Gagnrýnin hugsun
8.1 Skriðþungi, kraftur og atlag
Hugsum okkur tvo hluti með sama massa. Ef kraftur sem er 100 N verkar á fyrri hlutinn í 1 s og á hinn í 2 s, hver eftirfarandi fullyrðinga er þá sönn?
- Fyrri hluturinn fær meiri skriðþunga.
- Seinni hluturinn fær meiri skriðþunga.
- Báðir hlutirnir fá sama skriðþunga.
- Hvorugur hluturinn verður fyrir breytingu á skriðþunga.
Bílar nú til dags eru með hluta sem geta krumpast eða fallið saman við árekstur. Hvernig hjálpar þetta til við að vernda farþega?
- Það dregur úr meiðslum farþega með því að lengja höggtímann.
- Það dregur úr meiðslum farþega með því að stytta höggtímann.
- Það dregur úr meiðslum farþega með því að auka breytingu á skriðþunga.
- Það dregur úr meiðslum farþega með því að minnka breytingu á skriðþunga.
Hversu mikinn kraft þarf til að valda 17 kg·m/s breytingu á skriðþunga hlutar ef krafturinn verkar í 5 s?
- 3,4 N
- 12 N
- 22 N
- 85 N
8.2 Varðveisla skriðþunga
Billjardkúla sem rúllar á borði hefur skriðþungann p⃗₁. Hún rekst á aðra kyrrstæða kúlu sem fer þá að rúlla. Ef gert er ráð fyrir að núningur sé hverfandi, hvað gerist þá við skriðþunga fyrri kúlunnar?
- Hann minnkar.
- Hann eykst.
- Hann verður núll.
- Hann helst óbreyttur.
Kúla sem rúllar á gólfi með skriðþunga p⃗₁ rekst á kyrrstæða kúlu og kemur henni af stað. Skriðþungi fyrri kúlunnar verður p⃗′₁ og skriðþungi seinni kúlunnar verður p⃗′₂. Stefna p⃗₁, p⃗′₁ og p⃗′₂ er öll sú sama. Berið saman stærðir p⃗₁ og p⃗′₂.
- Skriðþungarnir p⃗₁ og p⃗′₂ eru jafn stórir.
- Summa stærða p⃗₁ og p⃗′₂ er núll.
- Stærð p⃗₁ er meiri en stærð p⃗′₂.
- Stærð p⃗′₂ er meiri en stærð p⃗₁.
Tveir bílar hreyfast í sömu átt. Annar bíllinn, með skriðþunga p⃗₁, rekst á hinn, sem hefur skriðþunga p⃗₂. Skriðþungarnir verða p⃗′₁ og p⃗′₂ í sömu röð. Ef tekið er tillit til núningstaps, berið saman (p⃗′₁ + p⃗′₂) og (p⃗₁ + p⃗₂).
- Gildið á (p⃗′₁ + p⃗′₂) er núll.
- Gildin á (p⃗₁ + p⃗₂) og (p⃗′₁ + p⃗′₂) eru jöfn.
- Gildið á (p⃗₁ + p⃗₂) verður meira en (p⃗′₁ + p⃗′₂).
- Gildið á (p⃗′₁ + p⃗′₂) verður meira en (p⃗₁ + p⃗₂).
8.3 Fjaðrandi og ófjaðrandi árekstrar
15. Tvær manneskjur með sama massa kasta tveimur mismunandi hlutum með sama hraða. Ef fyrri hluturinn er þyngri en sá seinni, berið saman hraðann sem manneskjurnar fá vegna bakslags.
- Fyrri manneskjan fær meiri hraða vegna bakslags.
- Seinni manneskjan fær meiri hraða vegna bakslags.
- Báðar manneskjurnar fá sama hraða vegna bakslags.
- Hraði beggja manneskja verður núll vegna bakslags.