Inngangur

Yfirlit kaflans
Inngangur
Spilavíti eru umfangsmikill atvinnurekstur. Samkvæmt bandarísku samtökunum American Gaming Association námu tekjur bandarískra spilavíta meira en 43 milljörðum dollara árið 2019. Til að skila hagnaði þurfa spilavíti að halda viðkvæmu jafnvægi: viðskiptavinir þeirra verða að meðaltali að tapa meira fé en þeir vinna, en séu líkur hvers viðskiptavinar á að vinna meira en hann tapar of litlar hættir fólk að sækja spilavítin.
Í þessum kafla skoðum við aðferðirnar sem spilavíti þarf að nota til að meta líkurnar á að viðskiptavinur vinni tiltekinn leik. Síðan skoðum við hvernig spilavítið ákveður fjárhæð vinnings þannig að viðskiptavinir séu ánægðir en reksturinn skili jafnframt hagnaði til langs tíma. Til að reikna þessar líkur þarf að taka tillit til allra mögulegra útkoma leikjanna. Ef leikmenn fá til dæmis fimm spil úr 52 spila stokki eru 2.598.960 mögulegar hendur fyrir hvern leikmann. Við byrjum því kaflann á að læra að telja þessar mögulegu útkomur.