Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Vísindaskáldsagnahöfundar ímynda sér oft geimskip sem geta ferðast til reikistjarna í fjarlægum vetrarbrautum. Árið 1905 sýndi Albert Einstein hins vegar fram á að hraði allra hluta er takmarkaður. Ástæðan er sú að eftir því sem hlutur hreyfist hraðar, þeim mun meiri verður massi hans (í formi orku), samkvæmt jöfnunni
þar sem m0 er kyrrstöðumassi hlutarins, v er hraði hans og c er ljóshraðinn. Hver eru þessi hraðamörk? (Við skoðum þetta viðfangsefni nánar í dæmi 2.12.)
Hugtakið markgildi er grundvallaratriði í stærðfræðigreiningu. Við hefjum þennan kafla á því að kanna hvers vegna markgildi eru svo mikilvæg. Síðan lýsum við því hvernig finna má markgildi falls í tilteknum punkti. Ekki hafa öll föll markgildi í öllum punktum og við ræðum hvað það merkir og hvernig ákvarða má hvort fall hafi markgildi við tiltekið gildi. Efni þessa kafla er sett fram á óformlegan og innsæislegan hátt, en það nægir ekki alltaf þegar sanna þarf stærðfræðilega fullyrðingu um markgildi. Í síðasta hluta kaflans er sett fram nákvæmari skilgreining á markgildi og sýnt hvernig færa má sönnur á að fall hafi eða hafi ekki markgildi.