Dæmaspurningar
Dæmaspurningar
Teymi örgjörvaframleiðandans AMD skilja vel hvernig stór hugbúnaðarfyrirtæki byggja vörur sínar í kringum örgjörva AMD. Teymin hanna örgjörva með eiginleikum sem höfða til hugbúnaðarfyrirtækjanna og leita álits rannsakenda og hönnuða innan AMD sem þekkja núverandi og væntanlega þróun. Nýir örgjörvar eru hannaðir með hliðsjón af þessari þróun. Greindu fyrst hvaða stíl við lausn vandamála þetta er dæmi um. Taktu síðan þá lykilfærni sem frumkvöðlar þurfa að hafa samkvæmt kaflanum og sýndu hvernig teymi AMD geta beitt henni.
Tamika er ung og stundar frumkvöðlastarf með það markmið að stuðla að samfélagsbreytingum í dreifbýlinu þar sem Tamika býr. Tamika hefur þróað lausnir vegna afrennslis varnarefna, jarðvegseyðingar og eitraðs vatns í brunnum og hefur nú ákveðið að einbeita sér frekar að orkusparnaði og loftgæðum á svæðinu. Fyrsti viðskiptavinurinn hefur áhuga á að nýta vind sem orkugjafa. Tamika veit lítið um vindorku og þarf að kynna sér nýstárlegar lausnir til heimilisnota. Hvernig gæti Tamika notað skapandi aðferðir við lausn vandamála til að þróa lausnir sem mæta óskum viðskiptavinarins?
Með hliðsjón af ábendingum nemenda sinna í öðrum bekk tókst kennaranum Michael Schurr í New York að endurhanna kennslustofuna þannig að hún mætti þörfum nemendanna betur. Eins og lýst er í bókinni Hönnunarhugsun fyrir kennara endurskipulagði hann svæðið við geymsluhólfin til að skapa hálfeinkarými í stofunni og lækkaði töflurnar svo nemendur gætu séð efnið. Hann gerði allar þessar breytingar eftir að hafa óskað eftir áliti nemendanna. Ef kennari leitaði álits þíns, hvernig gætir þú notað verkfæri hönnunarhugsunar til að bæta kennslustofuna?