77 Hornafallasamsemdir og -jöfnur
Inngangur að hornafallasamsemdum og -jöfnum

Yfirlit kaflans
Inngangur að hornafallasamsemdum og -jöfnum
Stærðfræði er alls staðar, jafnvel þar sem við komum ekki strax auga á hana. Stærðfræðileg vensl lýsa til dæmis flutningi mynda, ljóss og hljóðs. Með sínuslaga bylgjum má lýsa hljóðmerkjum, svo sem tónlist sem leikin er í síma, útvarpi eða tölvu. Myndin hér að ofan sýnir bylgjuform á sveiflusjárskjá. Slíkum bylgjuformum má lýsa með hornaföllum og hornafallajöfnum. Í þessum kafla skoðum við hvernig beita má ýmsum formúlum og hornafallasamsemdum til að umrita hornafallajöfnur með algebruaðferðum. Við skoðum einnig hvernig nota má hornafallajöfnur við gerð líkana af raunverulegum fyrirbærum.