Samantekt
Samantekt
6.1 Vinnuumhverfi og starfsskilyrði
Fyrirtæki og stjórnendur þess þurfa að bjóða upp á vinnustað þar sem fólk vill starfa, án öryggishættu og hvers kyns áreitni. Góð starfskjör og starfsmannahlunnindi gera fyrirtækið einnig að eftirsóknarverðum vinnustað. Þá skiptir máli að stjórnendur láti starfsfólk finna að það sé metið og virt. Fyrirtæki getur beitt öllum þessum úrræðum til að laða að og halda í framúrskarandi starfsfólk og stuðla þannig að vel reknu fyrirtæki með ánægt starfslið. Að mati heimspekinganna Aristótelesar og Immanuels Kant ber að breyta siðferðilega rétt einfaldlega vegna þess að það er rétt. Ákvörðunin um að skapa umhverfi þar sem starfsfólk vill mæta til vinnu á hverjum degi er að miklu leyti siðferðilegt val, enda skapar hún heilbrigt umhverfi sem allir njóta. Við bætist að ánægt starfsfólk stuðlar að auknum gæðum og framleiðni, sem leiðir til ánægðra viðskiptavina og meiri arðsemi. Góð meðferð starfsfólks skilar því einnig fjárhagslegum ávinningi, enda er slíkt starfsfólk afkastamikið.
6.2 Hvað teljast sanngjörn laun?
Það getur verið flókið að greiða fólki sanngjörn laun. Fyrirtæki þarf að nýta starfsfólk sitt á sem hagkvæmastan hátt og ákveða laun þess, en sanngjörn framkvæmd krefst dómgreindar, visku og sterkrar siðferðilegrar ábyrgðar. Stjórnendur þurfa að vega og meta launajafnrétti, starfsanda, hvata og hagnað, en hvert þessara atriða kann að hafa lagalegar, siðferðilegar og rekstrarlegar hliðar. Sanngjörn laun skipta fólk á lágmarkslaunum sérstaklega miklu, enda hafa raunlágmarkslaun lækkað um 23 prósent frá 1960. Þau skipta konur einnig miklu vegna þess að þær búa enn við verulegan launamun gagnvart körlum í sambærilegri stöðu.
6.3 Skipulagt launafólk
Starfsfólk sækist eftir sanngjarnri meðferð á vinnustað og öðlast stundum sterkari samningsstöðu gagnvart stjórnendum með því að fela stéttarfélagi hagsmunagæslu sína. Stéttarfélagsaðild í Bandaríkjunum hefur minnkað undanfarin ár. Annars vegar hafa verndarákvæði sem stéttarfélög börðust fyrir verið lögfest á vettvangi alríkis og fylkja, og hins vegar hefur hagkerfið færst frá framleiðslu til þjónustu. Hópar opinberra starfsmanna, svo sem kennarar, háskólakennarar, viðbragðsaðilar og hjúkrunarfræðingar, eiga aðild að stéttarfélögum í sumum borgum og fylkjum. Bandarískt launafólk hefur stuðlað að mikilli framleiðniaukningu undanfarin fjörutíu ár en almennt ekki notið sambærilegra launahækkana.
6.4 Friðhelgi einkalífs á vinnustað
Eftirlit með starfsfólki, hvort sem það er rafrænt eða fer fram með lyfjaprófum, er flókið svið starfsmannastjórnunar. Fjölmargar lagalegar takmarkanir gilda samkvæmt fylkja- og alríkislögum. Vinnuveitendur þurfa ekki aðeins að ákveða hvað þeim er heimilt að gera heldur einnig hvað þeim ber siðferðilega að gera, með hliðsjón af réttmætum væntingum starfsfólks um friðhelgi einkalífs.