1.5.1 Nota innsetningu til að reikna óákveðin heildi.
1.5.2 Nota innsetningu til að reikna ákveðin heildi.
Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar gaf okkur aðferð til að reikna heildi án þess að nota Riemann-summur. Ókostur þessarar aðferðar er þó sá að við verðum að geta fundið stofnfall, sem er ekki alltaf auðvelt. Í þessum hluta skoðum við aðferð sem nefnist heildun með innsetningu og auðveldar okkur að finna stofnföll. Nánar tiltekið nýtist aðferðin þegar heildisstofninn er niðurstaða deildunar með keðjureglunni.
Í fyrstu er ekki víst að auðséð sé hvernig innsetningaraðferðinni skuli beitt. Hér er þó fyrst og fremst um sjónræna greiningu að ræða: heildisstofninn gefur vísbendingu um hvað gera skal og verkefnið felst í að þekkja form fallsins. Að hverju leitum við þá? Við leitum að heildisstofni af gerðinni Tökum sem dæmi heildið þar sem og Þá er
og heildisstofninn er því á réttu formi.
Aðferðin nefnist innsetning vegna þess að hluta heildisstofnsins er skipt út fyrir breytuna u og öðrum hluta hans fyrir du. Hún er einnig nefnd breytuskipti, enda skiptum við um breytu til að fá segð sem auðveldara er að vinna með þegar heildunarreglunum er beitt.
Sönnun
Látum f, g, u og F vera eins og tilgreint er í setningunni. Þá er
Með því að heilda báðar hliðar með tilliti til x fæst
Ef við setjum nú og inn fæst
□
Snúum aftur að verkefninu sem við skoðuðum í upphafi. Látum og þá er Umritum heildið með tilliti til u:
Samkvæmt veldareglunni fyrir heildi er
Setjum upphaflegu segðina, sem rituð er með x, aftur inn í lausnina:
Við getum alhæft aðferðina með eftirfarandi lausnarleið.
Dæmi 1.30
Innsetning notuð til að finna stofnfall
Notið innsetningu til að finna stofnfallið
Lausn
Fyrsta skrefið er að velja segð fyrir u. Við veljum því þá er og du er þegar í heildisstofninum. Skrifum heildið með tilliti til u:
Munið að du er afleiða segðarinnar sem valin er fyrir u, óháð því hvað annað er í heildisstofninum. Nú getum við reiknað heildið með tilliti til u:
Greining
Við getum sannreynt svarið með því að finna afleiðu niðurstöðu heildunarinnar. Þá ættum við að fá heildisstofninn. Veljum 1 sem gildi fyrir C og látum Þá er
og því
Þetta er nákvæmlega segðin sem var í heildisstofninum í upphafi.
Stundum þarf að laga fastana í heildinu þegar þeir samsvara ekki nákvæmlega segðunum sem settar eru inn.
Dæmi 1.31
Innsetning með aðlögun
Notið innsetningu til að finna
Lausn
Umritum heildið sem Látum og Nú kemur upp vandi því en upphaflega segðin inniheldur aðeins Við verðum að laga segðina fyrir du, annars verður heildið með tilliti til u tvöfalt stærra en það á að vera. Vandinn leysist ef báðar hliðar jöfnunnar fyrir du eru margfaldaðar með Því er
Skrifum heildið með tilliti til u en tökum út fyrir heildistáknið:
Heildum segðina með tilliti til u:
Dæmi 1.32
Innsetning í heildum hornafalla
Notið innsetningu til að reikna heildið
Lausn
Við vitum að deildi er og látum því Þá er Þegar þetta er sett inn í heildið fæst
Þegar heildið er reiknað fæst
Þegar svarið er aftur sett fram með tilliti til t fæst
Stundum þarf að umrita heildi á flóknari hátt en með því einu að margfalda eða deila með fasta. Fjarlægja þarf allar segðir í heildisstofninum sem eru settar fram með upphaflegu breytunni. Að því loknu á u að vera eina breytan í heildisstofninum. Í sumum tilvikum þarf því að einangra upphaflegu breytuna og rita hana með u. Næsta dæmi skýrir þessa aðferð.
Dæmi 1.33
Stofnfall fundið með u-innsetningu
Notið innsetningu til að finna stofnfallið
Lausn
Ef við látum þá er Þá er þó ekki tekið tillit til x í teljara heildisstofnsins. Við þurfum að rita x með u. Ef þá er Nú getum við umritað heildið með tilliti til u:
Síðan heildum við á venjulegan hátt, setjum upphaflegu segðina í stað u og þáttum og einföldum niðurstöðuna. Því fæst
Innsetning í ákveðnum heildum
Einnig má nota innsetningu í ákveðnum heildum. Þegar ákveðið heildi er reiknað með innsetningu þarf þó að breyta heildismörkunum. Ef skipt er um breytu í heildisstofninum breytast heildismörkin jafnframt.
Þótt við sönnum setninguna ekki formlega, má rökstyðja hana með eftirfarandi útreikningum. Ef er stofnfall fæst samkvæmt innsetningarreglunni fyrir óákveðin heildi að
Þá er
(1.20)
og þar með fæst niðurstaðan sem sýna átti.
Dæmi 1.34
Ákveðið heildi reiknað með innsetningu
Notið innsetningu til að reikna
Lausn
Látum og þá er Þar sem upphaflegi heildisstofninn inniheldur aðeins þáttinn x2 og margföldum við báðar hliðar jöfnunnar fyrir du með Þá er
Til að laga heildismörkin tökum við eftir því að þegar og þegar Þá er
Þegar segðin er reiknuð fæst
Dæmi 1.35
Innsetning með veldisfalli
Notið innsetningu til að reikna
Lausn
Látum Þá er Til að laga heildismörkin tökum við eftir því að þegar og þegar Innsetningin gefur því
Innsetning getur verið ein af nokkrum aðferðum sem þarf til að reikna ákveðið heildi. Allir eiginleikar og allar reglur heildunar gilda sjálfstætt og stundum þarf að umrita hornaföll með hornafallasamsemd áður en hægt er að beita innsetningu. Einnig má setja upphaflegu segðina í stað u eftir að stofnfallið hefur verið fundið og þá þarf ekki að breyta heildismörkunum. Þessar tvær leiðir eru sýndar í dæmi 1.36.
Dæmi 1.36
Hornafallsheildi reiknað með innsetningu
Notið innsetningu til að reikna
Lausn
Notum fyrst hornafallasamsemd til að umrita heildið. Hornafallasamsemdin gerir okkur kleift að umrita heildið sem
Þá er
Fyrra heildið má reikna eins og það stendur, en beita þarf innsetningu til að reikna hið síðara. Látum Þá er eða Auk þess gildir að þegar og þegar Þegar síðara heildið er sett fram með tilliti til u fæst
Æfingar í hluta 1.5
254.
Hvers vegna er u-innsetning einnig nefnd breytuskipti?
255.
2. Þegar er keðjureglunni beitt í öfuga átt samkvæmt á þá að velja eða
Sannreynið í eftirfarandi æfingum hverja jöfnu með deildun. Notið síðan tilgreinda u-innsetningu og ákvarðið f þannig að heildið verði af gerðinni
256.
257.
Fyrir
258.
259.
260.
Finnið stofnfallið í eftirfarandi æfingum með tilgreindri innsetningu.
261.
262.
263.
264.
265.
266.
267.
268.
269.
270.
Notið viðeigandi breytuskipti í eftirfarandi æfingum til að reikna óákveðna heildið.
271.
272.
273.
274.
275.
276.
277.
278.
279.
280.
281.
282.
283.
284.
285.
286.
287.
Notið reiknivél í eftirfarandi æfingum til að áætla flatarmálið undir ferlinum með vinstri Riemann-summum með 50 liðum. Notið síðan innsetningu til að finna nákvæmt svar.
288.
[T] á bilinu
289.
[T] á bilinu
290.
[T] á bilinu
291.
[T] á bilinu
Notið breytuskipti í eftirfarandi æfingum til að reikna ákveðna heildið.
292.
293.
294.
295.
296.
297.
Reiknið í eftirfarandi æfingum óákveðna heildið þar sem fastinn er og beitið u-innsetningu. Teiknið síðan gröf fallsins og stofnfallsins á tilgreinda bilinu. Áætlið, ef unnt er, gildi C sem þyrfti að bæta við stofnfallið svo það yrði jafnt ákveðna heildinu þar sem a er vinstri endapunktur gefna bilsins.
298.
[T] á bilinu
299.
[T] á bilinu
300.
[T] á bilinu
301.
[T] á bilinu
302.
[T] á bilinu
303.
[T] á bilinu
304.
Ef í hvað má þá segja um gildi heildisins?
305.
Er innsetningin í ákveðna heildinu gild? Ef ekki, hvers vegna?
Notið breytuskipti í eftirfarandi æfingum til að sýna að hvert ákveðið heildi sé núll.
306.
307.
308.
309.
310.
311.
312.
313.
Sýnið að meðalgildi á bilinu sé það sama og meðalgildi á bilinu þegar
314.
Finnið flatarmálið undir grafi milli og þar sem a er fasti sem uppfyllir og . Reiknið síðan markgildið þegar
315.
Finnið flatarmálið undir grafi milli og þar sem og a er fasti sem uppfyllir . Reiknið markgildið þegar
316.
Flatarmál hálfhrings með geisla 1 má setja fram sem Notið innsetninguna til að setja flatarmál hálfhringsins fram sem heildi hornafalls. Ekki þarf að reikna heildið.
317.
Flatarmál efri helmings sporbaugs, þar sem langásinn er x-ásinn frá til og skammásinn er y-ásinn frá til , má skrifa sem Notið innsetninguna til að setja flatarmálið fram sem heildi hornafalls. Ekki þarf að reikna heildið.
318.
[T] Eftirfarandi graf sýnir fall af gerðinni Áætlið stuðlana a og b og tíðnistikana n og m. Notið áætlanirnar til að nálga
319.
[T] Eftirfarandi graf sýnir fall af gerðinni Áætlið stuðlana a og b og tíðnistikana n og m. Notið áætlanirnar til að nálga