88 Skriðþungi
Hæfnisverkefni
8.3 Fjaðrandi og ófjaðrandi árekstrar
Verkefni 20. Þú þarft eftirfarandi:
- kúlur með mismunandi massa
- reglustiku eða trélista
- nokkrar bækur
- pappabikar
Búðu til skáplan með því að hvíla annan enda reglustiku á bókastafla. Settu pappabikar við hinn endann. Láttu kúlu rúlla frá efri enda reglustikunnar þannig að hún hitti pappabikarinn. Mældu færslu pappabikarsins af völdum árekstursins. Notaðu síðan sífellt þyngri kúlur í verkefninu og athugaðu hvaða áhrif það hefur á færslu bikarsins. Teiknaðu graf sem sýnir færslu sem fall af massa. Endurtaktu síðan sama verkefni, en í stað þess að nota mismunandi kúlur skaltu breyta halla reglustikunnar með því að breyta hæð bókastaflans. Þannig fær kúlan mismunandi hraða. Athugaðu hvaða áhrif það hefur á færslu pappabikarsins.