Meginatriði
Meginatriði
1.1 Nálgun flatarmáls
- Með summutákni á forminu má rita langar summur gilda á knöppu formi.
- Fyrir samfellt fall á bilinu má nálga flatarmál svæðisins með því að skipta bilinu í n jafnlöng hlutbil, reisa rétthyrning á hverju hlutbili upp að grafi fallsins, reikna flatarmál rétthyrninganna og leggja þau saman.
- Breidd hvers rétthyrnings er
- Riemann-summur eru segðir á forminu og má nota þær til að nálga flatarmálið undir ferlinum Nálganir með vinstri og hægri endapunktum eru sérstakar gerðir Riemann-summa þar sem punktarnir eru valdir sem vinstri eða hægri endapunktar hlutbilanna, eftir því sem við á.
- Í Riemann-summum er mikið svigrúm til að velja punktamengið þar sem fallgildin eru reiknuð, oft til þess að fá neðri eða efri summu.
1.2 Ákveðið heildi
- Ákveðið heildi má nota til að reikna formerkt flatarmál: flatarmálið ofan x-ássins að frádregnu flatarmálinu neðan x-ássins. Formerkt flatarmál getur verið jákvætt, neikvætt eða núll.
- Hlutar ákveðins heildis eru heildisstofninn, heildunarbreytan og heildismörkin.
- Samfelld föll á lokuðu bili eru heildanleg. Ósamfelld föll geta þó verið heildanleg, allt eftir eðli ósamfelldninnar.
- Nota má eiginleika ákveðinna heilda til að reikna heildi.
- Flatarmálið undir gröfum margra falla má reikna með rúmfræðilegum formúlum.
- Meðalgildi falls má reikna með ákveðnum heildum.
1.3 Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar
- Meðalgildissetningin fyrir heildi segir að fyrir samfellt fall á lokuðu bili sé til punktur c þannig að sé jafnt meðalgildi fallsins. Sjá: Meðalgildissetningin fyrir heildi.
- Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 1. hluti, sýnir tengsl afleiðu og heildis. Sjá: Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 1. hluti.
- Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 2. hluti, gefur formúlu til að reikna ákveðið heildi út frá stofnfalli heildisstofnsins. Með formúlunni má finna heildarflatarmálið undir ferli. Sjá: Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 2. hluti.
1.4 Heildunarreglur og setningin um heildarbreytingu
- Setningin um heildarbreytingu segir að þegar stærð breytist sé lokagildi hennar jafnt upphafsgildinu að viðbættu heildi breytingarhraðans. Heildarbreytingin getur verið jákvæð tala, neikvæð tala eða núll.
- Flatarmálið undir grafi jafnstæðs falls á samhverfu bili má reikna með því að tvöfalda flatarmálið á jákvæða hluta x-ássins. Fyrir oddstætt fall er heildið á samhverfu bili núll, því að helmingur flatarmálsins er neikvæður.
1.5 Innsetning
- Innsetning er aðferð sem einfaldar heildun falla sem fást þegar keðjureglunni er beitt við deildun. Hugtakið „innsetning“ vísar til breytuskipta eða þess að setja breytuna u og deildið du í stað viðeigandi segða í heildisstofninum.
- Þegar innsetning er notuð við ákveðið heildi þarf einnig að breyta heildismörkunum.
1.6 Heildi með vísis- og lograföllum
- Vísis- og lograföll koma víða við sögu í hagnýtum verkefnum, einkum þegar fjallað er um vöxt og hnignun.
- Innsetning er oft notuð til að reikna heildi sem innihalda vísisföll eða logra.
1.7 Heildi sem skila andhverfum hornaföllum
- Í kaflanum Afleiður vísis- og lografalla voru leiddar út formúlur fyrir afleiður andhverfra hornafalla. Af þeim fást beint heildunarreglur fyrir andhverf hornaföll.
- Notið formúlurnar í reglunni um heildi sem skila andhverfum hornaföllum til að finna rétta formið. Gerið síðan þær breytingar sem þarf til að leysa dæmið.
- Oft þarf að nota innsetningu til að koma heildisstofninum á rétt form.