Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Í stórri borg urðu slys að meðaltali á þriggja mánaða fresti á sérlega fjölförnum gatnamótum. Eftir að íbúar kvörtuðu var umferðarljósunum á gatnamótunum breytt. Nú eru liðnir tíu mánuðir frá breytingunum og ekkert slys hefur orðið. Báru breytingarnar árangur eða er tíu mánaða slysalaust tímabil tilviljun? Síðar í þessum kafla skoðum við þessa spurningu og sjáum að heildun gegnir lykilhlutverki við að finna svarið (sjá dæmi 3.49).
Í fyrri kafla sáum við hve mikilvæg heildun er á fjölmörgum sviðum — allt frá rúmmálsútreikningum og rennslishraða til þess að ákvarða staðsetningu út frá hraðafalli og finna massamiðjur. Því kemur ekki á óvart að allir sem beita heildun þurfi að kunna aðferðir til að finna stofnföll (eða óákveðin heildi). Við höfum þegar fjallað um nokkrar helstu heildunarreglur og heildun með innsetningu. Í þessum kafla kynnumst við fleiri aðferðum, meðal annars leiðum til að nálga ákveðin heildi þegar hefðbundnar aðferðir duga ekki.