Samantekt kafla
Samantekt kafla
10.1 Uppfinningar, nýjungar og vélvæðing
Á tímum annarrar iðnbyltingarinnar breyttist líf í iðnvæddum ríkjum verulega. Á rafvæddum og vélvæddum vinnustöðum þurfti ófaglært verksmiðjufólk að vinna langan vinnudag fyrir lág laun. Vinnan var oft hættuleg og atvinnuöryggi lítið. Iðnvæðingin hafði þó einnig kosti í för með sér. Við lok nítjándu aldar voru fjöldaframleiddar neysluvörur orðnar nógu ódýrar til að verkafólk hefði efni á gerðum af vörum sem áður höfðu aðeins staðið millistéttinni og efri stéttum til boða. Vélvæðing landbúnaðar og þróun kælivagna fyrir járnbrautir gerðu matvæli aðgengilegri og ódýrari. Bætt hreinlæti og framfarir í læknisfræði drógu úr ungbarnadauða og juku lífslíkur fullorðinna. Mikilvægar lýðfræðilegar breytingar urðu á sama tíma. Við lok nítjándu aldar eignuðust fjölskyldur bæði úr millistétt og verkalýðsstétt færri börn, enda gerðu lög sem takmörkuðu barnavinnu og skylduðu börn til skólagöngu erfiðara að hafa þau í vinnu.
10.2 Lífið í iðnaðarborginni
Við lok nítjándu aldar voru borgir iðnvæddra ríkja fullar af fólki í atvinnuleit. Borgirnar buðu upp á ýmis lífsgæði. Þeir sem kusu hámenningu gátu reglulega sótt leiksýningar, tónleika, óperur og ballettsýningar. Tónlistarhallir, spilasalir og burlesque-sýningar höfðuðu til alþýðusmekks, rétt eins og skemmtigarðar. Bókasöfn og almenningsgarðar stóðu öllum opnir. Stórverslanir gáfu fólki kost á að kaupa nýjustu tískuvörurnar eða láta sig dreyma um þær við búðargluggana.
Borgarlífið átti sér einnig neikvæðar hliðar. Húsnæði, einkum húsnæði innflytjenda og verkafólks, var yfirleitt yfirfullt og herbergi oft án fersks lofts og sólarljóss. Bæði vatn og loft í iðnaðarborgum voru menguð og smitsjúkdómar á borð við kóleru og berkla algengir. Fátækt leiddi mörg út í drykkju og sumar konur gripu til vændis til að komast af. Bókmenntir og listir rómantíkeranna, raunsæismannanna og natúralistanna sýndu allar hliðar lífs á iðnvæðingaröld.
10.3 Þvinguð og hálfþvinguð vinna
Þótt verkafólk í iðnvæddum ríkjum hefði takmarkað val um vinnustað og starfskjör naut margt annað vinnufólk ekki einu sinni þessa litla frelsis. Þrælahald hélst fram á síðari hluta nítjándu aldar í Bandaríkjunum og Brasilíu og bændaánauð sömuleiðis í Rússlandi. Í öðrum tegundum ófrjálsrar vinnu sinntu samningsvinnufólk og samningsbundið vinnufólk landbúnaðarstörfum og annarri vinnu í öllum sex heimsálfum sem fólk byggir. Skuldaánauð hélt einnig mörgu fólki föstu, þar á meðal bandarískum leiguliðum af afrískum uppruna sem greiddu landskuld með hluta uppskerunnar og konum í textíliðnaði í Japan. Fangar voru einnig oft dæmdir til vinnu sem hluta refsingar sinnar. Þessi kerfi þvingaðrar og hálfþvingaðrar vinnu héldust við víða um heim alla nítjándu öldina.
10.4 Samfélög í dreifingu
Á síðari hluta nítjándu aldar fluttist mikill fjöldi fólks búferlum undan fátækt, ofbeldi og náttúruhamförum. Evrópubúar fluttu til Norður- og Suður-Ameríku, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Suður-Afríku. Asíubúar héldu til Vestur-Evrópu, Ameríku og Afríku. Innflytjendur unnu einkum láglaunastörf sem reyndu mjög á líkamann, á plantekrum, við járnbrautir og í verksmiðjum. Innflytjendur af öðrum uppruna en evrópskum mættu einnig kynþáttafordómum í samfélögum þar sem Evrópubúar voru ráðandi. Sum ríki reyndu að takmarka innflutning tiltekinna hópa. Bandaríkin, Kanada og Ástralía gripu til aðgerða til að banna fólksflutninga frá Asíu. Bandaríkin reyndu einnig að takmarka innflutning fólks frá Suður- og Austur-Evrópu.
10.5 Regluverk, umbætur og byltingarkenndar hugmyndastefnur
Tilraunir til að leysa vandamál iðnvæðingar og þéttbýlismyndunar tóku á sig ýmsar myndir. Sum stjórnvöld settu lög til að afnema barnavinnu, veita verkafólki tryggingar, sjá til þess að húsnæði væri öruggt, koma í veg fyrir loft- og vatnsmengun og setja reglur um vændi. Umbótasinnar úr millistétt reyndu að bæta samfélagið með því að breyta hegðun einstaklinga. Þeir lögðu áherslu á siðferði og reyndu oft að takmarka eða banna áfengisneyslu. Margir börðust einnig fyrir réttindum kvenna. Verkafólk reyndi að bæta kjör sín með stofnun stéttarfélaga sem þrýstu á atvinnurekendur um að stytta vinnutíma, hækka laun og tryggja öruggari vinnuaðstæður. Margt verkafólk leitaði einnig á vettvang stjórnmála til að vernda hagsmuni sína. Undir áhrifum sósíalisma, þeirrar hugmyndastefnu að afnám kapítalismans væri lausn á samfélagsmeinum, gekk það til liðs við sósíaldemókrataflokka sem skipulögðu stéttarfélög og neyddu stjórnvöld til að setja lög til verndar verkafólki. Aðrir sósíalistar boðuðu að valdastéttinni yrði steypt af stóli með ofbeldi og það gerðu sumir stjórnleysingjar einnig.