1313 Orsakir og afleiðingar síðari heimsstyrjaldarinnar
Beitingar- og ígrundunarspurningar
Beitingar- og ígrundunarspurningar
1.
Teldu upp þær aðgerðir sem Japan beitti til að byggja upp heimsveldi sitt í Asíu. Hversu líklegt er að afskipti annarra ríkja hefðu getað stöðvað árásarstefnu Japans? Hefðu Evrópuríkin og Bandaríkin haft rétt til að beita hervaldi í því skyni? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
2.
Hvers vegna kom ekkert ríki Tékkóslóvakíu til hjálpar þegar Þýskaland ógnaði henni? Útskýrðu hvernig og hvers vegna Vesturveldunum tókst ekki að framfylgja Versalasamningnum af festu og koma í veg fyrir árásarstefnu Þýskalands undir stjórn Hitlers.
3.
Hversu trúverðugar voru fullyrðingar Japans um að það vildi frelsa þjóðir Asíu undan vestrænum nýlenduveldum? Rökstyddu svarið.
4.
Átti að leyfa Hitler að brjóta gegn skilmálum Versalasamningsins og hervæða Rínarland á ný? Ef hann hefði látið staðar numið þar, hvorki ráðist inn í önnur ríki né ofsótt þýska gyðinga, telur þú að Frakkland og Bretland hefðu lýst yfir stríði?
5.
Bauð hlutleysisstefna Bandaríkjanna árásinni á Pearl Harbor heim? Hvers vegna eða hvers vegna ekki? Hefði framvinda atburða breyst ef Bandaríkin hefðu stutt Bretland, Frakkland og Kína með virkari hætti?
6.
Greindu þá þætti sem leiddu til ákvörðunar Hitlers um að ráðast inn í Sovétríkin.
7.
Hvers vegna tók japanski herinn þá áhættu að efna til átaka og hugsanlegs stríðs við Bandaríkin í upphafi fimmta áratugarins?
8.
Hvers vegna hefði Churchill kosið stefnuna „Evrópa fyrst“? Hvert af ríkjum Bandamanna hafði mest að tapa á Kyrrahafssvæðinu og hvers vegna?
9.
Hvernig lagði dægurmenning á borð við tónlist og kvikmyndir sitt af mörkum til stríðsreksturs ólíkra ríkja? Hefur dægurmenning enn áhrif á ættjarðarást fólks nú á dögum? Ef svo er, hvernig?
10.
Með hvaða hætti lögðu konur sitt af mörkum til stríðsreksturs heimalanda sinna? Hvernig hafði stríðið áhrif á líf kvenna til skamms og langs tíma, bæði til góðs og ills?
11.
Hvaða uppfinning frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar telur þú að hafi skipt mestu máli á þeim tíma? Hver þeirra skiptir mestu máli nú?
12.
Hvaða afstöðu hafði Truman forseti til þess að kjarnorkusprengjunni yrði varpað? Ef Þýskaland hefði ekki gefist upp áður en þróun sprengjunnar lauk, telur þú að Bandaríkin hefðu varpað henni á skotmörk í Þýskalandi? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
13.
Hvaða samkomulaganna sem náðust í Jalta og Potsdam telur þú hafa skipt mestu máli? Hvert þeirra var líklegast til að valda mestum ágreiningi milli leiðtoga stórveldanna þriggja? Rökstyddu svarið.
14.
Hvaða pólitísku, efnahagslegu og félagslegu breytingum þröngvaði hernámsstjórn Bandaríkjanna upp á Japan? Naut almenningur í Japan góðs af þessum breytingum? Hvers vegna eða hvers vegna ekki? Veitti sigurinn Bandaríkjunum að þínu mati rétt til að endurmóta japanskt samfélag? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
15.
Voru skilmálarnir sem Japan þurfti að sæta eftir stríð strangari en þeir sem lagðir voru á Þýskaland? Rökstyddu svarið.