Umræðuspurningar
Umræðuspurningar
Ef þú gætir stofnað fyrirtæki núna, hvers konar fyrirtæki yrði það? Hver væri markhópur þinn?
Skoðaðu vef Wag!, https://wagwalking.com/ og greindu söluráðin sjö hjá þjónustunni. Vinna þau vel saman? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
Nefndu dæmi um fyrirtæki sem notar verðlagningu með vöndlun og útskýrðu hvers vegna það beitir aðferðinni.
Ræddu hvernig markaðsrannsóknir geta gagnast frumkvöðlum.
Hver er munurinn á eigindlegum og megindlegum gögnum?
Nefndu dæmi um hvernig frumkvöðlar geta nýtt markaðsstarf þótt þeir hafi lítið fjármagn.
Ef fyrirtæki þitt reiddi sig mjög á markaðssetningu með persónulegum meðmælum (WOM), hvernig myndir þú tryggja að upplýsingarnar sem bærust áfram væru jákvæðar? Hvað myndir þú gera ef neikvæð skilaboð bærust áfram?
Lýstu hvernig stuðningsaðili vörumerkis gæti hjálpað IKEA að staðfæra sig sem hagkvæma og hönnunarmiðaða húsgagnaverslun. Ræddu síðan hvernig stuðningsaðili vörumerkis getur hjálpað nýrri vöru á markaði að öðlast gott orðspor.
Ræddu hvernig viðskiptalíkansstriginn getur hjálpað frumkvöðli að skapa umgjörð um sölu. Hugsaðu um fyrirtæki sem þér líkar við og lýstu hvernig það stendur að sölunni.
Neikvæð meðmæli geta haft mikil áhrif á sölu fyrirtækis. Rifjaðu upp tilvik þar sem þú gafst neikvæð meðmæli um vöru eða þjónustu og greindu hvað gerði reynsluna svo slæma. Hvað hefðir þú gert öðruvísi í hlutverki sölufulltrúa til að koma í veg fyrir slíka reynslu?