Spurningar um gagnvirka tengla
Spurningar um gagnvirka tengla
Farðu á þetta vefsvæði til að skoða röntgenmynd af hendi og úlnlið barns. Vaxandi bein barns hafa kastþynnu sem myndar brjósktengsl milli skafts og enda langbeins. Eðlismassi kastþynnubrjósks er minni en beinvefs og því sjást þessi svæði á röntgenmyndinni sem dökk kastþynnubil við enda langbeinanna, meðal annars sveifar, ölnar, miðhandarbeina og kjúkubeina. Hvaða bein á myndinni sýna ekki kastþynnu (kastþynnubil)?
Horfðu á þetta myndskeið til að sjá hreyfimynd af hálaliðum á hreyfingu. Í hálaliðum liðast bein hvert við annað inni í liðholi. Gerðir hálaliða eru kúluliður (axlarliður), hjöruliður (hnéliður), snúningsliður (liður leikanda og standliðar, milli C1 og C2 í hálsinum), hnúaliður (sveifar- og úlnliðsliður), söðulliður (fyrsti miðhandar- og úlnliðsliðurinn, milli geirstúfsbeins og fyrsta miðhandarbeins við grunn þumals) og renniliður (liðtindaliðir hryggsúlunnar, milli efri og neðri liðtinda). Hvaða gerð hálaliðar hefur mest hreyfisvið?
Farðu á þetta vefsvæði til að lesa um sjúkling sem kemur á sjúkrahús með liðverki og máttleysi í fótleggjum. Hvað olli máttleysi sjúklingsins?
Horfðu á þessa hreyfimynd til að fylgjast með mjaðmarliðskiptaaðgerð (heildarliðskiptum í mjöðm), sem getur dregið úr verkjum og skertri hreyfigetu liðar vegna slitgigtar í mjaðmarlið. Hver er algengasta orsök færniskerðingar í mjöðm?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast um einkenni og meðferð iktsýki. Hvaða kerfi líkamans starfar óeðlilega í iktsýki og hvaða afleiðingar hefur það?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast um líffærafræðilegar hreyfingar. Hvaða hreyfingar auka eða minnka hornið milli fótar og fótleggs um ökklann?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast um kjálkaliðinn (TMJ). Til að opna munninn þarf tvenns konar hreyfingar í kjálkaliðnum: liðþófinn og neðri kjálkinn renna fram og neðri kjálkinn snýst niður í hjöruliðshreyfingu. Hver er fyrsta hreyfing neðri kjálkans þegar munnurinn opnast og hversu mikið opnast munnurinn við hana?
Horfðu á þetta myndskeið til að fá kennslu í líffærafræði axlarliðarins. Hvaða hreyfingar eru mögulegar um axlarliðinn?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast um líffærafræði axlarliðarins, þar á meðal bein, liði, vöðva, taugar og æðar. Hvernig er liðskálarbarmurinn í laginu í þverskurði og hvaða þýðingu hefur sú lögun?
Horfðu á þessa hreyfimynd til að fræðast nánar um líffærafræði olnbogaliðarins. Hvaða byggingar veita olnboganum meginhluta stöðugleika hans?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast nánar um líffærafræði olnbogaliðarins, þar á meðal bein, liði, vöðva, taugar og æðar. Hvert er hlutverk liðbrjósksins?
Horfðu á þetta myndskeið til að fá kennslu í líffærafræði mjaðmarliðarins. Hvaða afleiðing getur fylgt broti á lærleggshálsi inni í liðpoka mjaðmarliðarins?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast nánar um líffærafræði mjaðmarliðarins, þar á meðal bein, liði, vöðva, taugar og æðar. Hvar í mjaðmarliðnum er liðbrjóskið þykkast?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast nánar um beygju og réttu hnésins. Lærleggurinn veltur og rennur eftir sköflungnum svo beinin haldist í stöðugri snertingu í öllum stöðum hnésins. Hnéskelin rennur eftir gróf framan á fjærenda lærleggsins. Hliðarböndin beggja vegna hnésins strekkjast þegar það er rétt að fullu og auka stöðugleika þess. Aftara krossbandið styður hnéð þegar það er beygt en fremra krossbandið strekkist þegar hnéð réttist að fullu og vinnur gegn yfirréttu. Hvaða liðbönd styðja hnéliðinn?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast nánar um líffærafræði hnéliðarins, þar á meðal bein, liði, vöðva, taugar og æðar. Hvaða liðband hnésins kemur í veg fyrir að sköflungurinn renni of langt fram miðað við lærlegginn og hvaða liðband kemur í veg fyrir að hann renni of langt aftur?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast nánar um mismunandi hnéáverka og greiningarrannsóknir á hnénu. Hverjar eru algengustu orsakir áverka á fremra krossbandi?
Horfðu á þetta myndskeið til að fá kennslu í líffærafræði ökklaliðarins. Hvaða þrjú liðbönd eru á hliðlægri hlið ökklaliðarins?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast nánar um líffærafræði ökklaliðarins, þar á meðal bein, liði, vöðva, taugar og æðar. Hvaða gerð trésmíðasamskeyta líkist ökklaliðurinn?
Horfðu á þetta myndskeið til að fræðast um liðbönd ökklaliðarins, ökklatognanir og meðferð. Við innhverfutognun ökklans geta öll þrjú liðböndin sem vinna gegn óhóflegri innhverfu fótarins skaddast. Í hvaða röð skaddast liðböndin þrjú?