Spurningar til gagnrýninnar hugsunar
Spurningar til gagnrýninnar hugsunar
Hugsaðu um eitthvað sem þú keyptir nýlega. Hvaða sjónarmið vógu þyngst áður en þú tókst ákvörðunina?
Reglur stjórnmála og hagfræði fara ekki alltaf saman. Við gerð fjárhagsáætlana opinberra stofnana er stundum beitt svonefndu Washington-minnisvarðabragði. Þegar stofnun stendur frammi fyrir niðurskurði lokar hún þá áberandi og vinsælli þjónustu, svo sem Washington-minnisvarðanum, til að gera áhrif niðurskurðarins sem sýnilegust. Útskýrðu með hliðsjón af minnkandi jaðarnytjum hvers vegna bragðið gefur villandi mynd af skynsamlegri forgangsröðun. Vísbending: Ef markmiðið er að nýta skerta fjárveitingu sem best, ætti að skera niður liði með há eða lág jaðarnyt? Hvorir liðanna verða fyrir niðurskurði þegar Washington-minnisvarðabragðinu er beitt?
Tekjuáhrif ráðast af tekjuteygni eftirspurnar eftir þeim vörum sem neytandi kaupir. Gerum ráð fyrir að aðeins tvær vörur séu til skoðunar og önnur þeirra sé óæðri vara með neikvæða tekjuteygni. Hvað hlýtur þá að gilda um tekjuteygni hinnar vörunnar?