2−2⁢x−3=0Færum alla liði á aðra hliðina áður en við þáttum.(x−3)⁢(x+1)=0Þáttum annars stigs stæðuna.x−3=0eða x+1=0⁢Ef margfeldi er núll er að minnsta kosti annar þátturinn núll.x=3eðax=−1Leysum fyrir x.

Greining

Lausnirnar eru x = 3 og x = −1. Við x = 3 eru viðföng beggja logra 9, en við x = −1 eru þau 1. Báðar lausnirnar uppfylla því upphaflegu jöfnuna. Þótt x = −1 sé neikvætt eru viðföng logranna jákvæð.

Reynið sjálf #12

Leysið ln⁡(x2)=ln⁡1.

Hagnýt verkefni leyst með vísis- og lograjöfnum

Í fyrri köflum lærðum við um eiginleika og reiknireglur vísisfalla og lografalla. Við höfum séð að logb(x) = y er jafngilt by = x þegar b > 0, b ≠ 1 og x > 0. Við höfum notað þetta samband til að leysa bæði lograjöfnur og vísisjöfnur. Nú getum við beitt þessum aðferðum saman til að leysa jöfnur sem lýsa raunverulegum aðstæðum, hvort sem óþekkta stærðin er í veldisvísi eða viðfangi logra.

Eitt notkunarsvið þessara aðferða er rannsókn á geislavirkri sundrun. Helmingunartími geislavirkrar samsætu er sá tími sem tekur helming atómkjarna hennar í sýni að sundrast. Tafla 1 sýnir helmingunartíma nokkurra geislavirkra samsæta.

EfniNotkunHelmingunartími (um það bil)
gallín-67kjarnlæknisfræði80 klukkustundir
kóbalt-60framleiðsla5,3 ár
teknetín-99mkjarnlæknisfræði6 klukkustundir
ameríkín-241reykskynjarar432 ár
kolefni-14aldursgreining fornleifa5.730 ár
úran-235kjarnorka703.800.000 ár

Helmingunartími þessara efna er greinilega mjög mismunandi. Þegar helmingunartími efnis er þekktur má reikna magn þess sem eftir er að tilteknum tíma liðnum. Nota má formúluna fyrir geislavirka sundrun:

A⁡(t)=A0⁡eln⁡(0,5)T⁢tA⁡(t)=A0⁡eln⁡(0,5)⁢tTA⁡(t)=A0⁡(eln⁡(0,5))tTA⁡(t)=A0⁡(12)tT

þar sem

  • A0 er upphaflegt magn
  • T er helmingunartími efnisins
  • t er tíminn sem liðinn er frá upphafi
  • A⁡(t) er magn efnisins sem er til staðar eftir tímann t

Dæmi 13

Tími fundinn með formúlunni fyrir geislavirka sundrun

Hve langan tíma tekur tíu prósent af 1000 gramma sýni af úrani-235 að sundrast?

Lausn
y=1000⋅eln(0,5)703800000⋅t900=1000⁢eln⁡(0,5)703.800.000⁢tÞegar 10% hafa sundrast eru 900 grömm eftir.0,9=eln⁡(0,5)703.800.000⁢tDeilum með 1000.ln⁡(0,9)=ln⁡(eln⁡(0,5)703.800.000⁢t)Tökum náttúrulega logrann af báðum hliðum.ln⁡(0,9)=ln⁡(0,5)703.800.000⁢tln⁡(eM)=Mt=703.800.000×ln⁡(0,9)ln⁡(0,5)árEinangrumt.t≈106.979.777 ár

Greining

Tíu prósent af 1000 grömmum eru 100 grömm. Ef 100 grömm sundrast eru 900 grömm af úrani-235 eftir.

Reynið sjálf #13

Hve langur tími líður þar til tuttugu prósent af 1000 gramma sýninu okkar af úrani-235 hafa sundrast?

Ítarefni

Í eftirfarandi efni á netinu má finna frekari útskýringar og æfingar um vísis- og lograjöfnur.

  • Lograjöfnur leystar
  • Vísisjöfnur leystar með logrum

4.6 Kaflaæfingar

Munnleg verkefni

1.

Hvernig má leysa vísisjöfnu?

2.

Hvenær kemur aukalausn fram? Hvernig má þekkja aukalausn?

3.

Hvenær má nota eintæknieiginleika logra til að leysa jöfnu? Hvenær er það ekki hægt?

Algebruverkefni

Í eftirfarandi æfingum skal leysa vísisjöfnuna með því að umrita báðar hliðar hennar sem veldi með sömu grunntölu.

4.

4−3⁢v−2=4−v

5.

64⋅43⁢x=16

6.

32⁢x+1⋅3x=243

7.

2−3⁢n⋅14=2n+2

8.

625⋅53⁢x+3=125

9.

363⁢b362⁢b=2162−b

10.

(164)3⁢n⋅8=26

Í eftirfarandi æfingum skal leysa með því að nota logra.

11.

9x−10=1

12.

2⁢e6⁢x=13

13.

er+10−10=−42

14.

2⋅109⁢a=29

15.

−8⋅10p+7−7=−24

16.

7⁢e3⁢n−5+5=−89

17.

e−3⁢k+6=44

18.

−5⁢e9⁢x−8−8=−62

19.

−6⁢e9⁢x+8+2=−74

20.

2x+1=52⁢x−1

21.

e2⁢x−ex−132=0

22.

7⁢e8⁢x+8−5=−95

23.

10⁢e8⁢x+3+2=8

24.

4⁢e3⁢x+3−7=53

25.

8⁢e−5⁢x−2−4=−90

26.

32⁢x+1=7x−2

27.

e2⁢x−ex−6=0

28.

3⁢e3−3⁢x+6=−31

Í eftirfarandi æfingum skal nota skilgreiningu lograns til að umrita jöfnuna sem vísisjöfnu.

29.

log⁡(1100)=−2

30.

log324⁡(18)=12

Í eftirfarandi æfingum skal leysa jöfnuna með skilgreiningu lograns.

31.

5⁢log7⁡n=10

32.

−8⁢log9⁡x=16

33.

4+log2⁡(9⁢k)=2

34.

2⁢log⁡(8⁢n+4)+6=10

35.

10−4⁢ln⁡(9−8⁢x)=6

Í eftirfarandi æfingum skal leysa með eintæknieiginleika logra.

36.

ln⁡(10−3⁢x)=ln⁡(−4⁢x)

37.

log13⁡(5⁢n−2)=log13⁡(8−5⁢n)

38.

log⁡(x+3)−log⁡(x)=log⁡(74)

39.

ln⁡(−3⁢x)=ln⁡(x2−6⁢x)

40.

log4⁡(6−m)=log4⁡3⁢m

41.

ln⁡(x−2)−ln⁡(x)=ln⁡(54)

42.

log9⁡(2⁢n2−14⁢n)=log9⁡(−45+n2)

43.

ln⁡(x2−10)+ln⁡(9)=ln⁡(10)

Í eftirfarandi æfingum skal leysa hverja jöfnu fyrir x.

44.

log⁡(x+12)=log⁡(x)+log⁡(12)

45.

ln⁡(x)+ln⁡(x−3)=ln⁡(7⁢x)

46.

log2⁡(7⁢x+6)=3

47.

ln⁡(7)+ln⁡(2−4⁢x2)=ln⁡(14)

48.

log8⁡(x+6)−log8⁡(x)=log8⁡(58)

49.

ln⁡(3)−ln⁡(3−3⁢x)=ln⁡(4)

50.

log3⁡(3⁢x)−log3⁡(6)=log3⁡(77)

Grafísk verkefni

Í eftirfarandi æfingum skal leysa jöfnuna fyrir x, ef lausn er til. Teiknið síðan gröf fallanna sem standa sitt hvorum megin við jafnaðarmerkið og notið skurðpunkta þeirra, ef einhverjir eru, til að sannreyna lausnirnar.

51.

log9⁡(x)−5=−4

52.

log3⁡(x)+3=2

53.

ln⁡(3⁢x)=2

54.

ln⁡(x−5)=1

55.

log⁡(4)+log⁡(−5⁢x)=2

56.

−7+log3⁡(4−x)=−6

57.

ln⁡(4⁢x−10)−6=−5

58.

log⁡(4−2⁢x)=log⁡(−4⁢x)

59.

log11⁡(−2⁢x2−7⁢x)=log11⁡(x−2)

60.

ln⁡(2⁢x+9)=ln⁡(−5⁢x)

61.

log9⁡(3−x)=log9⁡(4⁢x−8)

62.

log⁡(x2+13)=log⁡(7⁢x+3)

63.

3log2⁡(10)−log⁡(x−9)=log⁡(44)

64.

ln⁡(x)−ln⁡(x+3)=ln⁡(6)

Í eftirfarandi æfingum skal finna gildið sem spurt er um, teikna graf sem lýsir aðstæðunum og merkja punktinn sem samsvarar lausninni.

65.

Inn á reikning eru lagðir 6.500 Bandaríkjadalir í upphafi. Reikningurinn ber 7,25% ársvexti með samfelldri vaxtasamsetningu. Hve há verður innstæðan eftir 20 ár?

66.

Hljóðstigið D í desíbelum er gefið með jöfnunni D=10⁢log⁡(II0), þar sem I er hljóðstyrkurinn í vöttum á fermetra og I0=10−12 vött á fermetra er viðmið sem samsvarar um það bil heyrnarmörkum við tíðnina 1000 Hz. Hvert er hljóðstig frá þotu ef hljóðstyrkurinn er 8,3⋅102 vött á fermetra?

67.

Íbúafjölda í litlum bæ er lýst með jöfnunni P=1650⁢e0,5⁢t þar sem t er mælt í árum. Eftir um það bil hve mörg ár verður íbúafjöldinn 20.000?

Tækni

Í eftirfarandi æfingum skal leysa hverja jöfnu með því að taka tilgreindan logra. Notið síðan reiknivél til að finna lausnina og námundið hana að þremur aukastöfum.

68.

1000⁢(1,03)t=5000 með tugalogra.

69.

e5⁢x=17 með náttúrulegum logra

70.

3⁢(1,04)3⁢t=8 með tugalogra

71.

34⁢x−5=38 með tugalogra

72.

50⁢e−0,12⁢t=10 með náttúrulegum logra

Í eftirfarandi æfingum skal leysa jöfnuna með reiknivél. Nema annað sé tekið fram skal námunda öll svör að fjórum aukastöfum.

73.

7⁢e3⁢x−5+7,9=47

74.

ln⁡(3)+ln⁡(4,4⁢x+6,8)=2

75.

log⁡(−0,7⁢x−9)=1+5⁢log⁡(5)

76.

Loftþrýstingi P í pundum á fertommu er lýst með formúlunni P=14,7⁢e−0,21⁢x, þar sem x er hæð yfir sjávarmáli í mílum. Í hve margra feta hæð yfir sjávarmáli er fjallstindur ef loftþrýstingurinn þar er 8,369 pund á fertommu? Námundið að næsta heila feti. (Ábending: 5280 fet eru í einni mílu.)

77.

Stærð M jarðskjálfta er í þessu líkani lýst með jöfnunni M=23⁢log⁡(EE0) þar sem orkan sem jarðskjálftinn losar í júlum er táknuð með E og E0=104,4 júl er viðmiðunarorka líkansins. Hver væri samkvæmt líkaninu stærð jarðskjálfta sem losar 1,4⋅1013 júl af orku? Námundið svarið að tveimur aukastöfum.

Viðbótarverkefni

78.

Notið skilgreiningu lograns ásamt eintæknieiginleika logra til að sanna að blogb⁡x=x. Gerið ráð fyrir að b > 0, b ≠ 1 og x > 0.

79.

Rifjið upp formúluna fyrir samfellda vaxtasamsetningu, y=A⁢ek⁢t. Notið skilgreiningu lograns ásamt eiginleikum logra til að leysa formúluna fyrir tímann t þannig að t sé jafnt einum logra. Gerið ráð fyrir að A > 0, y > 0 og k ≠ 0.

80.

Rifjið upp formúluna fyrir vaxtasamsetningu A=a⁢(1+rk)k⁢t. Notið skilgreiningu lograns ásamt eiginleikum logra til að leysa formúluna fyrir tímann t. Gerið ráð fyrir að a > 0, A > 0, k > 0, 1 + r/k > 0 og r ≠ 0.

81.

Kælingarlögmál Newtons segir að hitastigi T hlutar á sérhverjum tíma t megi lýsa með jöfnunni T=Ts+(T0−Ts)⁢e−k⁢t, þar sem Ts er fast hitastig umhverfisins, T0 er upphafshiti hlutarins og k er jákvæður fasti sem lýsir því hversu hratt hitamunurinn minnkar. Notið skilgreiningu lograns ásamt eiginleikum logra til að leysa formúluna fyrir tímann t þannig að t sé jafnt einum logra. Gerið ráð fyrir að T0 ≠ Ts og 0 < (T − Ts)/(T0 − Ts) ≤ 1.

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/precalculus-2e/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

4.5 Reiknireglur logra

NÆSTI KAFLI

4.7 Vísis- og logralíkön