4545 Stofn- og samfélagsvistfræði
Spurningar um myndefni
Mynd 45.2 Eins og línuritið sýnir minnkar stofnþéttleiki yfirleitt eftir því sem líkamsstærð eykst. Hvers vegna heldur þú að það sé?
Mynd 45.10b Ef helsta fæða landsela minnkar vegna mengunar eða ofveiði, hvað af eftirfarandi er líklegast að gerist?
- Burðarþol fyrir landseli myndi minnka og selastofninn sömuleiðis.
- Burðarþol fyrir landseli myndi minnka en selastofninn standa í stað.
- Dauðsföllum landsela myndi fjölga, en fæðingum myndi einnig fjölga, þannig að stofnstærðin stæði í stað.
- Burðarþol fyrir landseli myndi standa í stað en selastofninn minnka.
Mynd 45.16 Aldurssamsetningarmyndir fyrir ört vaxandi, hægt vaxandi og stöðuga stofna eru sýndar á stigum 1 til 3. Hvers konar stofnbreytingu telur þú að stig 4 tákni?