Samantekt
Samantekt
8.1 Frumkvöðlamarkaðssetning og samval söluráða
Markaðssetning nær yfir þá starfsemi sem fyrirtæki nota til að finna neytendur og breyta þeim í kaupendur. Frumkvöðlamarkaðssetning er safn óhefðbundinna aðferða sem getur hjálpað sprotafyrirtækjum og yngri fyrirtækjum að lifa af á samkeppnismörkuðum. Ein leið til að greina samval söluráða er að skipta því í söluráðin sjö: vöru, vegsauka, verð, vettvang, fólk, áþreifanlegt umhverfi og ferli. Frumkvöðlar hafa oft ekki nægilegt fjármagn til að nota öll þessi markaðsverkfæri og þurfa því að velja þau og beita þeim með stefnumiðuðum hætti.
8.2 Markaðsrannsóknir, greining markaðstækifæra og markhópur
Markaðsrannsóknir eru mikilvægur þáttur í frumkvöðlastarfi. Þær geta hjálpað þér að meta hugmyndir og jafnframt leitt í ljós tækifæri sem þú hafðir ekki áður komið auga á. Hvort sem þú notar fyrirliggjandi gögn eða framkvæmir frumrannsókn er mikilvægt að þekkja rannsóknarspurningar þínar og markmið. Góðar markaðsrannsóknir og markaðsgreining geta hjálpað þér að staðfæra vöruna gagnvart markhópnum.
8.3 Markaðsaðferðir og verkfæri fyrir frumkvöðla
Markaðssetning þarf ekki að vera dýr og frumkvöðlar hafa aðgang að mörgum hagkvæmum aðferðum. Til að beita þeim þarf fyrst og fremst mikinn eldmóð, sköpunargáfu og orku. Meðal verkfæranna eru skæruliða-, tengsla-, leiðangurs-, rauntíma-, veiru- og stafræn markaðssetning ásamt markaðssetningu með persónulegum meðmælum (WOM). Aðferðirnar hafa marga kosti, eins og dæmin um hvert verkfæri sýna. Þær gera meðal annars kleift að ná til margra samtímis, nýta sér hversu fljótt endurgjöf berst og mynda raunveruleg og einlæg tengsl við fólk. Þær geta einnig verið hagkvæmar og skapandi og skilað góðum árangri, svo sem smellum, deilingum, athugasemdum, kaupum og aukinni vitund. Neikvæðar umsagnir viðskiptavina geta hins vegar einnig borist um þessar leiðir og skaðað orðspor fyrirtækis ef ekki er brugðist við þeim af varúð.
8.4 Uppbygging frumkvöðlavörumerkis
Uppbygging vörumerkis gefur vörunni og fyrirtækinu sjálfsmynd sem viðskiptavinur getur samsamað sig við. Hún byggist á hlutverki, markmiðum og ávinningi vörunnar og þarf að fléttast saman við samval söluráða til að ná meiri áhrifum. Vörumerki miðla neytendum skilaboðum um gæði vörunnar, verðlagningu og heildarávinning. Ef samskiptastefnan er ekki samræmd geta ólík skilaboð fyrirtækisins valdið neytendum ruglingi. Frumkvöðullinn þarf að vinna ötullega að samræmdum skilaboðum í öllu markaðsstarfinu.
8.5 Markaðsstefna og markaðsáætlun
Þegar samval söluráða liggur fyrir er næsta skref að móta stefnur sem hægt er að hrinda í framkvæmd og skrá þær í markaðsáætlun. Markaðsstefna lýsir því hvernig fyrirtæki nær til neytenda og gerir þá að greiðandi viðskiptavinum. Markaðsáætlun er formlegt viðskiptaskjal sem þjónar sem leiðarvísir um hvernig fyrirtæki hyggst ná markaðsmarkmiðum sínum. Góð markaðsáætlun getur stutt ákvarðanatöku innan fyrirtækisins og laðað að utanaðkomandi fjárfesta.
8.6 Sala og þjónusta við viðskiptavini
Sala skapar hagnað. Hún getur byggst á einfaldri sölunálgun eða flóknu sölukerfi. Dæmi um sölukerfi er sex þrepa sölustefna: að rannsaka vænlega viðskiptavini og gera lista; bóka tíma til að ræða vöruna eða þjónustuna; hitta viðskiptavinina og kynna sölutillögu; bregðast við mótbárum; ljúka sölunni; og rækta sambandið eftir að sölu lýkur. Við sölu á lúxusvörum og öðrum dýrum vörum er sölunálgunin yfirleitt ítarlegri og krefst meiri söluþjálfunar og lagni. Þjónusta við viðskiptavini tengist þessu ferli og með réttri þjálfun getur hún raunverulega aðgreint fyrirtæki frá samkeppninni.