88 Tölfræði
Kaflapróf
Kaflapróf
Ákveddu hvort slembivali sé beitt við val þessara úrtaka. Ef svo er skaltu tilgreina gerð slembiúrtaksins (einfalt, kerfisbundið, klasa- eða lagskipt úrtak).
1.
Plötusali reynir að verðleggja stórt vínylplötusafn sem hún íhugar að kaupa. Hún skoðar tíundu hverja plötu í hillunni og skráir verðmæti hennar.
2.
Dómritari á að velja eitt hundrað manns í hóp mögulegra kviðdómenda fyrir væntanleg dómsmál. Hann hefur stafrófsraðaðan lista yfir skráða kjósendur í umdæminu og notar slembitalnagjafa til að velja eitt hundrað nöfn af listanum.
3.
Landbúnaðarfulltrúi fylkis hefur áhyggjur af útbreiðslu sníkjudýrasjúkdóms í nautgripum. Hann velur 30 nautgripabú af handahófi og prófar hverja kú á búunum 30 með tilliti til sjúkdómsins.
4.
Í úrtaki blóðgjafa til blóðbanka komu eftirfarandi blóðflokkar fyrir: A O
| A | O | A | A | AB | O | O | A |
| AB | A | O | O | A | A | O | O |
| B | O | B | O | O | O | B | A |
| O | A | O | O | A | A. | Búðu | til |
tíðnidreifingu fyrir þessi gögn.
5.
Búðu til stöplarit án þess að nota tæknibúnað til að sýna gögnin í spurningu 4.
6.
Notaðu gögnin í „MBB2019“ til að búa til stuðlarit yfir heildarfjölda frákasta hvers liðs (TRB).
7.
Taflan hér á eftir sýnir fjölda leikmanna í leikmannahópi hvers liðs í ensku úrvalsdeildinni. Finndu tíðasta gildi, miðgildi og meðaltal
| án | þess að | nota | tæknibúnað. Lið |
|---|---|---|---|
| Skráðir leikmenn Lið | Skráðir | leikmenn Manchester United | F.C. |
| 27 Newcastle United | F.C. | 28 Manchester City | F.C. |
| 24 Aston | Villa | F.C. 24 | Chelsea |
| F.C. 25 | Fulham | F.C. 27 | Arsenal |
| F.C. 28 Southampton | F.C. | 24 Tottenham Hotspur | F.C. |
| 27 Wolverhampton | Wanderers | F.C. 22 | Liverpool |
| F.C. 30 | Brighton | & Hove | Albion |
| 31 Crystal | Palace | 29 Burnley F.C. 22 | Everton |
| F.C. 23 | West | Bromwich Albion F.C. | 26 |
| Leicester City 25 Leeds | United | F.C. 25 West | Ham |
United
F.C.
24 Sheffield United F.C. 27 Tafla 8.14 (heimild: https://fbref.com/en/comps/9/Premier-League-Stats#all_stats_squads_standard)
8.
Notaðu gögnin í „MBB2019“ til að finna meðaltal, miðgildi og tíðasta gildi heildarfjölda frákasta hvers liðs (TRB).
9.
Notaðu gögnin í „MBB2019“ til að finna spönn og staðalfrávik heildarfjölda frákasta hvers liðs (TRB).
Notaðu gögnin í „MBB2019“ til að svara eftirfarandi spurningum:
10.
Hvaða heildarfjöldi frákasta (TRB) er við þriðja fjórðungamarkið?
11.
Við hvaða prósentumark er Evansville-háskóli, sem tók alls 1.095 fráköst?
Svaraðu eftirfarandi spurningum um normaldreifð gögn með meðaltalið 50 og staðalfrávikið 5:
12.
Hve stórt hlutfall gagnanna er á bilinu 35 til 65?
13.
Hvert er staðlað gildi gagnagildisins 37?
14.
Við hvaða prósentumark er gagnagildið 58?
15.
Hvaða gagnagildi er við 40. prósentumarkið?
Notaðu gögnin í „MBB2019“ til að svara eftirfarandi spurningum:
16.
Hvert er staðlað gildi heildarfjölda frákasta hjá Mississippi State-háskóla (TRB = 1.215)?
17.
Við hvaða prósentumark áætlum við með normaldreifingu að TRB-gildi Mississippi State-háskóla sé?
18.
Við hvaða prósentumark er TRB-gildi Mississippi State-háskóla í raun?
Notaðu gögnin í „NBA2019“ til að svara eftirfarandi spurningum:
19.
Hver er fylgnistuðullinn milli fjölda heppnaðra tveggja stiga skota í leik (2P) og fjölda stiga í leik (PTS)?
20.
Hver er jafna aðhvarfslínunnar sem nota ætti til að spá fyrir um PTS út frá 2P?
21.
Skrifaðu setningu sem túlkar hallatölu aðhvarfslínunnar.
22.
Spáðu fyrir um fjölda stiga í leik hjá leikmanni sem hittir úr sex tveggja stiga skotum í leik.
23.
J.J. Redick hitti úr 2,8 skotum í leik og skoraði að meðaltali 18,1 stig í leik. Skoraði hann fleiri eða færri stig í leik en búast mátti við? Hve miklu munaði?