Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Árangursríkir stjórnendur á tuttugustu og fyrstu öld þurfa að gera sér grein fyrir því hve margvíslegar siðferðilegar ákvarðanir þeir taka og hvaða áhrif þær hafa á starfsfólk, viðskiptavini og samfélagið í heild. Allar eiga ákvarðanirnar það sameiginlegt að stjórnendur þurfa að viðurkenna og virða réttindi allra.
Virkur stuðningur við fjölbreytni á vinnustað gagnast bæði fyrirtækinu og samfélaginu í heild (mynd 8.1). Siðferðilega ábyrgir stjórnendur mæta sérstökum þörfum starfsfólks, virða ólíka trú þess, meta og viðurkenna ólíka kynhneigð og kynvitund og tryggja launajafnrétti. Þeir fylgjast jafnframt með viðhorfum almennings, svo sem kröfum hagsmunaaðila um virðingu fyrir réttindum dýra, og þróun slíkra viðhorfa, einkum á samfélagsmiðlum.
Hvernig myndir þú sem stjórnandi skapa vinnustað þar sem fjölbreytni og inngilding eru höfð að leiðarljósi? Hvernig myndir þú bregðast við starfsfólki sem væri mótfallið slíkri vinnustaðamenningu? Hvernig myndir þú taka á víðtækum samfélagslegum álitamálum á borð við tekjuójöfnuð eða réttindi dýra? Í þessum kafla er fjallað um hugsanleg áhrif nokkurra brýnustu samfélagsmálefna samtímans á atvinnulíf og um hvernig stjórnendur geta virt réttindi allra og jafnframt bætt rekstrarárangur með siðferðilega réttum ákvörðunum.