Inngangur

Efnisyfirlit kafla
Inngangur
Sara Minkara, bandarísk múslimsk kona af líbönskum ættum, missti sjónina sjö ára að aldri vegna erfðasjúkdóms. Í uppvextinum varð hún fyrir mismunun vegna uppruna síns og illri meðferð vegna fötlunar sinnar. Sem háskólanemi í Bandaríkjunum áttaði Minkara sig á að hún naut forréttinda sem önnur börn í upprunalandi hennar, Líbanon, höfðu ekki. Löngun hennar til að bæta aðstæður ungmenna í svipaðri stöðu kveikti hjá henni ástríðu fyrir því að efla blind börn og hvetja þau til þátttöku í samfélögum sínum. Vandamálið: Í mörgum samfélögum er sjónskert fólk jaðarsett og jafnvel álitið byrði. Þessa hlutdrægni má að hluta rekja til aðgengishindrana og menningarlegra viðhorfa og venja sem takmarka í reynd getu þess til að taka frjálsan og virkan þátt í samfélaginu. Lausnin: fræðsluáætlanir og vitundarvakning sem efla sjónskert fólk frá unga aldri og veita því þjálfun í að tjá sig af festu.
Þegar Minkara var tuttugu og sjö ára stofnaði hún Empowerment Through Integration (ETI), samfélagsfyrirtæki sem eflir sjónskert ungmenni í Mið-Austurlöndum, Norður-Afríku og Bandaríkjunum. Starfsemin hefur vaxið úr sumarbúðum í litla hreyfingu sem aðstoðar meira en 3.000 einstaklinga í Líbanon og Bandaríkjunum. Hlutverk og framtíðarsýn ETI eru að stuðla að samfélagi án aðgreiningar, vinna gegn félagslegum fordómum gagnvart fötlun um allan heim og efla blind ungmenni.1 Einn af einkennisviðburðum Minkara er „Kvöldverður í myrkri“. Þar fá þátttakendur innsýn í líf blinds fólks og fræðslu um möguleika allra, einkum fatlaðs fólks og þar með talið sjónskerts fólks.
Neðanmálsgreinar
- 1 „Um ETI.“ Empowerment through Integration. án ártals. https://www.etivision.org/about-eti