88 Skriðþungi
Lykilhugtök
- hverfiþungi
- margfeldi tregðuvægis og hornhraða(angular momentum)
- breyting á skriðþunga
- munurinn á loka- og upphafsgildi skriðþunga; massi margfaldaður með breytingu á hraða(change in momentum)
- fjaðrandi árekstur
- árekstur þar sem hlutir skiljast að eftir höggið og hreyfiorka varðveitist(elastic collision)
- atlag
- meðal-ytri heildarkraftur margfaldaður með tímanum sem krafturinn verkar; jafngildir breytingu á skriðþunga(impulse)
- setning um atlag og skriðþunga
- atlagið, eða breytingin á skriðþunga, er margfeldi ytri heildarkrafts og tímans sem krafturinn verkar(impulse-momentum theorem)
- ófjaðrandi árekstur
- árekstur þar sem hreyfiorka varðveitist ekki(inelastic collision)
- einangrað kerfi
- kerfi þar sem ytri heildarkraftur er núll(isolated system)
- lögmál um varðveislu skriðþunga
- þegar ytri heildarkraftur er núll varðveitist heildarskriðþungi kerfisins, það er hann helst fastur(law of conservation of momentum)
- skriðþungi
- margfeldi massa kerfis og hraða þess(linear momentum)
- fullkomlega ófjaðrandi árekstur
- árekstur þar sem hlutir loða saman eftir höggið og hreyfiorka varðveitist ekki(perfectly inelastic collision)
- punktmassar
- agnir án innri byggingar sem geta hvorki snúist né spunnið(point masses)
- bakslag
- hreyfing hlutar aftur á bak vegna flutnings skriðþunga frá öðrum hlut í árekstri(recoil)