1515 Samtíminn og viðvarandi áskoranir
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- al-Qaeda
- íslömsk hryðjuverkasamtök sem herskái Sádi-Arabinn Osama bin Laden fjármagnaði og stýrði og báru ábyrgð á árásunum 11. september 2001 í Bandaríkjunum
- arabíska vorið
- alþýðuhreyfing sem krafðist umbóta á stjórnarháttum og lýðræðis og breiddist út um arabaheiminn árið 2011
- rafrænt spjallborðskerfi (BBS)
- tölvunet fyrir tíma internetsins sem samanstóðu af einkatölvum sem tengdust hver annarri með mótöldum og símalínum
- loftslagsbreytingar
- víðtækar breytingar á hitastigi, veðri, stormavirkni, vindamynstri, sjávarstöðu og öðrum þáttum sem hafa áhrif á jörðina
- Evrópusambandið (ESB)
- sameiginlegt markaðssvæði sem var stofnað árið 1993 til að tryggja frjálsa för vara, þjónustu, fjármagns og fólks milli aðildarríkja í Evrópu
- Hið almenna samkomulag um tolla og viðskipti (GATT)
- viðskiptasamningur tuttugu og þriggja ríkja frá 1947 sem átti að styrkja efnahagslegan bata eftir stríðið en Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) tók síðar við hlutverki hans
- hnattræn hlýnun
- almenn hækkun hitastigs jarðar sem vísindafólk hefur greint undanfarin um það bil tvö hundruð ár
- hnattvæðing
- samtenging samfélaga og hagkerfa um allan heim fyrir tilstilli viðskipta, tækni og upptöku og miðlunar ýmissa menningarþátta
- grænir flokkar
- stjórnmálaflokkar sem hafa umhverfismál að meginviðfangsefni
- Íslamska ríkið
- bókstafstrúaður og herskár íslamskur hópur sem efldist og háði stríð í Írak og Sýrlandi eftir innrás Bandaríkjanna í Írak árið 2003
- fjölþjóðafyrirtæki
- fyrirtækjasamsteypa sem stjórnar framleiðslu vara og þjónustu í mörgum ríkjum
- Fríverslunarsamningur Norður-Ameríku (NAFTA)
- viðskiptasamningur Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó frá 1992 um að draga úr viðskiptahindrunum og tryggja frjálst flæði vara
- alþjóðleg útvistun
- ferlið við að flytja hluta af starfsemi fyrirtækis til annarra landa til að fá aðgang að ódýrari vinnumörkuðum
- útvistun
- ferlið við að ráða utanaðkomandi verktaka, stundum erlendis, til að sinna verkefnum sem fyrirtæki sinnti áður sjálft
- Parísarsamkomulagið
- samningur aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna frá 2015 um að takmarka hnattræna hlýnun við minna en 2 °C (3,6 °F) umfram hitastig við upphaf iðnvæðingar
- auðlindabölvunin
- vandi sem veldur því að auðlindaríkum þróunarlöndum er hætt við einræðisstjórn, mikilli tíðni átaka og litlum hagvexti
- ofurþjóðernishreyfingar
- samtök sem styðja öfgakennda þjóðernishyggju og leitast oft við að skapa þjóðlönd þar sem íbúar eru af sama þjóðernisuppruna