1515 Næstu skref
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- útgjaldahraði
- sá hraði sem útstreymi handbærs fjár er umfram innstreymi þess
- endurkaupaákvæði
- samningsákvæði um brotthvarf meðlims stofnendateymis áður en verkefnið er uppskorið
- siðareglur
- formleg yfirlýsing sem leiðbeinir um hvernig sýna skuli siðferðilega hegðun
- fyrirtækjamenning
- sameiginleg viðhorf, gildi og forsendur fólks um viðeigandi hegðun innan skipulagsheildar
- Delphi-aðferð
- hópákvarðanaferli þar sem fjölbreyttur hópur fólks á ólíkum stöðum svarar ítrekuðum spurningalistum til að leggja fram hugmyndir, upplýsingar eða lausnir á skilgreindri spurningu eða vandamáli
- stigvaxandi skuldbinding
- tilhneiging til að halda áfram með fyrirfram ákveðna aðgerð vegna fyrri vinnu og framlags til verkefnisins í stað þess að greina núverandi aðstæður sem sýna að nýrrar lausnar eða nálgunar sé þörf
- öryggisviðmið
- fyrirfram skilgreint viðmið sem kallar á mat frumkvöðuls á því hvaða aðgerðir þurfi til að koma rekstri verkefnisins aftur í gott horf og hvort þær séu skynsamlegar og framkvæmanlegar
- stofnendasamningur
- skriflegt skjal sem fjallar um samningsatriði á borð við skiptingu eignarhluta, þóknun, framlag til verkefnisins og tímasettar skuldbindingar gagnvart því
- Gantt-rit
- stikurit sem notað er til að skipuleggja og tímasetja skref ferlis sem taka hvert við af öðru
- baksýnisskekkja
- sú trú eftir á að niðurstaða hafi verið fyrirsjáanleg þótt óviðráðanlegir þættir hafi gert hana ófyrirsjáanlega
- oflæti
- óhóflegt mat á eigin ágæti
- lífsstílsfyrirtæki
- fyrirtæki sem veitir eiganda tekjur sambærilegar við aðrar tegundir atvinnu
- nafnahópatækni
- hópákvarðanaferli þar sem kallað er eftir svörum og þau rædd í mörgum umferðum
- samningur um samkeppnisbann
- formlegur samningur um að undirritandi starfi ekki hjá annarri skipulagsheild sem er beinn samkeppnisaðili núverandi vinnuveitanda meðan á ráðningu stendur og yfirleitt í tiltekinn tíma eftir að ráðningu lýkur
- trúnaðarsamningur
- formlegur samningur um að undirritandi miðli ekki trúnaðarupplýsingum fyrirtækisins til utanaðkomandi aðila
- áætlanaskekkja
- gerð of bjartsýnnar áætlunar sem samræmist ekki varfærnum forsendum
- raðfrumkvöðull
- frumkvöðull sem kemur að stofnun margra frumkvöðlaverkefna hvert á fætur öðru
- félagsauður
- velvild sem skapast með því að aðstoða aðra
- skekkja í þágu óbreytts ástands
- tilhneiging til að líta á fyrri aðgerðir og niðurstöður sem viðtekið mynstur og vænta sömu niðurstöðu ásamt andstöðu við breytingar, nýjar upplýsingar eða nýjar niðurstöður