55 Undirstöður Atlantshafsheimsins
Upprifjunarspurningar
Upprifjunarspurningar
1.
Í hvaða hluta Evrópu þróaðist kristin mannhyggja?
- á Bretlandseyjum
- í Suður-Evrópu
- í Norður-Evrópu
- í Austur-Evrópu
2.
Hvaða starfshátt kaþólsku kirkjunnar gagnrýndi Marteinn Lúther í ritinu 95 greinar Lúthers?
- bænir fyrir sálum í hreinsunareldinum
- sölu afláts
- þýðingu Biblíunnar úr latínu á þýsku
- efnisbreytingarkenningu kirkjunnar
3.
Hvers vegna hafnaði Hinrik VIII valdi kaþólsku kirkjunnar?
- Hann taldi páfann ekki hafa vald til að fyrirgefa syndir fólks.
- Hann reiddist því að páfinn tók afstöðu með Frakklandi í hernaðarátökum Frakklands við England.
- Hann reiddist því að páfinn vildi ekki ógilda hjónaband hans og Katrínar af Aragón.
- Hann hafnaði efnisbreytingarkenningu kaþólsku kirkjunnar.
4.
Hvers vegna var Jesúítareglan stofnuð?
- til að mennta unga kaþólska karla
- til að annast sjúka
- til að biðja fyrir sálum í hreinsunareldinum
- til að veita fátækum líknaraðstoð
5.
Notkun Evrópumanna á siglingatækni frá löndum utan Evrópu á landafundatímabilinu gerði þeim kleift að
- lækna sjómenn sem veiktust í löngum sjóferðum
- varðveita plöntu- og dýrasýni sem þeir fundu í Ameríku
- sigla svo langt frá Evrópuströndum að þær sæjust ekki
- greina og forðast storma á hafi
6.
Hvernig stuðlaði fall Konstantínópel í hendur Osmana að upphafi landafundatímabilsins?
- Það gerði Portúgal og Spán að bandamönnum sem urðu síðan samstarfsríki um könnun heimsins.
- Það veitti portúgölskum og spænskum hermönnum dýrmæta hernaðarreynslu sem þeir nýttu til að leggja frumbyggja Ameríku undir sig.
- Það losaði fé sem áður hafði verið varið til baráttu gegn Osmönum svo nota mætti það til að búa út landkönnunarleiðangra.
- Það hvatti Evrópuríki til að leita sjóleiðar alla leið til Indía sem færi fram hjá yfirráðasvæði múslimskra Osmana.
7.
Hvað annað en löngun til að auðgast hvatti Portúgal og Spán til að kanna ný lönd?
- löngun til að breiða út kristni og vinna gegn áhrifum íslams
- löngun til að afla nýrra lækningajurta gegn smitsjúkdómum
- löngun til að finna ný landsvæði og draga úr fólksfjöldaálagi í Evrópu
- löngun til að finna nýjar fæðuuppsprettur handa sveltandi íbúum Evrópu
8.
Hver var ein afleiðing Tordesillas-samningsins?
- Spánn gat stofnað nýlendu á Filippseyjum.
- Brasilía varð portúgölsk nýlenda.
- Portúgölum var bannað að stunda viðskipti í Afríku.
- Ekki mátti lengur veita spænskum conquistadorum encomienda-veitingar.
9.
Hvernig brugðust önnur Evrópuríki við Tordesillas-samningi Spánar og Portúgals?
- Þau virtu samninginn að vettugi.
- Þau báðu páfann að úthluta sér einnig landsvæðum.
- Þau lýstu yfir stríði á hendur Spáni og Portúgal.
- Þau hættu tilraunum sínum til að kanna og nema lönd í Ameríku.
10.
Hvers vegna voru smitsjúkdómar sem bárust með dýrum banvænni fyrir frumbyggja Ameríku en fyrir Evrópumenn?
- Frumbyggjarnir lifðu hirðingjalífi og gátu því ekki hvílst þegar þeir veiktust.
- Erfðafræðileg stökkbreyting gerði frumbyggja næmari fyrir bakteríusýkingum.
- Frumbyggjar höfðu enga reynslu af að meðhöndla sjúkdóma af nokkru tagi.
- Frumbyggjar höfðu aldrei komist í snertingu við smitsjúkdómana sem áttu uppruna sinn í húsdýrum Evrópumanna.
11.
Hvaða planta barst til austurhvels jarðar í Kólumbísku skiptunum?
- epli
- maís
- hveiti
- hrísgrjón
12.
Hvað var eitt megineinkenni kaupauðgisstefnunnar?
- mæling auðs ríkis í gulli og silfri
- áhersla á að flytja inn fleiri vörur en fluttar voru út
- samkeppni milli fyrirtækja
- áhersla á frjáls viðskipti fremur en tolla
13.
Hvert er meginhlutverk nýlendna samkvæmt kaupauðgisstefnunni?
- að veita umframfjölda íbúa móðurríkisins ný heimkynni
- að veita andófsfólki í trúmálum og stjórnmálum skjól
- að auka virðingu ríkisins
- að útvega móðurríkinu náttúruauðlindir
14.
Hvernig skaðaði kaupauðgisstefnan verkalýðsstéttina?
- Löngunin til að hagnast á nýlendunum leiddi til illrar meðferðar á landnemum úr verkalýðsstétt.
- Kaupauðgisstefnan mælti með því að launum yrði haldið lágum.
- Uppsöfnun gulls og silfurs leiddi til verðbólgu.
- Kaupauðgisstefnan leiddi oft til stríða sem hermenn úr verkalýðsstétt urðu að heyja.
15.
Hvaða vara sem skipt var fyrir fólk í Afríku í þríhyrningsviðskiptunum var framleidd úr aukaafurð þeirrar framleiðslu sem byggðist á vinnu þrælaðs fólks?
- klæði
- byssur
- romm
- kaffi
16.
Hvað er lausafjárþrælkun?
- form þrælkunar sem leiðir af skuldsetningu
- form þrælkunar þar sem farið er með þrælað fólk sem lausafjármuni
- form þrælkunar þar sem börn erfa ekki stöðu þrælaðra foreldra sinna
- form þrælkunar þar sem fólkið sem hneppt er í þrælkun hefur verið tekið til fanga í vopnuðum átökum
17.
Hvaða nytjaplöntu var flest þrælað fólk í Ameríku látið rækta?
- sykur
- hveiti
- tóbak
- hrísgrjón
18.
Hvaða áhrif hafði þrælaverslunin á vöxt afrískrar framleiðslu?
- Afrísk framleiðsla leið fyrir að svo mikill fjöldi fólks var fluttur á brott í þrælaversluninni að ekki varð nóg vinnuafl eftir.
- Mikill fjöldi þrælaðra verkamanna hélt framleiðslukostnaði afrískra framleiðenda lágum.
- Þörfin fyrir að framleiða vopn til að verjast evrópskum þrælaverslunarmönnum ýtti undir þróun skotvopnaiðnaðar í Afríku.
- Skipti á evrópskum vefnaðarvörum fyrir þrælað fólk sköðuðu afríska vefnaðarvöruframleiðendur sem gátu hvorki keppt í magni né verði.