Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Í maí 2018 lokaði Starbucks um átta þúsund verslunum sínum í Bandaríkjunum til að fræða starfsfólk um kynþáttabundna hlutdrægni (mynd 3.1). Ákvörðunin kom í kjölfar harðra viðbragða um allan heim við handtöku tveggja svartra manna á Starbucks-kaffihúsi í Fíladelfíu. 1 Mennirnir biðu þar eftir vini sínum þegar hvítur starfsmaður hringdi í neyðarlínuna 9-1-1 vegna þess að þeir höfðu ekkert keypt. Fyrirtækið breytti einnig formlega reglum sínum og heimilaði fólki að koma inn í verslanir þess og nota snyrtingarnar án þess að kaupa nokkuð, í þeirri von að koma mætti í veg fyrir fleiri slík atvik. Mennirnir tveir sömdu að lokum við Starbucks um bætur að ótilgreindri fjárhæð.
Starbucks er eitt stærsta smásölufyrirtæki heims á sviði drykkjarvöru og hefur bein áhrif á ótal hagsmunaaðila: dreifingaraðila matvæla og drykkjarvöru, ræktendur kaffis og tes, mjólkurframleiðendur, samfélög í borgum og úthverfum, stjórnvöld á sveitar-, fylkis- og landsvísu, meira en 300.000 starfsmenn, 1.600 fagfjárfesta og milljónir viðskiptavina. 2 Það kostaði fyrirtækið mikið að loka öllum verslunum sínum í Bandaríkjunum í hálfan dag og ein fræðslulota gat aldrei leyst allan þann vanda sem fylgir meðvitaðri og ómeðvitaðri hlutdrægni. Starbucks taldi þetta engu að síður rétt að gera. Hvers vegna skiptir breytni fyrirtækisins hagsmunaaðila þess máli? Hvaða áhrif hafa hagsmunaaðilar á ákvarðanir fyrirtækja um siðferðilega breytni og hvers vegna?