Spurningar til upprifjunar
Spurningar til upprifjunar
Hvað felst í ytri áhrifum?
Nefndu eitt dæmi um jákvæð ytri áhrif og eitt um neikvæð ytri áhrif.
Hvernig er einkakostnaður frábrugðinn samfélagslegum kostnaði?
Tekur framboðsferill fyrirtækis á markaði án umhverfisreglna tillit til einkakostnaðar, ytri kostnaðar, hvors tveggja eða hvorugs? Rökstyddu svarið.
Hvað felst í reglusetningu í umhverfismálum með boðum og bönnum?
Hvaða þrjá helstu annmarka hafa hagfræðingar bent á varðandi reglusetningu með boðum og bönnum?
Hvað er mengunargjald og hvaða hvata skapar það fyrir fyrirtæki til að taka ytri kostnað með í reikninginn?
Hvað er framseljanleg losunarheimild og hvaða hvata skapar hún fyrir fyrirtæki til að taka ytri kostnað með í reikninginn?
Hvað er átt við með skýrt skilgreindum eignarréttindum og hvaða hvata skapa þau til að taka ytri kostnað með í reikninginn?
Eftir því sem umhverfisvernd er aukin, má þá búast við að jaðarkostnaður hennar hækki eða lækki? Rökstyddu svarið.
Eftir því sem umhverfisvernd er aukin, má þá búast við að jaðarábati hennar aukist eða minnki? Rökstyddu svarið.
Hvaða hagrænu fórnarskipti milli lágtekju- og hátekjuríkja koma til umræðu á alþjóðlegum ráðstefnum um hnattræn umhverfisspjöll?
Hvaða rök færa lágtekjuríki fram í alþjóðlegum umræðum um aðgerðir gegn hnattrænum umhverfisspjöllum?
Hvað tákna mismunandi samsetningar á framleiðslumöguleikajaðrinum þegar litið er til fórnarskipta milli framleiðslu og umhverfisverndar?
Hvað sýnir punktur innan framleiðslumöguleikajaðarsins?