Lykilhugtök
Lykilhugtök
- meðalgildi falls
- (einnig fave) meðalgildi falls á bili fæst með því að reikna ákveðið heildi fallsins og deila niðurstöðunni með lengd bilsins
- breytuskipti
- innsetning breytu, til dæmis u, í stað stæðu í heildisstofninum
- ákveðið heildi
- ein af meginaðgerðum stærðfræðigreiningarinnar; ákveðið heildi er flatarmálið milli ferils og x-ássins á tilteknu bili
- undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar
- setningin sem er undirstaða allrar þróunar stærðfræðigreiningarinnar og tengir saman deildun og heildun
- undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 1. hluti
- notar ákveðið heildi til að skilgreina stofnfall falls
- undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 2. hluti
- (einnig reiknisetningin) ákveðið heildi má reikna með því að finna gildi stofnfalls heildisstofnsins í endapunktum bilsins og draga gildið í neðri endapunktinum frá gildinu í þeim efri
- heildanlegt fall
- fall er heildanlegt ef markgildið sem skilgreinir heildið er til; með öðrum orðum, ef markgildi Riemann-summanna er til þegar n stefnir á óendanlegt
- heildisstofn
- fallið eða stæðan sem heildað er og stendur hægra megin við heildistáknið
- heildun með innsetningu
- heildunaraðferð sem nota má á föll sem fást með því að beita keðjureglunni við deildun
- nálgun með vinstri endapunktum
- nálgun á flatarmáli undir ferli þar sem vinstri endapunktur hvers hlutbils ákvarðar hæð viðkomandi rétthyrnings
- heildismörk
- gildin sem standa efst og neðst við heildistáknið og afmarka bilið sem fallið er heildað yfir
- neðri summa
- summa sem fæst með því að nota lággildi á hverju hlutbili
- meðalgildissetningin fyrir heildi
- tryggir að til sé punktur c þar sem er jafnt meðalgildi fallsins
- setningin um heildarbreytingu
- ef breytingarhraði stærðar er þekktur, segir setningin um heildarbreytingu að lokagildi stærðarinnar sé jafnt upphafsgildi hennar að viðbættu heildi breytingarhraðans
- formerkt flatarmál
- flatarmál milli grafs falls og x-ássins, reiknað þannig að flatarmál neðan x-ássins er dregið frá flatarmáli ofan x-ássins; niðurstaðan er jöfn ákveðnu heildi fallsins
- skipting
- mengi punkta sem skiptir bili í hlutbil
- regluleg skipting
- skipting þar sem öll hlutbil hafa sömu breidd
- Riemann-summa
- nálgun á flatarmáli undir ferli á forminu
- nálgun með hægri endapunktum
- nálgun á flatarmáli rétthyrninganna undir ferli þar sem hægri endapunktur hvers hlutbils ákvarðar hæð viðkomandi rétthyrnings
- summutákn
- gríski bókstafurinn sigma (Σ) táknar að gildin skuli lögð saman; gildi vísisins neðan og ofan við sigma sýna hvar summan hefst og hvar henni lýkur
- heildarflatarmál
- heildarflatarmál milli grafs falls og x-ássins fæst með því að leggja saman flatarmálið ofan x-ássins og flatarmálið neðan x-ássins; niðurstaðan er jöfn ákveðnu heildi algildis fallsins
- efri summa
- summa sem fæst með því að nota hágildi á hverju hlutbili
- heildunarbreyta
- sýnir með tilliti til hvaða breytu er heildað; ef breytan er x kemur dx á eftir fallinu í heildisstofninum