Æfingapróf
Æfingapróf
Einfaldið í verkefnunum hér á eftir.
Reiknið aðgerðina sem sýnd er og einfaldið svarið í verkefnunum hér á eftir.
Leysið jöfnurnar hér á eftir.
Leysið verkefnin hér á eftir.
Ef er í beinu hlutfalli við og þegar finnið þegar
Ef er í öfugu hlutfalli við og þegar finnið þegar
Ef er í öfugu hlutfalli við annað veldi og þegar finnið þegar
Ráðlagður skammtur af erýtrómýsíni fyrir hunda er 5 mg fyrir hvert pund líkamsþyngdar. Ef Daisy vegur 25 pund, hve mörgum milligrömmum af erýtrómýsíni ætti dýralæknirinn að ávísa henni?
Julia æfði í 4 klukkustundir í líkamsræktarstöð síðdegis á sunnudegi. Hún hljóp 10 mílur á hlaupabretti og hjólaði síðan 20 mílur. Hjólahraði hennar var 5 mílum/klst. meiri en hlaupahraðinn á hlaupabrettinu. Hver var hlaupahraði hennar?
Kurt getur hjólað 30 mílur undan vindi á sama tíma og hann hjólar 21 mílu á móti vindi. Ef vindhraðinn er 6 mílur/klst., hver er hjólahraði Kurts í logni?
Amanda skokkar 8 mílur í almenningsgarð eftir einni leið og fer síðan 14 mílna leið til baka. Heimferðin tekur hana 1 klukkustund lengur en ferðin í garðinn. Finnið skokkhraða hennar.
Reyndur gluggaþvottamaður getur þvegið alla glugga í húsi Mikes á 2 klukkustundum en nýr nemi þarf 7 klukkustundir. Hve lengi væru þeir að verkinu ef þeir ynnu saman?
Josh getur klofið vörubílsfarm af eldiviði á 8 klukkustundum en með föður sínum getur hann lokið verkinu á 3 klukkustundum. Hve lengi væri faðir hans einn að kljúfa viðinn?
Verðið sem Tyler greiðir fyrir bensín er í beinu hlutfalli við fjölda gallona sem hann kaupir. Ef 24 gallon kosta $59,76, hvað kosta þá 30 gallon?
Rúmmál gass í íláti er í öfugu hlutfalli við þrýsting gassins. Ef rúmmál köfnunarefnis í íláti er 29,5 lítrar við 2000 pund á fertommu, hvert er rúmmálið við 14,7 pund á fertommu? Námundið að næstu heiltölu.
Borgirnar Dayton, Columbus og Cincinnati mynda þríhyrning í sunnanverðu Ohio. Myndin hér fyrir neðan sýnir vegalengdirnar milli borganna á kortinu í tommum.
Raunveruleg vegalengd frá Dayton til Cincinnati er 48 mílur. Hver er raunveruleg vegalengd milli Dayton og Columbus?