10.3 Þvinguð og hálfþvinguð vinna
10.3 Þvinguð og hálfþvinguð vinna
Markmið
Við lok þessa hluta átt þú að geta:
Flest verkafólk í iðnvæddum löndum var frjálst á tímum annarrar iðnbyltingarinnar. „Frjálst“ er þó afstætt hugtak í þessu samhengi. Atvinnurekendur gátu hvorki keypt né selt verkafólkið eða vinnu þess. Að lögum gat það yfirgefið vinnustað sinn ef það kaus svo. En vegna sárfátæktar margs verkafólks er erfitt að líta svo á að það hafi í raun verið frjálst. Það stritaði langan vinnudag við hættuleg störf sem það hataði, enda voru einu valkostirnir heimilisleysi og hungur. Engu að síður hafði það ýmislegt fram yfir margt annað verkafólk á nítjándu öld og átti nokkurra kosta völ, þótt takmarkaðir væru. Þegar kom að mörgu öðru fólki höfðu atvinnurekendur enn lagalegan rétt til að knýja það til vinnu að meira eða minna leyti.
Þrælahald og bændaánauð
Við lok nítjándu aldar var lausafjárþrælkun, þar sem ein manneskja er eign annarrar og hægt er að kaupa hana eða selja, aðeins við lýði á fáeinum stöðum í heiminum. Sum ríki höfðu þegar afnumið þrælahald áður en önnur iðnbyltingin hófst. Japan afnam það formlega á sextándu öld. Bretland afnam þrælaverslun og þrælahald að fullu árið 1834. Frakkland bannaði þrælahald árið 1848 og frelsaði þar með nær allt fólk sem haldið var í þrældómi á Karíbahafssvæðinu. Á Indlandi lögðu hegningarlögin frá 1861 refsingu við tilraunum til að hneppa aðra í þrældóm. Holland og Bandaríkin voru meðal síðustu iðnríkjanna til að binda enda á þrælahald. Hollendingar frelsuðu fólk sem haldið var í þrældómi í nýlendunni Súrínam í Suður-Ameríku árið 1863 og Bandaríkin afnámu þrælahald með samþykkt þrettándu stjórnarskrárbreytingarinnar árið 1865.
Flest ríki Rómönsku Ameríku afnámu þrælahald í kjölfar sjálfstæðisstríða sinna snemma á nítjándu öld. Brasilía, sem byggði efnahag sinn einkum á landbúnaði, stóðst hins vegar lengi kröfur umbótasinna um afnám þrælahalds. Árið 1850 lét landið loks undan þrýstingi frá helsta viðskiptafélaga sínum, Bretlandi, sem hafði tekið að sér þá siðferðilegu skyldu að afnema þrælahald um heim allan skömmu eftir að það frelsaði fólkið sem það sjálft hélt í þrældómi. Brasilía batt enda á þrælaverslun sína og árið 1871 samþykkti landið lög sem kváðu á um að öll börn sem fæddust konum í þrældómi þaðan í frá skyldu vera frjáls. Árið 1885 var ákveðið að allt fólk sem haldið var í þrældómi skyldi öðlast frelsi við sextugt. Að lokum var þrælahald afnumið að fullu árið 1888.
Auk þrýstings Breta höfðu fleiri þættir áhrif á ákvörðun Brasilíu. Frammistaða karla sem haldið var í þrældómi á vígvellinum í stríði Brasilíu við Paragvæ á árunum 1864–1870 varð til þess að margir hvítir hermenn dáðust að bardagamönnunum af afrísk-brasilískum uppruna og þeir urðu tregir til að handsama á ný fólk sem hafði flúið úr þrældómi. Margir hvítir Brasilíumenn töldu einnig að þjóð þeirra gæti ekki orðið nútímaleg og iðnvædd ef þar byggi stór hópur fólks af afrískum uppruna. Í þeirra augum var afnám þrælahalds fyrsta skrefið á leiðinni að hvítari Brasilíu.
Bændaánauð hvarf einnig að mestu á síðari hluta nítjándu aldar. Ánauðugir bændur voru ófrjálsir bændur sem að lögum voru bundnir við að vinna landið sem þeir bjuggu á, en það var í eigu annarra. Nær allir ánauðugir bændur sem eftir voru í Evrópu bjuggu í Rússlandi. Um ellefu milljónir þeirra voru í eigu einstaklinga og tólf til þrettán milljónir til viðbótar í eigu ríkisins. Alexander II Rússakeisari afnam bændaánauð í Rússlandi árið 1861. Það bætti þó ekki endilega líf ánauðugu bændanna. Þótt þeir hefðu verið leystir úr ánauð urðu þeir að þjóna húsbændum sínum í tvö ár til viðbótar. Að þeim tíma liðnum máttu þeir halda kyrru fyrir á jörðunum sem þeir höfðu unnið, en urðu að kaupa þær, oft á háu verði. Heimilisþjónar í ánauð, það er þeir sem höfðu sinnt heimilisstörfum, fengu ekkert land. Í sumum hlutum rússneska heimsveldisins hélst bændaánauð við í nokkra áratugi til viðbótar.
Samningsvinna og skuldaánauð
Þótt þrælahald og bændaánauð hyrfu úr iðnvæddum heimi á nítjándu öld voru enn aðrar leiðir til að tryggja vinnuafl til langs tíma eða frambúðar, bæði við landbúnaðar- og iðnaðarframleiðslu. Tvö slík kerfi eru samningsvinna og skuldaánauð. Samningsvinna er kerfi þar sem fólk undirritar samninga um að vinna gegn greiðslu og er enn við lýði í dag. Samningsbundin þjónusta er tegund samningsvinnu þar sem fólk skuldbindur sig til að vinna um umsamið tímabil gegn umsömdu endurgjaldi. Samningsbundnu vinnufólki er ekki haldið í þrældómi, en meðan samningurinn gildir hafa atvinnurekendur þess nær alger yfirráð yfir því og því er óheimilt að yfirgefa þjónustuna. Skuldaánauð er kerfi þar sem skuldari vinnur fyrir lánardrottin sinn, eða útvegar annan til að vinna fyrir hann, þar til skuldin hefur verið greidd með vinnu. Samningsbundin þjónusta og skuldaánauð eru svipuð kerfi og voru algeng seint á nítjándu öld. Þau eru frábrugðin þrælahaldi að því leyti að ánauðinni lýkur fræðilega séð einhvern tíma.
Samningsbundin þjónusta hafði verið algeng í Bandaríkjunum á nýlendutímanum og með henni gátu margir Evrópubúar greitt fyrir farið til Norður-Ameríku. Um miðja nítjándu öld var hún að mestu liðin undir lok í Bandaríkjunum en var enn við lýði á fáeinum stöðum. Á Havaí réðu plantekrueigendur samningsbundið vinnufólk frá Portúgal, Kína, Kóreu, Japan og Filippseyjum til að rækta nytjaplöntur, einkum sykurreyr. Margir kínverskir innflytjendur komu einnig til Bandaríkjanna sem samningsbundið vinnufólk. Þeir störfuðu ekki samkvæmt samningi við atvinnurekanda sinn. Þess í stað höfðu þeir skuldbundið sig til að vinna fyrir einn samlanda sinna til að greiða fyrir fari sitt til Bandaríkjanna. Six Companies, fyrirtæki í eigu Kínverja sem stofnað var til að flytja kínverska innflytjendur til Norður-Ameríku, flutti marga kínverska verkamenn til útlanda. Þeir urðu að greiða fyrirtækinu skuld sína áður en þeir fengu að snúa heim.
Eftir afnám þrælahalds reiddu aðrir heimshlutar sig einnig á ýmsar tegundir samningsvinnu. Á nítjándu öld var Ástralía háð samningsbundnu vinnufólki frá eyjum Kyrrahafsins, svo sem Salómonseyjum, Túvalú, Samóa og Gilbertseyjum, sem nú nefnast Kíribatí. Blómleg verslun með samningsbundið vinnuafl flutti einnig kínverskt og indverskt vinnufólk til starfa í Rómönsku Ameríku, á Karíbahafssvæðinu, í Suðaustur-Asíu og í nýlendum Evrópuríkja í Afríku. Þetta fólk fékk of lág laun, var látið vinna úr hófi fram, var beitt grimmilegum agaviðurlögum og fékk aðeins nægan mat til að geta unnið. Fréttir af illri meðferð þess sannfærðu mörg iðnríki um að hætta þátttöku í versluninni. Bretland bannaði skipum sínum að flytja asískt vinnufólk til Kúbu og Perú, tveggja helstu áfangastaðanna. Árið 1874 fylgdi Portúgal fordæmi Breta og kom í veg fyrir að verslunin færi fram í Makaó, portúgalskri nýlendu í Asíu sem margt kínverskt vinnufólk fór um á leið til annarra heimshluta.
Skuldaánauð var einnig algeng uppspretta vinnuafls sums staðar í heiminum seint á nítjándu öld. Á 1880-árunum leiddi efnahagskreppa í Japan marga til gjaldþrots og hungurs. Foreldrar „leigðu“ börn sín, einkum dætur, til verksmiðja. Stúlkunum var séð fyrir fæði og húsaskjóli og laun þeirra voru send heim til foreldranna. Dætur voru einnig stundum leigðar til vændishúsa. Skylduræknar dætur gátu jafnvel tekið þá ákvörðun sjálfar til að hlífa foreldrum sínum við sársaukanum. Í Bandaríkjunum var skuldaánauð algengt úrræði bænda í suðurríkjunum til að hafa vinnuafl svartra Bandaríkjamanna og fátæks hvíts fólks til reiðu. Hún fjötraði einnig margt asískt verkafólk sem fluttist til Suður-Ameríku, jafnvel eftir að samningar þess voru útrunnir.
Sums staðar var nánast ómögulegt að losna úr skuldaánauð. Hjá leiguliðum sem greiddu landskuld með hlut uppskerunnar og öðrum leiguliðum sem ræktuðu land annarra réðst afkoman af uppskerunni. Fyrir uppskerutímann keyptu þeir nauðsynjavörur, svo sem mat, í skuld hjá verslun á staðnum sem landeigandinn átti yfirleitt. Þeir þurftu einnig oft að kaupa fræ og fá búnað landeigandans til afnota. Þegar þeir seldu afurðirnar eftir uppskeruna greiddu þeir skuldir sínar. Vöruverð og vextir verslunareigandans voru oft svo há að tekjur af uppskerunni dugðu ekki til að greiða skuldir verkafólksins. Ógreiddum hluta skuldanna var þá bætt við upphæðina sem tekin var að láni út á næstu uppskeru. Sumir atvinnurekendur greiddu vinnufólki sínu með launamiðum, greiðslumiðli sem kom í stað peninga og aðeins var hægt að innleysa gegn vörum í verslun atvinnurekandans. Þar sem verkafólkið gat ekki verslað annars staðar átti það ekki annarra kosta völ en að stofna til skulda. Ungu konurnar á japönsku vændishúsunum fengu ekki greitt með launamiðum, en kostnaður við allt sem þeim var útvegað, þar á meðal fatnað og mat, var skráður. Þær gátu ekki öðlast frelsi fyrr en þær höfðu endurgreitt bæði upphaflegu fjárhæðina sem greidd hafði verið fyrir þær og allan framfærslukostnað sinn.
Fangavinna
Nauðungarvinna sem dæmdir afbrotamenn voru látnir vinna í refsingarskyni, svonefnd fangavinna, var einnig notuð á síðari hluta nítjándu aldar. Frá 1788 til 1868 stóðu breskir fangar, sem flestir höfðu verið dæmdir fyrir afbrot án ofbeldis, frammi fyrir þeim kosti að veslast upp í fangaklefa eða vera fluttir til nýlendunnar Ástralíu. Kysu þeir Ástralíu biðu þeirra sjö til tíu ára erfiðisvinna eftir sjóferð sem gat tekið átta mánuði. Þeir óheppnu voru settir í vinnuflokka sem lögðu vegi eða reistu opinberar byggingar. Aðrir störfuðu fyrir bændur eða kaupmenn. Þegar þeir höfðu afplánað dóminn gátu þeir annaðhvort sest að í Ástralíu sem landnemar eða snúið aftur til Englands.
Líkt og Bretland notaði Rússland dæmda fanga til að mæta þörf fyrir vinnuafl í afskekktum hlutum heimsveldisins þar sem erfitt var að laða að fólk sem vildi setjast þar að af fúsum vilja. Í katorga-kerfinu voru fangar sendir til Síberíu og Austurlanda fjær í Rússlandi (mynd 10.14). Karlarnir, sem voru oft pólitískir fangar, felldu yfirleitt tré eða unnu í námum. Stundum voru þeir leigðir einkarekendum.

Mörg önnur ríki, svo sem Bandaríkin, notuðu einnig fanga sem vinnuafl eða leigðu einkaaðilum vinnuafl þeirra. Eftir afnám þrælahalds kröfðust suðurríki Bandaríkjanna þess oft að svartir karlar gerðu árlega samninga við hvíta atvinnurekendur. Karl sem hafði ekki slíkan samning gat verið handtekinn fyrir flakk og síðan neyddur til að undirrita vinnusamning og starfa við landbúnað. Fólk sem dæmt var fyrir raunveruleg afbrot og vistað í fangelsi var einnig oft látið vinna kauplaust, innan eða utan fangelsisins. Fangar voru oft látnir leggja vegi í suðurríkjum Bandaríkjanna.