Að þessum kaflahluta loknum átt þú að geta:
Aristóteles og Konfúsíus mótuðu hvor um sig siðfræðikerfi sem byggðist á dygð. Lokamarkmið Aristótelesar var farsæld en Konfúsíusar samhljómur. Hvor þeirra tók á við tiltekinn vanda. Hjá Aristótelesi fólst farsæld í sannleiksleit, sem aftur krafðist yfirvegaðs og staðfasts einstaklings er gæti staðist mótlæti og veikleika eigin skapgerðar. Konfúsíus vildi koma ró á þjóðarsál Kínverja með því að móta kerfi sem endurspeglaði himneska skipan á jörðu. Bæði kerfin byggja á ígrunduðum leiðum að skynsamlegum markmiðum.
Í ljósi þess hve ólíkar menningarlegar og sögulegar aðstæður voru í Grikklandi og Kína til forna kann að koma á óvart að dygðasiðfræði Aristótelesar og Konfúsíusar skuli vera lík að ýmsu leyti. Kerfin tvö eiga margt sameiginlegt og bæði leggja þau áherslu á sjálfsstjórn. Hjá Aristótelesi birtist sjálfsstjórnin í ígrundunarferli siðvits (phrónēsis) sem leiddi til dygðugs lífernis, samhljóms og farsældar. Þessi beiting siðvits tengdist sjálfsaga eða hófsemi. Í konfúsíanískri dygðasiðfræði byggðist sjálfsstjórnin á sjálfsstýringu; frumhvötum var haldið í skefjum og einstaklingurinn öðlaðist getu og hugrekki til að breyta á mennskari hátt (mynd 2.6). Slík sjálfsstjórn gagnaðist ekki aðeins einstaklingnum heldur einnig fjölskyldunni og þar með þjóðinni. Sjálfsstýring var leið Konfúsíusar til að koma á skipan.

Í viðskiptum tengist sjálfsstjórn beint stjórnunarsiðfræði, það er viðhorfi til eigin hlutverks, starfsfólks og skipulagsheildarinnar þar sem jafnvægi ríkir milli ábyrgðar einstaklingsins og ábyrgðar heildarinnar. Stjórnun felur jafnframt í sér áætlanagerð, skipulag og forystu til að ná markmiðum skipulagsheildarinnar. 28 Sjálfsagaður stjórnandi getur ratað um skrifræðið og tekist á við margbreytileg mannleg samskipti. Þannig getur hann náð markmiðum á ábyrgan og arðbæran hátt og jafnframt eflt hlutverk og menningu skipulagsheildarinnar. Markmiðunum er ekki náð á kostnað hagsmunaaðila heldur með sanngjörnum hætti fyrir alla. Jafnvel mætti segja að réttsýni leiði til réttlætis sem rúmi hagnað. Áður kom fram að hvorki Aristóteles né Konfúsíus lögðust gegn hagnaði svo lengi sem hann gagnaðist mannkyninu með einhverjum hætti. Báðir hefðu þeir haft skýra afstöðu til þess að hámarka auð hluthafa.
Þrátt fyrir þessi líkindi hefðanna tveggja er einnig munur á þeim. Meginmunurinn liggur í þungamiðju siðferðisins. Aristóteles lagði áherslu á einstaklinginn, sem átti að rækja hlutverk sitt af sæmd og taka örlögum sínum af reisn og jafnaðargeði. Skynsemin var grundvöllur þessarar afstöðu. Hjá Konfúsíusi, sem tók mið af sögulegum þrengingum Kína, var fjölskyldan þungamiðjan. Hann leit á hana sem afl sem gæti bundið enda á stjórnleysi og komið þjóðinni á rétta braut með því að leggja grunn að tengslum í einkalífi og atvinnulífi. Fjölskyldan skipti vissulega Aristóteles máli, rétt eins og einstaklingurinn skipti Konfúsíus máli, en áherslan var ólík í kerfunum tveimur. Aristóteles viðurkenndi að „einmana maður á erfitt líf, því ekki er auðvelt að halda uppi samfelldri athöfn einn síns liðs; í félagsskap við aðra og í tengslum við þá er það auðveldara.“ 29
Óháð því hver rót siðferðilegrar hegðunar var þurfti fólk í viðskiptum að sýna ábyrgð og ábyrgðarskyldu. Það bar ábyrgð gagnvart viðskiptavinum og birgjum þegar það afhenti vörur á borð við fíkjur, leirmuni eða ólífuolíu. Fólk varð jafnframt að breyta af ábyrgð til að varðveita persónulegt og faglegt orðspor sitt. Viðskipti voru því kjörinn vettvangur siðferðis, bæði á Austurlöndum og Vesturlöndum, því þar reyndi á dygðir með mjög áþreifanlegum hætti. Konfúsíus hvatti alla fylgjendur sína til að verða mikil eða mannúðleg manneskja, ru, en ekki smámenni. 30 Þetta skipti svo miklu að skólinn sem stofnaður var eftir dauða hans varð þekktur sem Ru-skólinn og meginreglur hans nefnast ruismi. 31
Annað mikilvægt einkenni dygðasiðfræði Austurlanda og Vesturlanda er samþætting einkalífs og atvinnulífs. Fólk gat ekki breytt með einum hætti heima en allt öðrum á opinberum vettvangi, allra síst leiðtogar samfélagsins, kaupmenn, kennarar og valdhafar. Sú tilhneiging nútímans að aðskilja ólíkar hliðar sjálfs síns eftir aðstæðum hefði komið fólki í Grikklandi eða Kína til forna spánskt fyrir sjónir. Verslunarstjóri sem leggur rausnarlega af mörkum til verndar tegundum í útrýmingarhættu en sér ekkert athugavert við að ganga svo hart að sölufólki að það brennur út til að ná mánaðarmarkmiðum hefur til dæmis ekki samþætt persónulegt og faglegt líf sitt. Slík hegðun stendur jafnvel í vegi fyrir farsæld einstaklingsins og góðu samfélagslífi. Allir vilja skilvirkni í viðskiptum, en aðskilnaður persónulegra og faglegra hugsjóna getur leitt til þess að persónuleg ábyrgð dreifist innan skipulagsheildar. Afleiðingin getur orðið fjármálahrun, líkt og þegar græðgi og reglubrot í húsnæðis- og fjármálageiranum leiddu til heimskreppunnar 2008. 32
Hvernig gæti samþætting einkalífs og atvinnulífs birst og hvernig má beita henni í viðskiptatengslum? Til að svara því skulum við íhuga kjarna þeirrar dygðugu manneskju sem hvort siðfræðikerfi um sig vildi móta. Hjá Aristótelesi kom dygðug manneskja auga á sannleikann við hvers kyns aðstæður. Þegar sannleikurinn hafði verið viðurkenndur var ekki hægt að hafna honum án þess að fórna heiðrinum. Konfúsíus kenndi með svipuðum hætti: „Göfugmenni víkur ekki frá mennskunni svo lengi sem máltíð varir. Í flýti og fári heldur það fast við hana; í falli og hrösun heldur það sig við hana.“ 33
Þótt bæði kerfin legðu áherslu á skapgerð var hún ekki ein og sér það sem skilgreindi dygðugan einstakling, fjölskyldu, borgríki eða þjóð. Menntun átti fremur að umbreyta einstaklingnum í annars konar manneskju, sem breytti af dygð jafnvel þótt enginn sæi til. Þegar fólk einbeitir sér að leiðunum að markmiði verða þær smám saman að lífshætti sem skiptir jafnvel meira máli en markmiðið sjálft. Leiðirnar þurfa því ekki aðeins að samræmast markmiðinu; þær verða sjálfar hluti af því sem skilgreinir hina dygðugu manneskju.
Samþætting einkalífs og atvinnulífs birtist á tvennan hátt: í hvata og vitund. Hvatinn er viljinn til að gera hið rétta vegna þess að það er rétt, jafnvel þótt enginn augljós ávinningur fylgi. Segja má að þar opinberist hið sanna eðli einstaklingsins. Hinn þátturinn, vitundin, er hæfnin til að sjá siðferðilega vídd allra atburða, valkosta, ákvarðana og athafna. Mörgum viðskiptahneykslum mætti afstýra ef fleiri skildu gildi mannauðs og nauðsyn þess að sjá heildarmyndina; með öðrum orðum að setja ábyrgð framar arðsemi. Eins og Konfúsíus hefði sagt er það manneskjan sem getur víkkað Veginn, ekki Vegurinn sem víkkar manneskjuna. 34
Grundvallarspurning í siðfræði er hvort unnt sé að finna algildan, hlutlægan siðferðilegan sannleika sem gildir þvert á menningarheima, landsvæði og tíma. Á allra dýpsta stigi gæti svarið verið já. Eins og Aristóteles benti á er siðfræði ekki vísindi heldur list. 35 Ef til vill er best að svara spurningunni með því að skoða aðferðir við siðferðilega ákvarðanatöku. Sú nálgun samræmist líkönum Aristótelesar og Konfúsíusar ef við gefum okkur að flestir fylgi samvisku sinni og breyti af skynsemi og ábyrgð þegar þeir hafa öðlast innsýn. Þá mætti laga aðferðir við ákvarðanatöku að hvaða samhengi eða siðferðilega vanda sem er. En hvað telst skynsamleg og ábyrg aðferð og hver fær að velja hana?
Hugsanlega mætti móta siðferðileg hegðunarviðmið sem vísuðu fólki leið að sanngjörnum og réttlátum viðskiptaháttum. Slík viðmið eru þegar til í flestum atvinnugreinum og starfsstéttum. Almennt viðurkenndar reikningsskilareglur (GAAP) veita fólki sem starfar við reikningshald og fjármál í Bandaríkjunum leiðsögn. Alþjóðastaðlastofnunin setur leiðbeiningar og verklagsreglur fyrir fjölmargar atvinnugreinar. Ásamt opinberu regluverki gætu slík viðmið myndað grundvöll siðferðilegrar hegðunar, jafnvel á heimsvísu. Þeir sem móta leiðbeiningarnar þyrftu vitaskuld að virða sjálfræði einstaklinga og fullveldi ríkja, einkum þegar kemur að alþjóðlegri lögsögu, friðhelgi einkalífs og mannréttindum. Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar (IFRS) gegna til dæmis hlutverki alþjóðlegra reikningsskilareglna og hjálpa fyrirtækjum að birta fjárhagslegar niðurstöður á sameiginlegu reikningsskilamáli þvert á landamæri.
Hversu mjög sem við leggjum okkur fram mun sá sem vill stunda viðskipti af eigingirni og án siðferðilegrar ábyrgðar gera það, nema nægilega öflugir hvatar hamli því. Það skýrir hvers vegna Aristóteles og Konfúsíus lögðu áherslu á menntun. Með þessar tvær fornu nálganir að leiðarljósi kann nú að vera þörf á viðskiptamenntun sem beinist að umbreytingu fremur en fylgni við leiðbeiningar. Sú hugmynd snertir kjarna kenninga beggja: þjálfun og menntun. Þjálfun og menntun hjálpa fólki að tileinka sér óeigingjarnari viðskiptahætti og samþætta betur persónulegan og faglegan skilning á því hvernig koma beri fram við vini, fjölskyldu og viðskiptavini. Óháð samhengi er fólk þannig hvatt til að sýna öðrum heiðarleika og virðingu, svo jafnvel sá sem væri viss um að komast upp með svívirðilega spillingu eða peningaþvætti léti það ógert. Hvers vegna? Vegna þess að slíkt bryti gegn samvisku og sjálfsmynd viðkomandi. Sannarlega árangursrík viðskiptamenntun fyrir 21. öldina myndi útskrifa fólk sem gæti stigið fram og hafnað slíkum sjálfssvikum.