1010 Breytilegt vinnuumhverfi og framtíðarhorfur
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- aðgangshagkerfi
- óhefðbundið viðskiptalíkan þar sem neytendur eru bæði veitendur og notendur vöru eða þjónustu, oft með milligöngu þriðja aðila
- gervigreind (AI)
- fræðigrein sem notar tölvureiknirit til að gera vélum kleift að líkja eftir greindri hegðun fólks með sem minnstri íhlutun manns
- sveigjanlegur vinnutími
- vinnufyrirkomulag sem gerir starfsfólki kleift að velja hvenær vinnudagurinn hefst og lýkur
- verktakahagkerfi
- vinnumarkaðsfyrirkomulag þar sem einstaklingar og fyrirtæki semja við sjálfstæða verktaka um skammtímaverkefni eða tímabundna vinnu og veita lítil eða engin starfskjör umfram greiðslu fyrir verkið
- starfsdeiling
- vinnufyrirkomulag þar sem tveir eða fleiri starfsmenn skipta með sér verkefnum og ábyrgð eins fulls starfs
- vélmennafræði
- rannsóknarsvið sem sameinar tölvunarfræði, véla- og rafeindaverkfræði og fleiri vísindagreinar við þróun vélmenna og annarra sjálfvirkra kerfa sem geta leyst verkefni fólks af hendi
- fjarvinna
- vinna sem er unnin utan hefðbundinnar starfsstöðvar, svo sem heima eða í öðru vinnurými, með aðstoð rafrænna samskipta