Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 2.1 Flatarmál milli ferla
    3. 2.2 Rúmmál reiknað með sneiðum
    4. 2.3 Rúmmál snúða: sívalningshylki
    5. 2.4 Bogalengd ferils og yfirborðsflatarmál
    6. 2.5 Hagnýting í eðlisfræði
    7. 2.6 Vægi og massamiðjur
    8. 2.7 Heildi, vísisföll og lograr
    9. 2.8 Vísisvöxtur og -hnignun
    10. 2.9 Stærðfræðigreining breiðbogafalla
    11. Lykilhugtök
    12. Lykiljöfnur
    13. Meginatriði
    14. Yfirlitsverkefni
  2. A | Heildistafla
  3. B | Afleiðutafla
  4. C | Upprifjun fyrir stærðfræðigreiningu
  5. Atriðisorðaskrá

Bókin og glærur

Sækja bókina (PDF)PowerPoint-glærur
Stærðfræðigreining 2. bindi (IS)2 Hagnýting heildunar

2.7 Heildi, vísisföll og lograr

Námsmarkmið

  • 2.7.1 Setja fram skilgreiningu náttúrlega lograns sem heildi.
  • 2.7.2 Þekkja afleiðu náttúrlega lograns.
  • 2.7.3 Heilda föll sem fela í sér náttúrlega lografallið.
  • 2.7.4 Skilgreina töluna e með heildi.
  • 2.7.5 Þekkja afleiðu og heildi vísisfallsins.
  • 2.7.6 Sanna eiginleika logra og vísisfalla með heildum.
  • 2.7.7 Rita almenn lograföll og vísisföll með náttúrlega logranum og náttúrlega vísisfallinu.

Við höfum þegar fjallað um vísisföll og logra í fyrri köflum. Í þeirri umfjöllun fórum við þó lauslega yfir nokkur mikilvæg atriði. Til dæmis skoðuðum við ekki hvernig fara á með vísisföll með óræðum veldisvísum. Skilgreining tölunnar e er annað atriði sem fyrri umfjöllun gerði ekki full skil. Nú höfum við þau verkfæri sem þarf til að fjalla um þessi hugtök á strangari stærðfræðilegan hátt og það gerum við í þessum undirkafla.

Í þessum undirkafla gerum við ráð fyrir að náttúrlegi logrinn, talan e og heildunar- og deildunarreglurnar sem tengjast þessum föllum hafi enn ekki verið skilgreind. Í lok undirkaflans höfum við fjallað um þessi hugtök á stærðfræðilega strangan hátt (og séð að þau samræmast hugtökunum sem við kynntumst áður).

Við byrjum undirkaflann á því að skilgreina náttúrlega logrann með heildi. Þessi skilgreining er undirstaða undirkaflans. Út frá henni leiðum við út deildunarreglur, skilgreinum töluna e, og útvíkkum síðan hugtökin þannig að þau nái til logra og vísisfalla með hvaða grunntölu sem er.

Náttúrlegi logrinn sem heildi

Rifjum upp veldisregluna fyrir heildi:

∫xndx=xn+1n+1+C,n≠−1.

Ljóst er að reglan gildir ekki þegar n=−1, því þá þyrftum við að deila með núlli. Hvernig förum við þá með ∫1xdx? Rifjum upp úr undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar að ∫1x1tdt er stofnfall 1/x. Við getum því sett fram eftirfarandi skilgreiningu.

Skilgreining

Fyrir x>0, skilgreinum við náttúrlega lografallið með

lnx=∫1x1tdt.
(2.24)

Þegar x>1, er þetta einfaldlega flatarmálið undir ferlinum y=1/t frá 1 til x. Þegar x<1, gildir ∫1x1tdt=−∫x11tdt, svo þá er þetta neikvætt gildi flatarmálsins undir ferlinum frá xtil1 (sjá næstu mynd).

Myndin er í tveimur hlutum. Sá fyrri sýnir minnkandi ferilinn y=1/t í fyrsta fjórðungi. Skyggt svæði undir ferlinum afmarkast til vinstri af x=1 og er merkt „flatarmál = ln x“. Síðari hlutinn sýnir sama feril, y=1/t, og skyggt svæði undir honum sem afmarkast til hægri af x=1. Svæðið er merkt „flatarmál = −ln x“.
Mynd 2.75. (a) Þegar x>1, er náttúrlegi logrinn flatarmálið undir ferlinum y=1/t frá 1tilx. (b) Þegar x<1, er náttúrlegi logrinn neikvætt gildi flatarmálsins undir ferlinum frá x til 1.

Takið eftir að ln1=0. Enn fremur er fallið y=1/t>0 fyrir x>0. Af eiginleikum heilda er því ljóst að lnx er vaxandi fyrir x>0.

Eiginleikar náttúrlega lograns

Eftirfarandi deildunarregla leiðir beint af því hvernig við skilgreindum náttúrlega logrann og af undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar.

Setning 2.15

Afleiða náttúrlega lograns

Fyrir x>0, er afleiða náttúrlega lograns gefin með

ddxlnx=1x.

Setning 2.16

Fylgisetning um afleiðu náttúrlega lograns

Fallið lnx er deildanlegt og er því samfellt.

Graf lnx er sýnt á mynd 2.76. Takið eftir að fallið er samfellt á öllu skilgreiningarmenginu ]0,∞[.

Myndin sýnir vaxandi feril merktan f(x) = ln x. y-ásinn er aðfella ferilsins og ferillinn sker x-ásinn við x=1.
Mynd 2.76. Graf f(x)=lnx sýnir að fallið er samfellt.

Dæmi 2.35

Afleiður náttúrlegra logra reiknaðar

Reiknið eftirfarandi afleiður:

  1. ddxln(5x3−2)
  2. ddx(ln(3x))2

Lausn

Við þurfum að beita keðjureglunni í báðum tilvikum.

  1. ddxln(5x3−2)=15x25x3−2
  2. ddx(ln(3x))2=2(ln(3x))·33x=2(ln(3x))x

Stöðumat 2.35

Reiknið eftirfarandi afleiður:

  1. ddxln(2x2+x)
  2. ddx(ln(x3))2

Athugið að ef við notum algildisfallið og skilgreinum nýtt fall ln|x|, getum við víkkað skilgreiningarmengi náttúrlega lograns þannig að það nái einnig til x<0. Þá gildir (d/(dx))ln|x|=1/x. Af þessu fæst hin kunnuglega heildunarregla.

Setning 2.17

Heildi af (1/u) du

Náttúrlegi logrinn er stofnfall fallsins f(u)=1/u:

∫1udu=ln|u|+C.

Dæmi 2.36

Heildi sem fela í sér náttúrlega logra reiknuð

Reiknið heildið ∫xx2+4dx.

Lausn

Notum u-innsetningu og látum u=x2+4. Þá er du=2xdx og við fáum

∫ x x 2 + 4 d x = 1 2 ∫ 1 u d u = 1 2 ln | u | + C = 1 2 ln | x 2 + 4 | + C = 1 2 ln ( x 2 + 4 ) + C .

Stöðumat 2.36

Reiknið heildið ∫x2x3+6dx.

Þótt við höfum kallað fallið okkar „logra“ höfum við í raun ekki sannað að neinir eiginleikar logra gildi um þetta fall. Það gerum við hér.

Setning 2.18

Eiginleikar náttúrlega lograns

Ef a,b>0 og r er ræð tala gildir

  1. ln1=0
  2. ln(ab)=lna+lnb
  3. ln(ab)=lna−lnb
  4. ln(ar)=rlna

Sönnun

i. Samkvæmt skilgreiningu er ln1=∫111tdt=0.

ii. Við höfum

ln(ab)=∫1ab1tdt=∫1a1tdt+∫aab1tdt.


Notum u-innsetningu á síðasta heildið í þessari stæðu. Látum u=t/a. Þá er du=(1/a)dt. Þegar t=a,u=1, og þegar t=ab,u=b. Því fæst

ln(ab)=∫1a1tdt+∫aab1tdt=∫1a1tdt+∫aabat·1adt=∫1a1tdt+∫1b1udu=lna+lnb.

iv. Athugið að

ddxln(xr)=rxr−1xr=rx.


Enn fremur,

ddx(rlnx)=rx.


Föllin tvö hafa sömu afleiðu. Af undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar leiðir að munurinn á þeim er fasti. Því fæst

ln(xr)=rlnx+C


fyrir einhvern fasta C. Með því að velja x=1, fæst

ln(1r)=rln(1)+C0=r(0)+CC=0.


Því gildir ln(xr)=rlnx og sönnuninni er lokið. Athugið að síðar í þessum undirkafla útvíkkum við þennan eiginleika þannig að hann gildi fyrir óræð gildi r. Liður iii. leiðir af liðum ii. og iv. og ykkur er látið eftir að sanna hann.

□

Dæmi 2.37

Eiginleikar logra notaðir

Notið eiginleika logra til að einfalda eftirfarandi stæðu og rita hana sem einn logra:

ln9−2ln3+ln(13).

Lausn

Við höfum

ln 9 − 2 ln 3 + ln ( 1 3 ) = ln ( 3 2 ) − 2 ln 3 + ln ( 3 −1 ) = 2 ln 3 − 2 ln 3 − ln 3 = − ln 3 .

Stöðumat 2.37

Notið eiginleika logra til að einfalda eftirfarandi stæðu og rita hana sem einn logra:

ln8−ln2−ln(14).

Talan e skilgreind

Nú þegar við höfum skilgreint náttúrlega logrann getum við notað hann til að skilgreina töluna e.

Skilgreining

Talan e er skilgreind sem sú rauntala sem uppfyllir

lne=1

Með öðrum orðum: Flatarmálið undir ferlinum y=1/t milli t=1 og t=e er 1 (mynd 2.77). Ykkur er látið eftir að sanna að slík tala sé til og að hún sé aðeins ein. (Vísbending: Notið milligildissetninguna til að sanna að talan sé til og notið þá staðreynd að lnx er vaxandi til að sanna að hún sé aðeins ein.)

Myndin sýnir graf ferilsins y=1/t. Hann er minnkandi og liggur í fyrsta fjórðungi. Undir ferlinum er skyggt svæði sem afmarkast til vinstri af x=1 og til hægri af x=e. Svæðið er merkt „flatarmál = 1“.
Mynd 2.77. Flatarmálið undir ferlinum frá 1 til e er jafnt einum.

Hægt er að sýna fram á að talan e sé óræð, þótt það verði ekki gert hér (sjá nemendaverkefnið í Taylor- og Maclaurin-röðum). Nálgunargildi hennar er

e≈2,71828182846.

Vísisfallið

Nú beinum við athyglinni að fallinu ex. Athugið að náttúrlegi logrinn er eintækur og hefur því andhverft fall. Í bili táknum við þetta andhverfa fall með expx. Þá gildir

exp(lnx)=xfyrirx>0ogln(expx)=xfyrir öllx.

Eftirfarandi mynd sýnir gröf fallanna expx og lnx.

Myndin sýnir graf með þremur ferlum. Fyrsti ferillinn er merktur exp x. Hann er vaxandi, hefur x-ásinn sem lárétta aðfellu og sker y-ásinn í y=1. Annar ferillinn er skálína gegnum upphafspunktinn. Þriðji ferillinn er merktur ln x. Hann er vaxandi, hefur y-ásinn sem lóðrétta aðfellu og sker x-ásinn í x=1.
Mynd 2.78. Gröf fallanna lnx og expx.

Við setjum fram þá tilgátu að expx=ex. Fyrir ræð gildi x, er auðvelt að sýna fram á þetta. Ef x er ræð tala gildir ln(ex)=xlne=x. Þegar x er ræð tala gildir því ex=expx. Fyrir óræð gildi x, skilgreinum við einfaldlega ex sem andhverfu fallsins lnx.

Skilgreining

Fyrir hverja rauntölu x, skilgreinum við y=ex sem þá tölu sem uppfyllir

lny=ln(ex)=x.
(2.25)

Þá gildir ex=exp(x) fyrir öll x, og því

elnx=xfyrirx>0ogln(ex)=x
(2.26)

fyrir öll x.

Eiginleikar vísisfallsins

Þar sem vísisfallið var skilgreint með andhverfu falli en ekki með veldi af e, verðum við að sannreyna að venjulegar veldisreglur gildi um fallið ex.

Setning 2.19

Eiginleikar vísisfallsins

Ef p og q eru hvaða rauntölur sem er og r er ræð tala gildir

  1. epeq=ep+q
  2. epeq=ep−q
  3. (ep)r=epr

Sönnun

Athugið að ef p og q eru ræðar tölur gilda eiginleikarnir. Ef p eða q er hins vegar óræð tala verðum við að nota skilgreininguna á ex sem andhverfu falli og sannreyna eiginleikana. Hér sannreynum við aðeins fyrsta eiginleikann; ykkur er látið eftir að sannreyna hina tvo. Við höfum

ln(epeq)=ln(ep)+ln(eq)=p+q=ln(ep+q).

Þar sem lnx er eintækt fall fæst

epeq=ep+q.

□

Líkt og í iv. lið eiginleika logra getum við útvíkkað eiginleika iii. þannig að hann gildi fyrir óræð gildi r, og það gerum við í lok undirkaflans.

Við viljum einnig sannreyna deildunarregluna fyrir fallið y=ex. Til þess þurfum við að nota fólgna deildun. Látum y=ex. Þá

lny=xddxlny=ddxx1ydydx=1dydx=y.

Þannig sjáum við

ddxex=ex

eins og stefnt var að, og af því leiðir heildunarreglan þegar í stað:

∫exdx=ex+C.

Við notum þessar formúlur í dæmunum hér á eftir.

Dæmi 2.38

Eiginleikar vísisfalla notaðir

Reiknið eftirfarandi afleiður:

  1. ddte3tet2
  2. ddxe3x2

Lausn

Við beitum keðjureglunni eftir þörfum.

  1. ddte3tet2=ddte3t+t2=e3t+t2(3+2t)
  2. ddxe3x2=e3x26x

Stöðumat 2.38

Reiknið eftirfarandi afleiður:

  1. ddx(ex2e5x)
  2. ddt(e2t)3

Dæmi 2.39

Eiginleikar vísisfalla notaðir

Reiknið eftirfarandi heildi: ∫2xe−x2dx.

Lausn

Notum u-innsetningu og látum u=−x2. Þá er du=−2xdx, og við fáum

∫ 2 x e − x 2 d x = − ∫ e u d u = − e u + C = − e − x 2 + C .

Stöðumat 2.39

Reiknið eftirfarandi heildi: ∫4e3xdx.

Almenn lograföll og vísisföll

Við ljúkum þessum undirkafla með því að skoða vísisföll og logra með öðrum grunntölum en e. Vísisföll eru föll á forminu f(x)=ax. Athugið að nema a=e, höfum við enn ekki stærðfræðilega stranga skilgreiningu á þessum föllum fyrir óræða veldisvísa. Við bætum úr því hér og skilgreinum fallið f(x)=ax með vísisfallinu ex. Síðan skoðum við logra með öðrum grunntölum en e sem andhverf föll vísisfalla.

Skilgreining

Fyrir hvert a>0, og hverja rauntölu x, skilgreinum við y=ax á eftirfarandi hátt:

y=ax=exlna.

Nú er ax skilgreint á stærðfræðilega strangan hátt fyrir öll gildi x. Þessi skilgreining gerir okkur einnig kleift að alhæfa eiginleika iv. logra og eiginleika iii. vísisfalla þannig að þeir gildi bæði fyrir ræð og óræð gildi r. Auðvelt er að sýna að veldisreglurnar gilda um almenn vísisföll sem eru skilgreind með þessum hætti.

Notum nú þessa skilgreiningu til að leiða út deildunarreglu fyrir ax. Við höfum

ddxax=ddxexlna=exlnalna=axlna.

Samsvarandi heildunarregla fæst þegar í stað.

Setning 2.20

Afleiður og heildi almennra vísisfalla

Látum a>0. Þá er

ddxax=axlna

og

∫axdx=1lnaax+C.

Ef a≠1, er fallið ax eintækt og hefur vel skilgreint andhverft fall. Andhverfa þess er táknuð með logax. Þá gildir

y=logaxþá og því aðeins aðx=ay.

Athugið að rita má almenn lograföll með náttúrlega logranum. Látum y=logax. Þá er x=ay. Tökum náttúrlega logrann af báðum hliðum síðari jöfnunnar og fáum

lnx=ln(ay) lnx = ylna y= lnxlna logax=lnxlna.

Því sjáum við að öll lograföll eru fastamargfeldi hvert annars. Næst notum við þessa formúlu til að finna deildunarreglu fyrir logra með grunntölu a. Látum aftur y=logax. Þá fæst

dydx=ddx(logax)=ddx(lnxlna)=(1lna)ddx(lnx)=1lna·1x=1xlna.

Setning 2.21

Afleiður almennra lografalla

Látum a>0. Þá er

ddxlogax=1xlna.

Dæmi 2.40

Afleiður almennra vísisfalla og lografalla reiknaðar

Reiknið eftirfarandi afleiður:

  1. ddt(4t·2t2)
  2. ddxlog8(7x2+4)

Lausn

Við beitum keðjureglunni eftir þörfum.

  1. ddt(4t·2t2)=ddt(22t·2t2)=ddt(22t+t2)=22t+t2ln(2)(2+2t)
  2. ddxlog8(7x2+4)=1(7x2+4)(ln8)(14x)

Stöðumat 2.40

Reiknið eftirfarandi afleiður:

  1. ddt4t4
  2. ddxlog3(x2+1)

Dæmi 2.41

Almenn vísisföll heilduð

Reiknið eftirfarandi heildi: ∫323xdx.

Lausn

Notum u-innsetningu og látum u=−3x. Þá er du=−3dx og við fáum

∫ 3 2 3 x d x = ∫ 3 · 2 −3 x d x = − ∫ 2 u d u = − 1 ln 2 2 u + C = − 1 ln 2 2 −3 x + C .

Stöðumat 2.41

Reiknið eftirfarandi heildi: ∫x22x3dx.

Æfingar í undirkafla 2.7

Finnið í eftirfarandi æfingum afleiðuna dydx.

295.

y = ln ( 2 x )

296.

y = ln ( 2 x + 1 )

297.

y = 1 ln x

Finnið óákveðna heildið í eftirfarandi æfingum.

298.

∫ d t 3 t

299.

∫ d x 1 + x

Finnið í eftirfarandi æfingum afleiðuna dy/dx. (Þið getið notað reiknivél til að teikna gröf fallsins og afleiðunnar og staðfest þannig að niðurstaðan sé rétt.)

300.

[T] y=ln(x)x

301.

[T] y=xln(x)

302.

[T] y=log10x

303.

[T] y=ln(sinx)

304.

[T] y=ln(lnx)

305.

[T] y=7ln(4x)

306.

[T] y=ln((4x)7)

307.

[T] y=ln(tanx)

308.

[T] y=ln(tan(3x))

309.

[T] y=ln(cos2x)

Finnið ákveðið eða óákveðið heildi í eftirfarandi æfingum.

310.

∫ 0 1 d x 3 + x

311.

∫ 0 1 d t 3 + 2 t

312.

∫ 0 2 x d x x 2 + 1

313.

∫ 0 2 x 3 d x x 2 + 1

314.

∫ 2 e d x x ln x

315.

∫ 2 e d x x ( ln x ) 2

316.

∫ cos x d x sin x

317.

∫ 0 π / 4 tan x d x

318.

∫ cot ( 3 x ) d x

319.

∫ ( ln x ) 2 d x x

Reiknið dy/dx í eftirfarandi æfingum með því að deilda lny.

320.

y = x 2 + 1

321.

y = x 2 + 1 x 2 − 1

322.

y = e sin x

323.

y = x −1 / x

324.

y = e ( e x )

325.

y = x e

326.

y = x ( e x )

327.

y = x x 3 x 6

328.

y = x −1 / ln x

329.

y = e − ln x

Reiknið eftirfarandi dæmi með hvaða aðferð sem er.

330.

∫ 5 10 d t t − ∫ 5 x 10 x d t t

331.

∫ 1 e π d x x + ∫ −2 −1 d x x

332.

d d x ∫ x 1 d t t

333.

d d x ∫ x x 2 d t t

334.

d d x ln ( sec x + tan x )

Notið í eftirfarandi æfingum fallið lnx. Notið reiknivél ef ykkur tekst ekki að finna skurðpunkta með greiningaraðferðum.

335.

Finnið flatarmál svæðisins sem afmarkast af x=1 og y=5 ofan við y=lnx.

336.

[T] Finnið bogalengd lnx frá x=1 til x=2.

337.

Finnið flatarmálið milli lnx og x-ássins frá x=1tilx=2.

338.

Finnið rúmmál snúðsins sem myndast þegar þessum ferli er snúið frá x=1tilx=2 um x-ásinn, eins og sýnt er hér.

Myndin sýnir yfirborð sem myndast þegar ferlinum ln x er snúið um x-ásinn. Yfirborðið er inni í teningi sem sýnir að það er þrívítt.
339.

[T] Finnið yfirborðsflatarmál snúðsins sem myndast þegar ferlinum í síðustu æfingu er snúið frá x=1 til x=2 um x-ásinn.

Notið reiknivél í eftirfarandi æfingum ef ykkur tekst ekki að finna skurðpunkta með greiningaraðferðum.

340.

Finnið flatarmál breiðbogafjórðungsins sem afmarkast af x=2ogy=2 ofan við y=1/x.

341.

[T] Finnið bogalengd y=1/x frá x=1tilx=4.

342.

Finnið flatarmálið undir y=1/x og ofan við x-ásinn frá x=1tilx=4.

Sannreynið afleiðurnar og stofnföllin í eftirfarandi æfingum.

343.

d d x ln ( x + x 2 + 1 ) = 1 1 + x 2

344.

d d x ln ( x − a x + a ) = 2 a ( x 2 − a 2 )

345.

d d x ln ( 1 + 1 − x 2 x ) = − 1 x 1 − x 2

346.

d d x ln ( x + x 2 − a 2 ) = 1 x 2 − a 2

347.

∫ d x x ln ( x ) ln ( ln x ) = ln ( ln ( ln x ) ) + C

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/calculus-volume-2/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

2.6 Vægi og massamiðjur

NÆSTI KAFLI

2.8 Vísisvöxtur og -hnignun