Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Fyrir tímabilið 2021 í bandarísku atvinnukörfuboltadeild kvenna (WNBA) skrifaði Candace Parker undir samning við Chicago Sky sem tryggði henni 190.000 dollara í laun. Sú fjárhæð var þá sú 23. hæsta í deildinni. Hvernig ákvað stjórn liðsins hver laun hennar skyldu vera? Líklega tók hún tillit til óáþreifanlegra þátta á borð við leiðtogahæfileika Parker. Frammistaða hennar á vellinum hefur þó sennilega vegið þyngst. Parker tók til dæmis flest fráköst allra leikmanna í deildinni tímabilið 2020, alls 214, og skoraði að meðaltali 14,7 stig í leik, sem var 18. hæsta meðaltalið í WNBA. Auk þess kom hún með reynslu úr 13 tímabilum til liðsins. Allir þessir þættir höfðu áhrif á samningskjör hennar.
Að áætla gildi einnar breytu, svo sem launa, út frá öðrum mælanlegum breytum, til dæmis stigum í leik, reynslu og fráköstum, er eitt mikilvægasta notkunarsvið tölfræði. Tölfræði er grein stærðfræðinnar sem fæst við söfnun, skipulag og samantekt gagna og ákvarðanatöku á grundvelli þeirra.