Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Hoover-stíflan er einstakt verkfræðiafrek. Þegar Mead-vatn, miðlunarlónið ofan við stífluna, er fullt verkar mikill kraftur á stífluna. Vatnsborð í lóninu breytist hins vegar verulega vegna þurrka og breytilegrar vatnsnotkunar. Síðar í þessum kafla notum við ákveðin heildi til að reikna kraftinn sem verkar á stífluna þegar lónið er fullt og könnum hvernig breytilegt vatnsborð hefur áhrif á kraftinn (sjá dæmi 2.28).
Kraftur vegna vökvastöðuþrýstings er aðeins eitt af fjölmörgum viðfangsefnum í þessum kafla þar sem ákveðin heildi eru notuð. Ákveðin heildi eru öflugt tæki til að skilja og setja fram stærðfræðileg líkön af heiminum í kringum okkur, hvort sem um er að ræða rúmfræðilega hagnýtingu, svo sem útreikning yfirborðsflatarmáls og rúmmáls, eðlisfræðilega hagnýtingu, svo sem útreikning massa og vinnu, eða líkön af vexti og hnignun.