Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Á átjándu öld tók iðnbyltingin að umbreyta eðli vinnu víða í hinum vestræna heimi. Iðnaður leysti landbúnað af hólmi sem helsti drifkraftur hagkerfisins og vélvæðing tók við af handafli. Síðari tæknibreytingar hafa breytt enn frekar því hvernig fólk vinnur og jafnvel hvar og hvenær vinnan fer fram. Sífellt fleiri vinna nú hluta vinnutímans heima. Skila þau meiri afköstum án truflana skrifstofunnar eða minni afköstum þegar stjórnendur fylgjast ekki stöðugt með þeim? Nokkur stórfyrirtæki, svo sem Apple, Amazon, Facebook og Microsoft, hafa byggt umfangsmikil vinnustaðasvæði sem bjóða upp á áður óþekkt starfstengd hlunnindi og jafnvel húsnæði fyrir starfsfólk. Auðvelda slík svæði fólki að samræma vinnu og einkalíf eða gera þau mörkin þar á milli óskýrari og binda starfsfólkið fastar við vinnuna?
Starfsdeiling og sveigjanlegur vinnutími eru orðnir valkostir við hefðbundið vinnufyrirkomulag. Þessar leiðir auðvelda sumu launafólki að sinna bæði vinnuskyldum og ábyrgð í einkalífi. Er starfsdeiling þó til marks um að vinnuveitendur vilji mæta óskum starfsfólks eða er hún fyrst og fremst leið til að draga úr kostnaði?
Hvernig eiga stjórnendur að búa starfsfólk undir áhrif vélmenna á vinnustaðnum (Mynd 10.1) eða hafa umsjón með útvistun verkefna til verktaka í verktakahagkerfinu? Slíkar breytingar á hefðbundnu vinnufyrirkomulagi hafa siðferðilegar afleiðingar fyrir alla hagsmunaaðila, þar á meðal vinnuveitendur, starfsfólk, birgja, viðskiptavini og skjólstæðinga.