Gagnrýnin hugsun
5.1 Vigursamlagning og frádráttur vigra: myndrænar aðferðir
Spurning 16. Satt eða ósatt: Einstaklingur fylgir leiðarlýsingu. Hann á að ganga 2 km til austurs og síðan 1 km til norðurs. Hann tekur ranga beygju og gengur í gagnstæða stefnu á seinni hluta leiðarinnar. Stærð heildarfærslu hans verður sú sama og ef hann hefði fylgt leiðarlýsingunni rétt.
- Satt
- Ósatt
5.2 Vigursamlagning og frádráttur vigra: reikniaðferðir
Spurning 17. Hver er stærð vigurs sem hefur x-þáttinn 2 einingar og stefnuhornið 60°?
- 1,0 eining
- 2,0 einingar
- 2,3 einingar
- 4,0 einingar
Spurning 18. Vigrarnir A⃗ og B⃗ eru jafnstórir og hafa gagnstæða stefnu. Hefur A⃗ − B⃗ sömu stefnu og vigurinn A⃗ eða B⃗?
- A⃗
- B⃗
5.3 Kasthreyfing
Spurning 19. Tveimur eins hlutum, hlut 1 og hlut 2, er sleppt frá toppi 50,0 m hárrar byggingar. Hlut 1 er sleppt með upphafshraðann 0 m/s en hlut 2 er kastað beint niður með upphafshraðann 13,0 m/s. Hver er tímamunurinn, í sekúndum námundaður að næsta tíunda hluta, á því hvenær hlutirnir lenda á jörðinni?
- Hlutur 1 lendir á jörðinni 3,2 s á eftir hlut 2.
- Hlutur 1 lendir á jörðinni 2,1 s á eftir hlut 2.
- Hlutur 1 lendir á jörðinni á sama tíma og hlutur 2.
- Hlutur 1 lendir á jörðinni 1,1 s á eftir hlut 2.
Spurning 20. Hlut er skotið á loft. Ef y-þáttur hröðunar hans er 9,8 m/s², hvaða stefna er þá skilgreind sem jákvæð?
- Lóðrétt upp í hnitakerfinu
- Lóðrétt niður í hnitakerfinu
- Lárétt til hægri í hnitakerfinu
- Lárétt til vinstri í hnitakerfinu
5.4 Skáplön
Spurning 21. Kassi sem vegur 500 N er kyrr á gólfi. Manneskja ýtir á hann og hann fer af stað þegar 100 N krafti er beitt á hann. Hvað er hægt að segja um hreyfinúningsstuðulinn milli kassans og gólfsins?
- μₖ = 0
- μₖ = 0,2
- μₖ < 0,2
- μₖ > 0,2
Spurning 22. Sá þáttur þyngdar hlutar sem er samsíða skáplani er 100,0 N. Hluturinn hvílir á skáplani sem myndar 70,0° horn við láréttan flöt. Hver er massi hlutarins?
- 10,9 kg
- 29,8 kg
- 106 kg
- 292 kg
5.5 Einföld sveifluhreyfing
Spurning 23. Tveir gormar eru festir við tvo króka. Gormur A hefur hærri gormstuðul en gormur B. Jafnþung lóð eru hengd í þá báða. Hver eftirfarandi fullyrðinga er sönn?
- Gormur A lengist meira en gormur B.
- Gormur B lengist meira en gormur A.
- Báðir gormarnir lengjast jafnmikið.
- Báðir gormarnir eru jafnstífir.
Spurning 24. Tvö einföld sveiflukerfi eru búin til með því að festa eins hluti við tvo mismunandi gorma. Gormstuðull gormsins vinstra megin er 5 N/m og gormstuðull gormsins hægra megin er 4 N/m. Ef sama krafti er beitt á báða, hver eftirfarandi fullyrðinga er sönn?
- Gormurinn vinstra megin sveiflast hraðar en gormurinn hægra megin.
- Gormurinn hægra megin sveiflast hraðar en gormurinn vinstra megin.
- Báðir gormarnir sveiflast jafn hratt.
- Sveiflutíðnin er óháð gormstuðlinum.