2.5.1 Ákvarða massa einvíðs hlutar út frá línuþéttleikafalli hans.
2.5.2 Ákvarða massa tvívíðs hringlaga hlutar út frá geislaþéttleikafalli hans.
2.5.3 Reikna vinnu breytilegs krafts sem verkar eftir línu.
2.5.4 Reikna vinnuna við að dæla vökva úr einni hæð í aðra.
2.5.5 Finna kraftinn vegna vökvastöðuþrýstings á lóðrétta plötu á kafi.
Í þessum undirkafla skoðum við nokkur dæmi um hagnýtingu heildunar í eðlisfræði. Við byrjum á því að reikna massa út frá þéttleikafalli. Síðan beinum við sjónum að vinnu og ljúkum undirkaflanum með umfjöllun um kraft vegna vökvastöðuþrýstings.
Massi og þéttleiki
Með heildun má leiða út formúlu til að reikna massa út frá þéttleikafalli. Fyrst skoðum við granna stöng eða vír. Leggjum stöngina eftir þannig að vinstri endi hennar sé við og hægri endinn við (mynd 2.48). Á myndunum er stöngin sýnd með nokkurri þykkt, en í útreikningunum gerum við ráð fyrir að hún sé svo grönn að líta megi á hana sem einvíðan hlut.
Mynd 2.48. Reikna má massa grannrar stangar sem liggur eftir með því að heilda þéttleikafall hennar.
Ef stöngin hefur fastan þéttleika gefinn sem massi á lengdareiningu, er massi hennar einfaldlega margfeldi þéttleikans og lengdar stangarinnar: Ef þéttleiki stangarinnar er ekki fastur verður verkefnið hins vegar nokkru flóknara. Þegar þéttleiki stangarinnar breytist frá punkti til punkts notum við línuþéttleikafallið til að tákna þéttleika hennar í hverjum punkti Látum vera heildanlegt línuþéttleikafall. Fyrir látum við nú vera reglulega skiptingu bilsins og fyrir veljum við einhvern punkt Mynd 2.49 sýnir dæmigerðan hluta stangarinnar.
Mynd 2.49. Dæmigerður hluti stangarinnar.
Massi stangarhlutans frá til er nálgaður með
Með því að leggja saman massa allra hlutanna fáum við nálgun á massa allrar stangarinnar:
Þetta er Riemann-summa. Með því að taka markgildið þegar fæst stæða fyrir nákvæman massa stangarinnar:
Við setjum niðurstöðuna fram í eftirfarandi setningu.
Við beitum setningunni í næsta dæmi.
Dæmi 2.23
Massi reiknaður út frá línuþéttleika
Lítum á granna stöng sem liggur eftir x-ásnum á bilinu Hver er massi stangarinnar ef þéttleiki hennar er gefinn með
Nú útvíkkum við hugmyndina til að finna massa tvívíðrar skífu með radíus Eins og með stöngina í einvíða tilvikinu gerum við ráð fyrir að skífan sé svo þunn að í stærðfræðilegum tilgangi megi líta á hana sem tvívíðan hlut. Við gerum ráð fyrir að þéttleikinn sé gefinn sem massi á flatarmálseiningu (kallaður flatarþéttleiki) og jafnframt að þéttleikinn breytist aðeins eftir radíus skífunnar (kallaður geislaþéttleiki). Við leggjum skífuna í með miðju í upphafspunktinum. Þá má líta á þéttleika skífunnar sem fall af táknað Við gerum ráð fyrir að sé heildanlegt. Þar sem þéttleikinn er fall af skiptum við bilinu eftir Fyrir látum vera reglulega skiptingu bilsins og fyrir veljum við einhvern punkt Notum síðan skiptinguna til að skipta skífunni í þunna (tvívíða) hringkraga. Skífa og dæmigerður hringkragi eru sýnd á næstu mynd.
Mynd 2.50. (a) Þunn skífa í xy-sléttunni. (b) Dæmigerður hringkragi.
Nú nálgum við þéttleika og flatarmál hringkragans til að nálga massann, Athugið að flatarmál hringkragans er gefið með
Þið munið ef til vill að við fengum svipaða stæðu þegar við reiknuðum rúmmál með hylkjaaðferðinni. Líkt og þar notum við til að nálga meðalradíus hringkragans. Við fáum
Með því að nota til að nálga þéttleika hringkragans nálgum við massa hans með
Þegar við leggjum saman massa hringkraganna sjáum við að massi allrar skífunnar er nálgaður með
Við sjáum aftur að þetta er Riemann-summa og tökum markgildið þegar Þá fæst
Við tökum niðurstöðurnar saman í eftirfarandi setningu.
Dæmi 2.24
Massi reiknaður út frá geislaþéttleika
Látum tákna geislaþéttleika skífu. Reiknið massa skífu með radíus 4.
Lausn
Með formúlunni fáum við
Vinna krafts
Nú skoðum við vinnu. Í eðlisfræði tengist vinna krafti, sem oft er lýst lauslega sem ýtingu eða togi á hlut. Þegar kraftur færir hlut úr stað segjum við að krafturinn vinni vinnu á hlutnum. Með öðrum orðum má líta á vinnu sem orkuna sem þarf til að færa hlut úr stað. Þegar krafturinn er fastur má samkvæmt eðlisfræði lýsa vinnu sem margfeldi krafts og vegalengdar.
Í SI-kerfinu (metrakerfinu) er kraftur mældur í njútonum og vegalengd í metrum, svo vinna er gefin í njútonmetrum. Eitt njúton er sá kraftur sem þarf til að gefa kílógrammi af massa hröðunina m/s 2. Algengasta eining vinnu er því njútonmetri. Sama eining nefnist einnig júl. Báðar einingarnar eru skilgreindar sem kílógrömm sinnum metrar í öðru veldi deilt með sekúndum í öðru veldi
Þegar kraftur er fastur eru útreikningarnir einfaldir. Kraftur er þó sjaldnast fastur. Vinnan við að þjappa gormi saman (eða teygja hann) breytist til dæmis eftir því hve mikið gorminum hefur þegar verið þjappað saman (eða hann teygður). Við skoðum gorma nánar síðar í þessum undirkafla.
Gerum ráð fyrir breytilegum krafti sem færir hlut í jákvæða stefnu eftir x-ásnum frá punktinum að punktinum Til að reikna vinnuna skiptum við bilinu og metum vinnuna á hverju hlutbili. Fyrir látum við því vera reglulega skiptingu bilsins og fyrir veljum við einhvern punkt Til að reikna vinnuna við að færa hlut frá punktinum að punktinum gerum við ráð fyrir að krafturinn sé nokkurn veginn fastur á bilinu og notum til að nálga kraftinn. Vinnan á bilinu er þá gefin með
Því er vinnan á bilinu um það bil
Ef við tökum markgildi þessarar stæðu þegar fáum við nákvæmt gildi vinnunnar:
Við getum því skilgreint vinnu á eftirfarandi hátt.
Athugið að ef F er fasti, þá er gildi heildisins sem er formúlan sem við settum fram í upphafi þessa undirkafla.
Lítum nú á tiltekið dæmi um vinnuna sem unnin er við að þjappa saman gormi eða teygja hann. Hugsum okkur kubb sem festur er við láréttan gorm. Kubburinn hreyfist fram og til baka þegar gormurinn teygist og þjappast saman. Í raunverulegum aðstæðum þyrftum við að taka tillit til núningskraftsins milli kubbsins og yfirborðsins sem hann hvílir á, en hér lítum við fram hjá núningi og gerum ráð fyrir að kubburinn hvíli á núningslausu yfirborði. Þegar gormurinn hefur náttúrulega lengd sína (er í hvíld) segjum við að kerfið sé í jafnvægi. Þá er gormurinn hvorki teygður né samanþjappaður og kubburinn hreyfist ekki úr jafnvægisstöðunni fyrr en krafti er beitt. Við veljum hnitakerfið þannig að samsvari jafnvægisstöðunni (sjá næstu mynd).
Mynd 2.51. Kubbur festur við láréttan gorm þegar gormurinn er í jafnvægisstöðu, samanþjappaður og teygður.
Samkvæmt lögmáli Hookes er krafturinn sem þarf til að þjappa gormi saman eða teygja hann frá jafnvægisstöðu gefinn með fyrir einhvern fasta Gildi ræðst af eðliseiginleikum gormsins. Fastinn nefnist gormstuðull og er alltaf jákvæður. Við getum notað þessar upplýsingar til að reikna vinnuna við að þjappa gormi saman eða teygja hann, eins og sýnt er í næsta dæmi.
Dæmi 2.25
Vinnan sem þarf til að teygja eða þjappa saman gormi
Gerum ráð fyrir að það þurfi kraft sem nemur N (í neikvæða stefnu) til að þjappa gormi saman um m frá jafnvægisstöðu. Hve mikil vinna er unnin við að teygja gorminn m frá jafnvægisstöðu?
Lausn
Finnum fyrst gormstuðulinn Þegar vitum við að svo að
og Til að reikna vinnuna heildum við síðan kraftfallið og fáum
Vinnan við að teygja gorminn er J.
Vinna við dælingu
Skoðum vinnuna við að dæla vatni (eða öðrum vökva) úr tanki. Dæluverkefni eru nokkru flóknari en gormaverkefni því margir útreikningar ráðast af lögun og stærð tanksins. Auk þess skoðum við nú vinnuna við að færa tiltekið rúmmál af vatni en ekki einn hlut með tiltekinn massa. Meiri vinnu þarf til að færa vatn af botni tanksins en vatn sem er efst í honum.
Við skoðum ferlið fyrst fyrir sívalan tank og síðan nokkur dæmi með tönkum af annarri lögun. Gerum ráð fyrir að sívalur tankur með radíus m og hæð m sé fylltur af vatni upp í 8 m dýpt. Hve mikla vinnu þarf til að dæla öllu vatninu upp yfir efri brún tanksins?
Fyrst þurfum við að skilgreina viðmiðunarkerfi. Látum tákna lóðrétta fjarlægð niður frá efri brún tanksins. Með öðrum orðum látum við liggja lóðrétt, með upphafspunktinn efst í tankinum og jákvæða stefnu niður á við (sjá næstu mynd).
Mynd 2.52. Hve mikla vinnu þarf til að tæma tank sem er að hluta fylltur af vatni?
Í þessu hnitakerfi nær vatnið frá til Við skiptum því bilinu og skoðum vinnuna sem þarf til að lyfta hverju einstöku „lagi“ vatns. Fyrir látum við vera reglulega skiptingu bilsins og fyrir veljum við einhvern punkt Mynd 2.53 sýnir dæmigert lag.
Mynd 2.53. Dæmigert vatnslag.
Í dæluverkefnum þarf krafturinn sem lyftir vatninu upp að efri brún tanksins að vinna gegn þyngdaraflinu. Hann er því jafn þyngd vatnsins. Þyngdarþéttleiki vatns er N/m 3 (eðlismassinn kg/m 3 sinnum þyngdarhröðunin 9,8 m/s 2), svo að þyngdin fæst með því að reikna rúmmál hvers lags. Í þessu tilviki fæst
Þá er krafturinn sem þarf til að lyfta hverju lagi
Athugið að þetta skref verður nokkru flóknara ef tankurinn er ekki sívalur. Við skoðum slíkan tank í næsta dæmi.
Við þurfum einnig að vita hve langt þarf að lyfta vatninu. Miðað við hnitakerfið sem við völdum getum við notað sem nálgun á vegalengdina sem þarf að lyfta laginu um. Þá er vinnan við að lyfta vatnslaginu um það bil
Með því að leggja saman vinnuna fyrir hvert lag sjáum við að áætluð vinna við að tæma tankinn er gefin með
Þetta er Riemann-summa og með því að taka markgildið þegar fæst
Vinnan sem þarf til að tæma tankinn er um það bil 23.650.000 J.
Útreikningar í dæluverkefnum ráðast af lögun tanksins eða ílátsins. Eftirfarandi lausnarleið lýsir skref fyrir skref hvernig leysa má dæluverkefni.
Nú notum við þessa lausnarleið í dæmi með ósívölum tanki.
Dæmi 2.26
Dæluverkefni með ósívölum tanki
Gerum ráð fyrir tanki í laginu eins og keila á hvolfi, með hæðina m og grunnradíusinn m. Tankurinn er fullur í upphafi og vatni er dælt upp yfir efri brún hans þar til hæð vatnsins sem eftir er í tankinum er m. Hve mikla vinnu þarf til að dæla út þessu vatnsmagni?
Lausn
Tankurinn er sýndur á mynd 2.54. Eins og í dæminu með sívala tankinum látum við liggja lóðrétt, með upphafspunktinn efst í tankinum og jákvæða stefnu niður á við (skref 1).
Mynd 2.54.Vatnstankur í laginu eins og keila á hvolfi.
Tankurinn er fullur í upphafi en að lokum eru m af vatni eftir. Miðað við valið viðmiðunarkerfi þurfum við því að skipta bilinu Fyrir látum við síðan vera reglulega skiptingu bilsins og fyrir veljum við einhvern punkt Við getum nálgað rúmmál lags með skífu og síðan notað einslaga þríhyrninga til að finna radíus skífunnar (sjá næstu mynd).
Mynd 2.55.Einslaga þríhyrningar notaðir til að lýsa radíus vatnsskífu.
Af eiginleikum einslaga þríhyrninga fæst
Þá er rúmmál skífunnar
Þyngdarþéttleiki vatns er N/m 3, þannig að krafturinn sem þarf til að lyfta hverju lagi er um það bil
Samkvæmt myndinni þarf að lyfta vatninu um það bil m (skref 4), þannig að vinnan sem þarf til að lyfta laginu er um það bil
Með því að leggja saman vinnuna sem þarf til að lyfta öllum lögunum fáum við nálgun fyrir heildarvinnuna:
Ef við tökum markgildið þegar fáum við
Það þarf um það bil J af vinnu til að tæma tankinn niður í æskilega hæð.
Kraftur og þrýstingur í vökva
Í þessum síðasta hluta skoðum við kraftinn og þrýstinginn sem verkar á hlut á kafi í vökva. Kraftur er mældur í njútonum. Þrýstingur er kraftur á flatarmálseiningu og er því gefinn í njútonum á fermetra, sem einnig nefnast pasköl.
Byrjum á einföldu tilviki þar sem plata með flatarmálið er lárétt á kafi í vatni á dýpinu s (mynd 2.56). Þá er krafturinn sem verkar á plötuna einfaldlega þyngd vatnsins fyrir ofan hana, og hann er gefinn með þar sem er þyngdarþéttleiki vatns (þyngd á rúmmálseiningu). Til að finna vökvastöðuþrýstinginn – það er að segja þrýstinginn sem vatn beitir á hlut á kafi – deilum við kraftinum með flatarmálinu. Þrýstingurinn er því
Mynd 2.56. Plata lárétt á kafi í vatni.
Samkvæmt lögmáli Pascals er þrýstingur á tilteknu dýpi sá sami í allar áttir og því skiptir ekki máli hvort platan er lárétt eða lóðrétt á kafi. Ef við þekkjum dýpið þekkjum við því þrýstinginn. Við getum beitt lögmáli Pascals til að finna kraftinn sem verkar á lóðrétta fleti, svo sem stíflur. Við getum ekki beitt formúlunni beint, því dýpið breytist frá einum punkti til annars á lóðréttum fleti. Eins og við höfum oft gert áður myndum við því skiptingu, Riemann-summu og að lokum ákveðið heildi til að reikna kraftinn.
Gerum ráð fyrir að þunn plata sé á kafi í vatni. Við veljum viðmiðunarkerfi þannig að x-ásinn liggi lóðrétt, jákvæða stefnan vísi niður á við og punkturinn samsvari hentugum viðmiðunarpunkti. Látum tákna dýpið í punktinum x. Athugið að við látum oft samsvara yfirborði vatnsins. Í þessu tilviki er dýpið í hverjum punkti einfaldlega gefið með Í sumum tilvikum gætum við þó viljað velja annan viðmiðunarpunkt fyrir og því leiðum við formúluna út fyrir almenna tilvikið. Að lokum látum við tákna breidd plötunnar í punktinum
Gerum ráð fyrir að efri brún plötunnar sé við punkt og neðri brún hennar við punkt Fyrir látum síðan vera reglulega skiptingu bilsins og fyrir veljum við einhvern punkt Skiptingin skiptir plötunni í nokkrar þunnar, rétthyrndar ræmur (sjá næstu mynd).
Mynd 2.57. Þunn plata lóðrétt á kafi í vatni.
Metum nú kraftinn á dæmigerða ræmu. Ef ræman er nógu þunn getum við litið svo á að hún sé á föstu dýpi, Þá fæst
Með því að leggja kraftana saman fáum við mat á kraftinum sem verkar á plötuna:
Þetta er Riemann-summa, svo markgildi hennar gefur nákvæman kraft:
(2.13)
Með því að reikna heildið fáum við kraftinn sem verkar á plötuna. Við tökum þetta saman í eftirfarandi lausnarleið.
Dæmi 2.27
Kraftur vegna vökvastöðuþrýstings fundinn
Vatnsrenna er 15 m á lengd og endar hennar eru í laginu eins og jafnarma þríhyrningar á hvolfi með grunnlínuna 8 m og hæðina 3 m. Finnið kraftinn sem verkar á annan enda rennunnar þegar hún er full af vatni.
Lausn
Mynd 2.58 sýnir rennuna og nákvæmari mynd af öðrum enda hennar.
Mynd 2.58.(a) Vatnsrenna með þríhyrningslaga þversnið. (b) Mál annars enda vatnsrennunnar.
Veljum viðmiðunarkerfi þar sem liggur lóðrétt og stefna niður á við er jákvæð. Látum efri brún rennunnar samsvara punktinum (skref 1). Dýptarfallið er þá Með því að nota einslaga þríhyrninga sjáum við að (skref 2). Þyngdarþéttleiki vatns er N/m 3 (skref 3), þannig að með því að beita jöfnu 2.13 fáum við
Vatnið verkar á enda rennunnar með 117.600 N krafti (skref 4).
Dæmi 2.28
Kaflaupphaf: Kraftur vegna vökvastöðuþrýstings fundinn
Nú beinum við sjónum aftur að Hoover-stíflunni sem var nefnd í upphafi kaflans. Stíflan er í raun bogadregin en ekki flöt. Til að auðvelda útreikningana gefum við okkur samt nokkrar einfaldandi forsendur. Gerum ráð fyrir að framhlið Hoover-stíflunnar sé í laginu eins og jafnarma trapisa með neðri grunnlínuna m, efri grunnlínuna m og hæðina m (sjá næstu mynd).
Þegar miðlunarlónið er fullt er mesta dýpi Mead-vatns um 160 m og yfirborð vatnsins er um 3 m fyrir neðan efri brún stíflunnar (sjá næstu mynd).
Mynd 2.59.Einfaldað líkan af Hoover-stíflunni með gefnum málum.
Finnið kraftinn sem verkar á framhlið stíflunnar þegar miðlunarlónið er fullt.
Þurrkar hafa geisað í suðvesturhluta Bandaríkjanna og yfirborð Mead-vatns er um 40 m neðar en það væri ef miðlunarlónið væri fullt. Hvaða kraftur verkar á framhlið stíflunnar við þessar aðstæður?
Lausn
Við byrjum á að velja viðmiðunarkerfi. Eins og venjulega látum við liggja lóðrétt með jákvæða stefnu niður á við. Að þessu sinni látum við hins vegar tákna efri brún stíflunnar en ekki yfirborð vatnsins. Þegar miðlunarlónið er fullt er yfirborð vatnsins m fyrir neðan efri brún stíflunnar, svo (sjá næstu
mynd). Mynd 2.60 Fyrst veljum við viðmiðunarkerfi. Til að finna breiddarfallið notum við aftur einslaga þríhyrninga eins og næsta
mynd sýnir. Mynd 2.61 Einslaga þríhyrningar notaðir til að ákvarða fall fyrir breidd stíflunnar. (a) Gefin mál stíflunnar. (b) Einslaga þríhyrningarnir auðkenndir. Af myndinni sjáum við að
Af eiginleikum einslaga þríhyrninga fæst Því fæst Með þyngdarþéttleikanum N/m 3 (skref 3) og með því að beita jöfnu 2.13 fæst Takið eftir breytingunni úr njútonum í kílónjúton:
N = kN) (skref 4).
Takið eftir að þurrkarnir breyta dýptarfallinu,
og heildunarmörkunum. Við höfum Neðri heildunarmörkin eru Efri mörkin eru enn Með því að reikna heildið fæst
Æfingar í undirkafla 2.5
Finnið vinnuna í eftirfarandi æfingum.
218.
Finnið vinnuna sem unnin er þegar fastur kraftur N færir stól frá til m.
219.
Hve mikil vinna er unnin þegar manneskja lyftir kg kassa með myndasögum upp á vörubílspall sem er m frá jörðu? (Athugið að massinn 1 kg vegur 9,8 N nálægt yfirborði jarðar.)
220.
Hve mikil vinna er unnin við að lyfta kg barni af gólfinu upp í m hæð? (Athugið að massinn kg vegur N nálægt yfirborði jarðar.)
221.
Finnið vinnuna þegar kassa er ýtt m eftir gólfi með föstum krafti
222.
Reiknið vinnu kraftsins N frá til m.
223.
Hve mikil vinna er unnin við að færa ögn frá til m ef krafturinn sem verkar á hana er N?
Finnið massa einvíða hlutarins í eftirfarandi æfingum.
224.
Vír sem er m á lengd (frá og hefur þéttleikafallið g/m
225.
Bílaloftnet sem er m á lengd (frá og hefur þéttleikafallið g/m
226.
Málmstöng sem er cm á lengd (frá og hefur þéttleikafallið g/cm
227.
Blýantur sem er cm á lengd (frá og hefur þéttleikafallið g/cm
228.
Reglustika sem er cm á lengd (frá og hefur þéttleikafallið g/cm
Finnið massa tvívíða hlutarins með miðju í upphafspunktinum í eftirfarandi æfingum.
229.
Óvenjustór íshokkípökkur með radíus cm og þéttleikafallið
230.
Frisbídiskur með radíus cm og þéttleikafallið
231.
Plata með radíus cm og þéttleikafallið
232.
Krukkulok með radíus cm og þéttleikafallið
233.
Skífa með radíus cm og þéttleikafallið
234.
Til að teygja gorm sem er cm á lengd í cm þarf kraft sem nemur N. Hver er gormstuðullinn?
235.
Gormur hefur náttúrulega lengd cm. Það þarf J til að teygja hann í cm. Hve mikla vinnu þarf til að teygja gorminn frá cm í cm?
236.
Til að teygja gorm sem er m á lengd þarf J af vinnu svo að hann verði m. Hve mikla vinnu þarf til að teygja gorminn frá m í m?
237.
Það þarf J til að teygja gorm frá cm í cm og J til viðbótar til að teygja hann frá cm í cm. Hver er náttúruleg lengd gormsins?
238.
Höggdeyfir þjappast saman um 5 cm undan þunga hlutar sem er 1 tonn (1000 kg) að massa. (Massinn 1 kg vegur 9,8 N.) Hver er gormstuðullinn?
239.
Krafturinn N teygir ólínulegan gorm um metra. Hve mikla vinnu þarf til að teygja gorminn frá til m?
240.
Finnið vinnuna við að vinda upp hangandi kapal sem er m á lengd og hefur þyngdarþéttleikann N/m.
241.
Hve mikil vinna er unnin við að lyfta kaplinum í æfingunni á undan um m?
242.
Hve mikil viðbótarvinna er unnin ef lóð sem vegur N er hengt í enda kapalsins í æfingunni á undan?
243.
[T] Pýramídi með hæðina m hefur ferningslaga grunnflöt sem er m sinnum m. Finnið flatarmálið í hæðinni Ef bergið sem notað var til að byggja pýramídann vegur um hve mikla vinnu þurfti til að lyfta öllu berginu?
244.
[T] Gerum ráð fyrir að verkamenn hafi byggt pýramídann í æfingunni á undan og hver þeirra unnið klukkustundir á dag, daga í viku og vikur á ári. Ef verkamennirnir lyftu að meðaltali 10 steinum sem hver um sig var 50 kg að massa um m á klukkustund, hve lengi voru þeir að byggja pýramídann? (Massinn 1 kg vegur 9,8 N.)
245.
[T] Þyngdarkrafturinn á massann er njúton. Reiknið vinnuna við að lyfta eldflaug sem hefur massann frá til km. Gefið svörin með þremur markverðum tölustöfum. (Athugið: og
246.
[T] Finnið vinnuna við að lyfta eldflauginni úr æfingunni á undan frá til
247.
[T] Rétthyrnd stífla er m á hæð og m á breidd. Gerið ráð fyrir að þyngdarþéttleiki vatns sé 9800 N/m3. Reiknið heildarkraftinn á stífluna þegar
yfirborð vatnsins er við efri brún stíflunnar og
yfirborð vatnsins er mitt á milli efri og neðri brúnar stíflunnar.
248.
[T] Finnið vinnuna sem þarf til að dæla öllu vatninu úr sívalningi sem hefur hringlaga grunnflöt með radíusinn m og hæðina m. Notið að þyngdarþéttleiki vatns er N/m 3.
249.
[T] Finnið vinnuna sem þarf til að dæla öllu vatninu úr sívalningnum í æfingunni á undan ef hann er aðeins hálffullur af vatni.
250.
[T] Hve mikla vinnu þarf til að dæla vatninu úr sundlaug ef flatarmál botnsins er m 2, vatnsdýptin er m og efri brún laugarinnar er m fyrir ofan vatnsborðið? Gerið ráð fyrir að þyngdarþéttleiki vatns sé N/m 3.
251.
Sívalningur með dýptina og þversniðsflatarmálið er fullur af vatni með eðlismassann Reiknið vinnuna við að dæla öllu vatninu upp að efri brún.
252.
Reiknið vinnuna við að dæla öllu vatninu upp að efri brún sívalningsins í æfingunni á undan ef hann er aðeins hálffullur af vatni.
253.
Keilulaga tankur hefur þversniðsflatarmál sem vex með dýptinni: Sýnið að vinnan við að tæma hann er helmingur vinnunnar við að tæma sívalning með sömu hæð og sama grunnflöt.